Tíminn - 04.01.1996, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.01.1996, Blaðsíða 9
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA Fimmtudagur 4. janúar 1996 mtaátm 9 Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs árs viljum við minna á nokkur atriði sem máli skipta á árinu 1996. Sumt er þar óbreytt frá síðasta ári en annað hefur tekið nokkrum breytingum Skatthlutfall skattafsláttur 1996 Skatthlutfall staðgreiöslu breytist lítillega frá og með 1. janúar 1996 og verður 41,94%. Persónuafsláttur breytist hins vegar ekki frá því sem hann var síðustu sex mánuði ársins 1995 og verður áfram 24.544 kr. á mánuði Sama gildir um sjómannaafsláttinn sem verður áfram 689 kr. á dag. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1981 eða síðar, verður áfram 6% í staðgreiðslu. Fjárhæð launatekna barna sem halda má utan staðgreiðslu er einnig óbreytt frá síðasta ári eða 77.940 kr. Fjárhæðir húsnæðissparnaðarreikninga sem gilda vegna innborgana á árinu 1996 eru þessar: Lágmarksfjárhæð verður 11.714 kr. pr. ársfjórðung og 46.856 kr. pr. ár. Hámarksfjárhæð verður 117.140 kr. pr. ársfjórðung og 468.560 kr. pr. ár. Þá verður sú breyting að tryggingagjald breytist frá og með 1. janúar og verður nú 6,93% og sérstakur flokkur 3,63%, Lífeyrissjóðsiðgjald í staðgreiðslu 1996 Sú breyting verður einnig að vegna launatímabilsins 1. janúar til 30. júní 1996 skal halda utan staðgreiðslu 75% af lífeyrissjóðsiðgjaldi (þ.e. framlagi launþegans), þó ekki hærri fjárhæð en 3% af launum. Frá 1. júlí má halda utan staðgreiðslu öllu framlagi launþegans en þó ekki hærri fjárhæð en 4% af launum. Frá og með 1. janúar er ekki lengur heimilt að halda utan staðgreiðslu 15% af greiðslum úr lífeyrissjóðum til lífeyrisþega sem eru 70 ára eða eldri. Verðbreytingarstuðull Ríkisskattstjóri hefur reiknað verðbreytingarstuðul fyrir árið 1995 og er hann 1,0321 miðað við 1,0000 árið 1994. Vísitala jöfnunarhlutabréfa Hér má sjá vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1996 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. Skilafrestur ýmissa gagna Huga þarf í tíma að ýmsum gögnum sem skila þarf nú í upphafi árs og fyrr en varir er komið að endanlegum skilafresti. Hér má sjá skilafrest ýmissa gagna vegna greiðslna o.fl. á árinu 1995: 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1. janúar 1980 vísitala 1981 vísitala 1982 vísitala 1983 vísitala 1984 vísitala 1985 vísitala 1986 vísitala 1987 vísitala 156 247 351 557 953 1.109 1.527 1.761 anúar 1988 vísitala 2.192 anúar 1989 vísitala 2.629 anúar 1990 vísitala 3.277 anúar 1991 vísitala 3.586 anúar 1992 vísitala 3.835 anúar 1993 vísitala 3.894 anúar 1994 vísitala 4.106 anúar 1995 vísitala 4.130 anúar 1996 vísitala 4.245 X I. Tll og með 21. janúar 1996: III. Til og með 15. maí 1996: 1. 2. 3. 4. 5. II. 1. 2. Launamiðar ásamt almennu launaframtali. Á launamiðum komi m.a. fram greiðslurtil verktaka fyrir efni og vinnu. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt samtalningsblaði. Greiðslumiðar vegna lífeyrisgreiðslna, tryggingabóta o.þ.h. Til og með 20. febrúar 1996: Gögn frá lífeyrissjóðum þar sem sundurliðuð er greiðsla iðgjalda sjóðsfélaga. IV. Til og með síðasta skiladegi skattframtala 1996: 1. Greiðslumiðar fyrir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laganna. 2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert og í gildi voru á árinu 1995 vegna fjármögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina. Afurða- og innstæðumiðar ásamt samtalningsblaði. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði. RÍKISSKATTSTJÓRI Æskilegt er, en þó í samráði við skattstjóra, að upplýsingum á launamiðum sé skilað á tölvutæku formi. Geymið auglýsinguna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.