Tíminn - 26.10.1995, Qupperneq 9
9
Fimmtudagur 26. október 1995 gifaltHtt
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND .
Spœnska þingiö fellir fjárlagafrumvarp í mótmœlaskyni viö Gonzales:
Jafngildir van-
traustsyfirlýsingu
Madrid — Reuter
Felipe Gonzales, forsætisráð-
herra Spánar, varð í gær fyrir
áfalli, sem telja má þaö versta
sem hann hefur orðið fyrir á 13
ára valdaferli sínum, þegar
spænska þingið felldi fjárlaga-
frumvarp stjórnarinnar fyrir ár-
ið 1996 vegna ásakana um að
Gonzales hafi vitað um
„óhreina stríðiö" gegn skærulið-
um ETA.
Niðurstaða þingsins er talin
jafngilda vantraustsyfirlýsingu,
en þótt stjórnarandstaðan vilji
að þingið verði leyst upp þegar í
staö er Gonzales harður á því að
ekki sé hægt ab boða til kosn-
inga fyrr en ab loknum þeim
tíma sem Spánn fer með forsæti
í Evrópusambandinu, en því
tímabili lýkur í desember nk.
„Þab er alltaf sárast í fyrsta
sinn," sagði Gonzales eftir að
ljóst var að þingið hefði fellt
fjárlagafrumvarpiö. „En hvað
um það, maður verður að
kunna að taka sigri og maður
verður líka að kunna að tapa."
Felipe Gonzales stendur sífellt verr ab vígi. Reuter
Hann sagði engu að síður að
hann myndi halda fast við þá
áætlun sína að almennar kosn-
ingar verði í landinu í mars á
næsta ári. Ríkisstjórnin ætlar að
leysa fjárhagsmálin til bráða-
birgða með því að miða áfram
við fjárlög þessa
árs. Gonzales
sagðist einnig
þess fullviss að
þessi staða kæmi
ekki í veg fyrir að
markmiö stjórn-
arinnar um að
draga úr fjárlaga-
hallanum náist.
Gonzales hefur
verið undir sí-
auknum þrýst-
ingi frá andstæð-
ingum sínum
vegna grun-
semda um að
hann hafi vitað
af og jafnvel
heimilað ólög-
legar aðgerðir
gegn baskneskum aðskilnabar-
sinnum á síðasta áratug, en
meöal annars var þá gripið til
sprengjuárása, mannrána og
moröa til þess aö vinna bug á
skæruliöum Baska.
Ástralskt dagblaö Ijóstrar upp um skýrslu frá frönsku ríkisstjórninni:
Kjamorkutilraunimar
valda alvarlegum skaða
Sydney — Reuter
í ástralska dagblaðinu The
Sydney Morning Herald var í
gær skýrt frá því ab blaðið hefði
undir höndum skýrslu frá ríkis-
stjórn Frakklands, sem unnin
var af frönskum vísindamönn-
um í umboði franska hersins,
þar sem segir að tilraunaspreng-
ingar Frakka við kóraleyjarnar
Mururoa og Fangataufa í Suður-
Kyrrahafinu hafi valdið alvar-
legum sprungum neðansjávar
viö kóraleyjurnar auk þess sem
dauðir fiskar hafi fundist hræði-
lega útleiknir í kjölfar spreng-
inganna. í skýrslunni segir enn-
fremur að neðanjarðarspreng-
ingarnar í Kyrrahafinu hafi
valdiö meira tjóni en þær til-
raunasprengingar sem ábur
voru gerðar ofanjarðar.
Skýrslan ber yfirskriftina:
„Kóraleyjarnar Mururoa og
Fangataufa: lifandi umhverfi og
þróun þess", en blaðið skýrir
ekki frá því hvernig það kom
höndum yfir skýrsluna. i henni
segir m.a.: „Neðanjarðartilraun-
irnar hafa valdið alvarlegri
skemmdum á undirlögum (kór-
aleyjunnar) en tilraunir ofan-
jarðar gerðu." Einnig fylgdi
skýrslunni mynd af grjótmuln-
ingi við lón kóraleyju þar sem
gerðar höfðu verið tilraunir, en
þess var ekki getið í blaðinu frá
hvaða eyju myndin var.
í skýrslunni segir að lífkerfi,
sem ofanjarbartilraunir hafa
valdið skemmdum á, væru nú
óðum ab ná sér aftur á strik, en í
mörgum dýrategundum væri
óeðlilega hátt hlutfall af ung-
vibi. Búsvæði hefðu minnkað
og endurteknar tilraunaspreng-
ingar kæmu í veg fyrir að þau
stækkuðu aftur.
