Tíminn - 29.12.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 29.12.1995, Blaðsíða 3
Föstudagur 29. desember 1995 3 Þorgeir Magnússon, einn fjölmargra nýrra flugstjóra í innanlandsfluginu: Ekkert a 5 óttast fyrir farþega okkar Flugfarþegar á komandi ári hafa ekkert aö óttast þegar þeir feröast um landiö. Nokkuö hefur boriö á aö reynt sé aö læöa aö ótta hjá fólki um framtíöina vegna breytinga á störfum í flug- umferöarstjórn. Tíminn ræddi í gær við Þorgeir Magnússon, einn fjölmargra nýrra flugstjóra Flugleiöa á innanlandsleiöum félagsins. Þorgeir sagöi aö auövitaö yröi hér eftir sem hingab til fyllsta öryggis gætt í flugi fé- lagsins, engin ástæöa væri til aö óttast neitt annað. Flug- málastjórn er sama sinnis. „Það sem þetta hefur helst í för meö sér er óhagræðið fyrir flugrekendur, en auk þess dá- lítið öðruvísi vinna fyrir okk- ur, viö þurfum að fylgjast enn betur meö. Þetta verður kannski ekki alveg sama um- hverfi hjá okkur og áður, en þó ekki á annarri plánetu. Flugstjórinn er endanlega ábyrgur fyrir sinni flugvél eins og ævinlega, bæði gagnvart aðskilnaöi viö önnur loftför, samskipti við jörðu og annaö. Enginn flugumferöarstjóri tek- ur þá ábyrgö af flugstjóra," sagði Þorgeir Magnússon en hann hefur 18 ára reynslu sem flugmaður hjá Flugfélagi ís- lands og síöar Flugleiðum. Þorgeir sagði að sér sýndist málið nokkuð blásiö upp og væri á tilfinningalegum nót- um. Aðalatriðiö núna væri að leysa deiluna málefnalega. Flugmálastjórn segir að þeg- ar 82 flugumferðarstjórar hætta störfum um áramótin verði þær breytingar að veitt veröi flugupplýsingaþjónusta yfir landinu í stað flugstjórn- arþjónustu. Grundvallarregla í flugi sé að flugstjóri beri ábyrgð á öryggi loftfars síns. Flugmenn í innanlandsflugi muni hér eftir sem hingað til fá allar sömu upplýsingar um flugumferð á svæðínu. Haldið verður uppi eftirliti með flug- umferð yfir landinu með rat- sjá. Það sé af og frá að halda því fram að flugmenn muni ekki fá jafngóðar upplýsingar um flugumferö og þeir hafa núna. Flugmálastjórn bendir á að flugupplýsingaþjónusta sé ekki ný af nálinni. Flugmenn hafa notað slíka þjónustu á ísafjarðar- og Egilsstaðaflug- völlum sem og á öðrum áætl- unarflugvöllum landsins, nema í Reykjavík, Akureyri og í Vestmannaeyjum. Þessa þjónustu þekki íslenskir flug- menn einnig frá störfum sín- um utan íslands. -JBP Rauöi Kross Islands sendir börnum í Bosníu: Sjö tonn af vetrarfatnaöi Rauði Kross íslands sendir sjö tonn af vetrarfatnaði fyrir börn til Bosníu-Hersegóvínu milli jóla og nýárs en fata- sendingin er kostuö úr sjóbum landssöfnunarinnar Konur og börn í neyð sem RKÍ stóö fyrir í byrjun september. í sending- unni eru yfirhafnir, peysur, úlpur o.fl. Hólmfríður Garðarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, hefur starfað síðastliðna 3 mánuði í Bijeljina í Bosníu-Hersegóvínu sem sendifulltrúi RKÍ. Hún segir fatasendinguna áreiðanlega koma sér vel þó að ástandið sé nú rólegt eftir að skrifað var undir friðarsamningana. „Þaö er töluvert um flóttamenn á þessu svæði en aðstæður þeirra eru mismunandi." Hólmfríður segir að aðstæður séu erfið;,'tar fyrir nýja flóttamenn enda hörgull á viðunandi húsnæði fyrir þá og oft á tíðum þurfi þeir að koma sér fyrir í eyðilögðum húsum en til að byrja með er þeim komið fyrir í skólum, íþróttahúsum eða slíku. Aðstaðan