Tíminn - 26.10.1995, Page 16
Vebrib (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Suburland: Norban hvassvlbri og slydduél. Hiti +3 til -1 stig.
• Faxaflói og Breibafjörbur: Norban og norbaustan stormur eba rok
og él eba snjÓKoma. Hiti +2 tii -1 stig.
• Vestfirbir: Norbaustan og norban stormur eba rok oq él eba snjó-
koma f.h. Lægir heldur og dregur úr úrkomu þegar líbur a daginn. Hiti
+3 til -1 stig.
• Strandir og Norburland vestra: Norban rok og snjókoma. Hiti 0 til
1 stig.
• Norburland eystra: Allhvass norban og norbaustan og él. Hiti 0-2
stig.
• Austurland ab Glettingi: Norbaustan stinningskaldi og slydduél.
Hiti 1-5 stig.
• Austfirbir: Norban gola eba kaldi og úrkomulítib. Hiti 2-5 stig.
• Subausturland: Norban gola eba kaldi og úrkomulítib. Hiti 3-5 stig.
Fiskvinnsla á Vestfjöröum stöövaöist í gœr vegna rafmagnsleysis. Báöar dísilstöövarnar á Þingeyri biluöu:
Vestfirðir lamaöir vegna
fárveðurs og orkuskorts
Staurar sem bera uppi rafmagns-
línuna frá Mjólkárvirkjun í Arn-
arfirbi brotnubu undan ísingu
ab talib er í fyrradag. Orkubú
Vestfjarba hefur því framleitt
rafmagn meb olíukyntum vara-
aflsstöbvum, og abeins til heim-
ila en víba er rafmagnshitun í
húsum á Vestfjörbum. Rækju-
vinnslur og frystihús víbast hvar
um Vestfirbi urbu ab loka í gær.
Á Þingeyri var rafmagnslaust í
gær, bábar díselstöbvarnar í bæn-
um bilubu fljótlega eftir ab þær
voru ræstar snemma í fyrrinótt.
Sendur var bíll frá Þingeyri til ísa-
fjarbar eftir þungum varahlutum í
abra stöbina um nóttina og var
hann ab renna í hlab hjá Jónasi
Ólafssyni sveitarstjóra upp úr kl. 3
í gær. Ferbin sóttist seint hjá Sig-
þóri Gunnarssyni, manni um
fimmtugt, sem lagöi upp í fyrri-
nótt til ísafjarbar sem aö öllu
jöfnu er klukkutíma ferö. Sigþór er
meö stóran bíl meö snjótönn og
vanur maöur í hrakningaferöum.
Vélar voru sendar á móti honum
og ruddu þannig aö hann kæmist
gegnum Vestfjarbagöngin.
„Ég get ekki sagt aö viö höfum
veriö viöbúnir þessu. Enginn var
vibbúinn þessu, enda er þetta
engu líkt og hreint út sagt ótrú-
legt. Ef menn heföu séö þetta fyrir
væru allar rafmagnslínur landsins
byggbar miklu sterkari," sagöi
Kristján Haraldsson framkvæmda-
stjóri Orkubús Vestfjaröa. Há-
spennulínan á Vestfjörbum er þús-
und kílómetra löng — 30 kíló-
metrar eru komnir í jörbu. Kostn-
aöur viö slíka línu er fjórfalt meiri
en loftlínan.
„Ef viö erum aö færast inn í
þetta veðurfar sem ríkti í fyrravet-
ur og er að sýna sig aftur núna, þá
tel ég aö menn veröi að fara að
hugsa upp á nýtt styrkleika þessara
mannvirkja," sagöi Kristján í sam-
tali viö Tímann í gær. Orkubúib
var í gær aö fá fréttir af skemmd-
um, aðallega frá þeim sem búa í
nágrenni línunnar en erfitt var um
vik aö senda línumenn til vib-
gerða.
„Við höfum svo sem séð svona
veöur áöur, en þetta er óvenju
snemma á ferðinni. Fjölmiðlar eru
aö hræða líftóruna úr fólki, þeir
þrífast best ef eitthvaö svona er að
gerast," sagði Konráb Jakobsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss-
ins hf. í Hnífsdal og æðrulaus Vest-
firðingur í gær. Öll fiskvinnsla lá
niöri á ísafirði og öörum byggðum
Vestfjarba í gær vegna orkuskorts.
Konráö sagði að það væri bann-
að að vinna fisk vegna rafmagns-
skömmtunar. Til stæði að leyfa
vinnslu á fimmtudag. Ef stoppib
yrði ekki nema einn dagur mundi
allt sleppa fyrir horn.
„Það eru tómir salir hjá okkur,
alla vega í dag," sagði Eggert Jóns-
son útgerðarstjóri í Norðurtanga
hf. Hann sagði ab lítið lægi fyrir til
vinnslu, og ef leyft yröi aö vinna
aflann á fimmtudag yrði allt í
besta lagi þar. -JBP
Fárviöri gekk yfir
vestanvert og norbanvert landib ígœr. Þegar Tíminn fór í prentun ígcer-
kvöldi blasti vib fremur dökk spá fyrir nóttina, daginn í dag og föstudag.
