Tíminn - 16.11.1995, Page 9
Fimmtudagur 16. nóvember 1995
ffÍMIÍIWt
9
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND .
Javier Solana, utanríkisráöherra Spánar:
Næsti framkvæmdastjóri Nató?
Madrid — Reuter
Spánverjinn Javier Solana,
sem nú hefur stigið fram á sjón-
arsvið alþjóðastjórnmála sem
hugsanlegur málamiðlunar-
kandídat í embætti aðalfram-
kvæmdastjóra Nató, er bæði
virtur stjórnmálamaður heima
fyrir og hefur átt góð vináttu-
tengsl við suma af helstu rába-
mönnum Bandaríkjanna, svo
sem Warren Christopher utan-
ríkisráðherra og jafnvel Bill
Clinton forseta sjálfan.
Solana tók við utanríkisráö-
herraembætti Spánar fyrir þrem
árum. Hann hefur verið náinn
samstarfsmaður Gonzalesar for-
sætisráðherra til fjölda ára og
hefur verið nefndur til sögunn-
ar sem hugsanlegur eftirmaður
hans í forsætisráðherraembætt-
ið ef Gonzales ákveður að gefa
ekki kost á sér fyrir kosningarn-
ar í marsmánuði nk.
Hann er fæddur 14. júlí árið
1944, eðlisfræðingur ab mennt,
með doktorspróf frá háskólan-
um í Madrid, en hélt síðan til
Bandaríkjanna árið 1966 sem
styrkþegi Fulbright stofnunar-
innar. Eftir nokkurra ára dvöl
þar sneri hann aftur til Spánar,
þar sem hann kenndi við há-
skólann og sendi m.a. frá sér
fjöldann allan af bókum um
eðlisfræði ábur en hann sneri
sér alfarið að stjórnmálum. Árið
javier Solana stendur hér á milli Felipe Conzales, forsætisráöherra Spánar,
og Willys Claes, fráfarandi leiötoga Nató.
1970 gekk hann í Sósíaldemó-
krataflokkinn, fimm árum áður
en einræðisherrann Francisco
Franco lést, og hann hefur verib
í öllum ríkisstjórnum Sósíal-
demókrata frá því flokkurinn
komst til valda árið 1982. Þá
strax var hann settur í embætti
menningarmálaráðherra. 1985
varð hann talsmaður ríkis-
stjórnarinnar, sem er ígildi ráð-
herraembættis, og 1988 varð
hann menntamálaráðherra.
1992 tók hann svo við embætti
utanríkisráöherra eftir að hinn
gamalreyndi Francisco Fernand-
ez Ordonez varð að láta af störf-
um vegna veikinda.
Sumir stjórnmálamenn á
Spáni hafa verið þekktir fyrir
þab að eiga erfitt með að koma
Forsetakosningar í Alsír í dag:
Bebib milli
ótta
vonar og
Algeirsborg — Reuter
Fjöldi Alsírbúa sagöist í gær vera
oröinn dauðþreyttur á ofbeldinu
sem ríkt hefur í landinu undanfar-
ið, og benti þaö til þess ab margir
myndu mæta á kjörstað í dag þrátt
fyrir ab íslamskir bókstafstrúar-
menn hafi hvatt fólk til að sitja
heima.
Margir létu í ljósi vonir sínar um
að kosningarnar gætu orðið fyrsta
skrefið í áttina til þess ab stríbs-
ástandinu sem ríkt hefur í landinu
undanfarin fjögur ár ljúki, en allt
að 50.000 manns hafa látiö lífið í
átökunum, sem upphófust fljót-
lega eftir að þingkosningum í
landinu árið 1992 var aflýst þegar
í ljós kom að íslamskir bókstafstrú-
armenn myndu ná vinna mikinn
sigur í þeim.
„Ég vona aö kosningarnar leiöi
til breytinga: Breytinga á stöbu ör-
yggismála, sem þýöir endalok
hryðjuverkanna, ekki síður en
breytinga á stöðu félags- og efna-
hagsmála," sagði leigubílstjóri í
Algeirsborg. „Viö höfum fengið
meira en nóg af ofbeldinu."
Stjórnvöld vonast til þess aö
kosningaþátttaka verði góð, og
það veiti þeim stuðning í baráttu
sinni gegn bókstafstrúarmönnum.
Þau vonast einnig til þess aö nú-
verandi forseti, Lamine Zeroual
sem komst til valda áriö 1994 með
stuöningi hersins, vinni sigur.