þar sé auö- vitað ekki eins og fólk á að venj- ast en þar sé þó dýnur, teppi og mat að fá. Helsta vandamálið, þar sem svo margir eru saman komnir, sé hins vegar hvort sal- ernisaðstaða sé nægilega góð og vatnið í lagi. Veturinn í Bosníu er nokkuð svipaður og hér á landi og hann kom nokkuö snögglega eftir langt og milt haust. Því varð fólk að setja sig niður og í til- kynningu frá RKÍ segir að fólk búi þúsundum saman viö óvið- unandi aðstæöur, hafist viö í skýlum, sofi undir segldúkum, í farartækjum og kofum án upp- hitunar. -LÓA Samningar um debetkort vib Póst og síma innsiglaöir. Frá vinstri: Cubmundur Björnsson, abstobar póst- og síma- málastjóri, Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, Einar S. Einarsson, forstjóri VISA, Andri V. Hrólfsson, for- stöbumabur markabsþjónustu VISA. Debetkort: Samningar við Póst og síma í höfn VISA ísland hefur samiö viö Póst og síma um viötöku debetkorta til greiðslu á öllum pósthúsum og símstöðvum landsins. Með samn- ingi við Póst og síma þann 30. nóvember sl. má segja að rafræn debetkortaviðskipti nái til allra stærstu sölu- og þjónustuabila landsins, en notkun þeirra hefur farið hraðvaxandi á undanförn- um tveimur árum og þau leyst tékka- og pappírsviðskipti af hólmi í stórum stíl. Nú er ab mestu lokið ab setja upp „posa" hjá a.m.k. 10 pósthúsum á höfuöborgarsvæðinu og nokkrum helstu þéttbýliskjörnum úti á landi og debetkortaviðskipti þar komin á skrib. Fyrstu debetkortin voru gefin út 7. desember 1993, en eru síöan orbin um 140.000 talsins, þar af rúmlega 100.000 Visa Electron. ■ Austurríkismenn ekki hættir vi5 kaup á Sorpu íslenskur umboðsmabur austur- ríska fyrirtækisins Rupert Hofer, Jónas Hagan Guðmundsson, vill taka fram, í framhaldi af umræð- um í borgarstjórn Reykjavíkur 21. desember sl., ab tilbob fyrirtækis- ins í Sorpu hafi gert ráð fyrir því ab reksturinn yrbi leigður Rupert Hofer að öllu leyti eða hluta til, eftir því sem eigendum Sorpu þætti best. „Þetta tilboö var því þannig úr garði gert ab ekki þyrfti aö breyta rekstrarfyrirkomulagi Sorpu og er þaö því rangt aö rekstrarfyrirkomu- lag umrædds fyrirtækis hafi staðið í vegi fyrir viðræöum borgaryfirvalda við Austurríkismenn," segir í frétta- tilkynningu frá umboösmannin- um. Ennfremur segir í tilkynningunni ab Rupert Hofer hafi ekki hætt viö nein áform um kaup á Sorpu, en hins vegar hafi fyrirtækið ákveðið að draga sig í hlé á meðan nefnd um breytingar á rekstri Sorpu sé að störfum. Fyrir liggi tilbob hins aust- urríska fyrirtækis um að leggja þeirri nefnd lið. Svar við því tilboði hafi ekki borist og hafi þau vinnu- brögð vakið nokkra undrun ráöa- manna Ruperts Hofers. ■ Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. janúar 1996 er 22. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 22 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini = kr. 564,20 tl It 10.000 kr. skírteini = kr. 1.128,40 tt II 100.000 kr. skírteini = kr. 11.284,00 Hinn 10. janúar 1996 er 20. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 20 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.044,00 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1995 til 10. janúar 1996 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. janúar 1996. Reykjavík, 29. desember 1995 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.