Bragi Jónsson veburfrœbingur á Veburstofu íslands sagbi ab búist væri vib
norbaustan roki, ofsavebri og snjókomu í Skagafirbi, Húnavatnssýslum og
Vestfjörbum og vib Breibafjörb og jafnvel allt subur á Reykjanesib. Hér
sybra mœtti vel búast vib blindhríb uppi á Hellisheibi, en hreytur í Reykja-
vík og nágrenni.
Veburspáin fyrir daginn í dag gerir ráb fyrir norbanátt og hvassvibri áfram
á Vestfjörbum og Norburlandi vestra. í kvöld má búast vib ab bœti í vind
á Norbausturlandi meb snjókomu.
Norbanáttin mun ab mestu ganga nibur á föstudag og á laugardag má
búast vib hœgri breytilegri átt. -]BP
Hafnarfjöröur er aö sigla fram úr Kópavogi í íbúa-
fjölda. Siguröur Geirdal bœjarstjóri í Kópavogi:
,,Vib fljúgum fram-
úr þeim aftur.. "
Fimm þingmenn veð-
urtepptir á Húsavík
Allir þingmenn Norburlands
eystra voru veburtepptir í gær
en vib besta atlæti á Hótel
Húsavík. Nema Svanfríöur
Jónasdóttir, hún var vebur-
teppt á heimili sínu á Dalvík.
Fárvibrib sem skall á Norbur-
landi og Vestfjöröum setti
samgöngur úr lagi og raforka
var af skornum skammti um
stóran hluta landsins.
Þihgmenn allra flokka fóru
saman noröur til ab spjalla viö
sveitarstjórnir. Þingmennirnir
komust til funda á Raufarhöfn,
Þórshöfn og Kópaskeri, og kom-
ust á Húsavík í fyrrakvöld, en
ekki lengra. Veðrið þar var ógur-
legt í gærdag.
„Þetta er mikill krapasnjór og
hitastigið niður við núllið, en
við ætlubum að fara í Mývatns-
sveit og ab Laugum, en þar er
stórhríð og sér ekki milli húsa,"
sagði Guðmundur Bjarnason,
landbúnaðarráðherra í samtali
við Tímann í gær.
Guðmundur sagðist kannast
við þetta vebur, en í kosninga-
baráttunni á síbastliðnum vetri
varb hann veðurtepptur í viku á
Húsavík, sínum heimabæ. -JBP
Vestfíröir:
Nýr skattstjóri
Fjármálarábherra hefur
ákvebib ab skipa Ragnar M.
Gunnarsson í stöbu skatt-
stjóra í Vestfjarbarumdæmi
frá og meb 1. janúar 1996.
Ragnar er vibskiptafræbing-
ur ab mennt og hefur starfab
hjá embætti ríkisskattstjóra
frá árinu 1986 og er nú for-
stöbumabur eftirlitsskrif-
stofu embættisins.
Umsækjendur um stöðuna
voru fimm auk Ragnars, en
þeir eru: Agnes Karlsdóttir við-
skiptafræðingur, Barði In-
gjaldsson rekstrarhagfræbing-
ur, Bjarnfreöur Ólafsson lög-
fræðingur og tveir er óskuðu
nafnleyndar. ■
Ingvar Viktorsson bæjarstjóri
í Hafnarfirbi sagbi frá því á
blabamannafundi á dögunum
ab allar líkur bentu nú til þess
aö Hafnarfjörður væri oröinn
næststærsti bær landsins á eft-
ir Reykjavík. Sú stabreynd
ætti eftir ab koma í ljós í töl-
um Hagstofunnar 1. desember
næstkomandi.
Ekki er laust við að milli stóru
bæjanna, Hafnarfjaðar, Kópa-
vogs og jafnvel líka Akureyrar sé
nokkur metnaður að komast í
næsta sæti vib Reykjavík. Þab
sæti tók Kópavogur af Akureyri
fyrir nokkrum árum. En nú
kann að verba breyting á.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í
Kópavogi, sagði í gær að nýju
hverfin á Hvaleyrarholti og víb-
ar í Hafnarfirbi væru að byggjast
upp, en í kjölfarið kæmu engin
nýbyggingarsvæöi þar.
„En hér í Kópavogi eru 5 þús-
und manna hverfi í uppbygg-
ingu og íbúum í Kópavogi á eft-
ir að fjölga gífurlega mikiö á
næstu misserum," sagði Sigurð-
ur Geirdal. „Við fljúgum þá
fram úr þeim afar fljótlega, og
erum ekkert skelfingu lostnir,"
sagði Sigurður.
Þann 1. desember í fyrra voru
Kópavogsbúar um það bil 250
fleiri en Hafnfirðingar. -JBP