Þrír frambjóöendur aö auki eru í
kjöri: Mahfoud Nanhan, sem er
leiðtogi Hamas, löglegs flokks ís-
lamskra bókstafstrúarmanna; Said
Saadi, sem er harður andstæðing-
ur bókstafstrúarmanna; og Nour-
eddine Boukrouh, sem hófsamur
íslamskur menntamaður.
Frelsisfylking Islams (FIS), sem
er í útlegö, hefur ásamt helstu
stjórnarandstöðuhópum landsins
eindregiö hvatt til þess að almenn-
ingur hunsi kosningarnar og skor-
ar á stjórnvöld aö hefja viöræður
til að finna lausn á vandanum sem
haldiö hefur landinu í helgreipum
undanfarin fjögur ár.
sér beint að efninu og glata sér í
málskrúði og fagurgala, en Sol-
ana er talinn vera algjör and-
stæba slíkra manna. „Ég hef ver-
ið á fundum meb honum þar
sem augljóst er að hann mætir
til Ieiks með fullbúna málefna-
skrá í höfðinu. Hann vindur sér
beint í málin: búmm, búmm,
búmm — þetta er þab sem við
þurfum að taka fyrir," segir einn
embættismaðurinn.
Þrátt fyrir að Solana sé einn af
þungavigtarmönnum flokksins
hefur hann oft átt í deilum vib
hreinstefnumenn í flokknum,
en þar fer í fararbroddi varafor-
maðurinn, Alfonso Guerra. Sol-
ana er því fylgjandi að að velja
megi fjölbreyttan hóp fólks með
ólíkar skoðanir til forystu í
flokknum, á meðan „Guerrist-
arnir" svonefndu vilja halda sig
við skoöanabræður sína úr röö-
um hefðbundinna sósíalista.
í sömu vikunni og hann tók
vib utanríkisráðuneytinu var
honum varpað beint inn á leið-
togafund Evrópusambandsins,
og síðan má segja ab hann hafi
hvorki getað litið upp né horft
til baka. Hann var í forystu fyrir
Spáni á fundi Spánar, Portúgals
og Bandaríkjanna árið 1992,
mótaði stefnu Spánverja í mál-
efnum Bosníu og var í forsvari
þeirra í allnokkrum fiskveiði-
deilum, auk þess sem hann hef-
ur boriö hitann og þungann af
forsætistíma Spánar í Evrópu-
sambandinu. ■
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Rannsóknastofa
Evrópu í sameinda-
líffræöi — Styrkir til
doktorsnáms
A hverju ári eru veittir um 20 styrkir til doktorsnáms á
ýmsum sviðum sameindalíffræbi við EMBL (European
Molecular Biology Laboratory) í Heidelberg. Styrkirnir eru
veittir til 3 1/2 árs. Nánari upplýsingar, umsóknareyðu-
blöð og kynningarbæklingar fást hjá Dean of Graduate
Studies, EMBL, Postfach 10.2209, D-69012 Heidelberg,
Þýskalandi, bréfasími: 00 49 6221 387555, tölvupóst-
fang: Clay@embl-heidelberg.de, veffang: http://www.
embl-heidelberg.de/Externallnfo/PhdProgramme/PhD
1aacontents.html.
Umsóknarfrestur rennur út 15. janúar ár hvert og er styrkj-
um úthlutaö þremur mánuðum síðar. Miðað er við ab
styrkþegar hefji nám eigi siðar en 1. október.
Menntamálaráðuneytið,
15. nóvember.
r
BLAÐBERA VANTAR
á AKUREYRI í mibbæ og á Eyrina
Upplýsingar í síma 462-7494
Frá Kaupfélagi Borgfirðinga:
Hin mögnuðu vikutilboð
félagsins birtast alltaf
á baksíðu Pésans.
IIIISM*.
Þau gilda í eina viku,
nema birgðir þrjóti fyrr.
*
Ibúum höfuðborgarsvæðisins
bendum við á áætlunarferðir
Sæmundar frá Umferðarmiðstöðinni.
Hangiframpartur
sagaður Saltkjöt
359.*, 349,r,,
Kjúk/ingar
499,r,
Cirkel kaffi
299,^
Ha ndryksuga
1.495,-
Jogginggalli
barna
Vöruhús KB
Borgarnesi
MSgrautar Hreinn
125.& appelsínusafi
Kryddbrauð
99 - Sængurverasett QQQ
890,- ptfr
Ulpa ' “
m. fTeece-peysu _ . .
Tertudiskur
$$90,~ 399,- M
VikutilboÖ Vöruhúss KB birtast hér í hverri viku.
Pau ffl'/da í eina vilcu frá n.k. fimmtudagsmorgni- eða meðan birgðir endast.
ngaam
pfko,-
1.900,-
Ke rtaskál
I9,-
«7,1