Einnig voru ítarlegar lýsingar
í skýrslunni á örlögum þeirra
sjávardýra sem eru innan
tveggja km. frá sprengistaön-
um, en samkvæmt því drepst
óþekktur fjöldi fiska vegna
sprengingarinnar á þann hátt
að innri líffæri þrýstast út um
munn og endaþarm, auk þess
sem augun þrýstast út'. Sum líf-
færin eru óþekkjanleg. í skýrsl-
unni segir einnig að einungis
lítið brot af dauðu fiskunum
finnist nokkurn tíma því stór
hluti þeirra sekkur til botns þar
sem önnur sjávardýr éta þá. ■
Ingvar Carlsson viörar umdeildar hugmyndir til
lausnar fjárhagsvanda SÞ:
Vill skatt á gjald-
eyrisvi&skipti
Sameinubu þjóbunum — Reuter
í ræðu sinni á afmælishátíð
Sameinuðu þjóðanna á mib-
vikudaginn gagnrýndi Ingvar
Carlsson, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, harðlega þau ríki sem
skulda SÞ miklar fjárhæðir. „Þau
vilja sífellt meira frá sameigin-
legum stofnunum okkar. Samt
eru þessi lönd ófáanleg til þess
ab greiöa aðildargjöld sín. Það
er einfaldlega ekki ásættanlegt,"
sagði hann.
Hann sagði síðan að SÞ, sem
eiga meira en 3 milljarða dala í
útistandandi skuldum hjá ab-
ildarríkjum sínum, verbi að
koma sér upp nothæfu kerfi til
að fjármagna starfsemi sína og
draga þannig úr ósjálfstæði
samtakanna gagnvart einu að-
ildarríkjanna, sem greiðir háar
fjárhæðir til SÞ. Hér á Carlsson
við Bandaríkin, en þau skulda
SÞ um 1,25 milljarða dala.
„Hinsvegat gæti verið að þetta
sé ekki nóg," bætti hann við.
„Ég tel að tími sé kominn til
þess að ræða í fullri alvöru aðrar
aöferðir til aö afla nauðsynlegs
fjármagns handa Sameinuðu
þjóðunum. Við þurfum að
skoða möguleikann á því að búa
til alþjóðlegan skatt á gjaldeyris-
viðskipti. Við þurfum ab athuga
möguleikann á því að leggja ný
gjöld á notkun sameiginlegra
auölinda jarðarinnar, svo sem
siglingaleibir skipa og úthafs-
veiðisvæði, eða sérstakan skatt á
flugfarseðla," sagði Carlsson.
Litlar sem engar líkur eru tald-
ar á að þessar hugmyndir Carls-
sons nái fram að ganga. En
hann sagði aö það væri skömm
að því að svo mörg aðildarríki
greiði ekki skuldir sínar. „Sam-
einuöu þjóðirnar geta ekki veriö
meira en þab sem aöildarríkin
gera þeim kleift að vera," sagði
hann.
Veittur er 10% afsl. gegn afhendingu þessarar auglýsingar
Erum flutt af
Haustvörurnar
inn
Mörkirn 9 '<> '’iiðina á Teppalandí). slml 58S 5518.
;musr;~ó . Verslunarmáti nuttmans.
ORÐSENDING
frá Lífeyrissjóði
Verkfræðingafélags íslands
Til sjóðfélaga
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags íslands
hefur sent sjóðfélögum sínum yfirlit yfir mót-
tekin iðgjöld á tímabilinu 1. janúar-31. júlí
1995.
Hafi einhver ekki fengið yfirlit, en dregið hafi
verið af launum hans í Lífeyrissjóð Verkfræð-
ingafélags íslands, eða ef yfirlitið er ekki í
samræmi við frádrátt á launaseðlum, þá vin-
samlegast hafið samband við skrifstofu sjóðs-
ins nú þegar og eigi síðar en 31. október nk.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda til lífeyris-
sjóðsins geta dýrmæt réttindi glatast.
GÆTTU RÉTTAR ÞÍIMS
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir
meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar
ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu
launþegar innan 60 daga frá dagsetningu
yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda
til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á ið-
gjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka
leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það
tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd
ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyris-
sjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á
grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem
þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum
ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags íslands,
Engjateigi 9,105 Reykjavík,
sími: 568 8504
fax: 568 8834.
Framsóknarflokkurínn
Amþmður
Framsóknarvist
Framsóknarvist verbur haldin sunnudaginn 29. október kl.
14.00 í Hótel Lind. Veitt verba þrenn verblaun karla og
kvenna. Arnþrúbur Karlsdóttir, varaþingmabur, flytur stutt
ávarp í kaffihléi. Abgangseyrir er kr. 500 (kaffiveitingar inni-
faldar).
Framsókrtarfélag Reykjavíkur