Tíminn - 04.01.1996, Blaðsíða 10

Tíminn - 04.01.1996, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 4. janúar 1996 Framsóknarflokkurínn Heimsóknir þingmanna Framsóknarflokksins í Reykjanesi Dagana 8.-16. janúar 1996 munu þingmennirnir Siv Fribleifsdóttir og Hjálmar Arnason heimsaekja félög og stofnanir í Reykjaneskjördæmi. Nánari upplýsingar verba veittar hjá formönnum félaganna á hverjum staö. Vinsamlegast hafiö sam- band viö þá ef óskaö er eftir upplýsingum. Stjórn KfR Vinningar í Jóla- kortahappdrætti H.H.Í. jólin 1995 Tælandsferðin kom á miba nr. 42452B 20 gjafabréf 40 bækur, 40 geisladiskar á veitingahús, Vaka-Helgafell, frá Japis kr. 6000 hvert kr. 3000 hver kr. 2000 hver 2556 627 17993 1050 15591 4720 2126 18692 1816 17633 4846 2430 18827 2082 17901 8153 2916 19580 2497 19787 8212 2933 20526 3477 21511 10234 3552 25089 5227 22082 13761 4048 25196 5687 22582 18840 4507 25313 8023 24991 18872 5976 25620 8565 25836 19210 7765 27950 9702 26645 19666 8240 28263 9748 27056 24253 9687 31381 10127 27864 24839 9745 33174 10674 33508 26460 11035 33380 11754 34808 27284 12225 33848 12254 35016 28656 13166 34279 12744 35866 29080 14208 35202 12847 36121 33122 16626 36514 13132 36773 36310 16963 36758 13849 36934 39980 37710 37855 14651 39311 Absendar greinar scm birtast ciga í blaöinu þurfa aö vcra tölvusettar og vistaöar á diskling scm texti, hvort sem cr í DOS cöa Macintosh umhvcrfi. Vélrit- aöar eöa skrifaöar greinar geta þurft aö bíöa birtingar vegna anna viö innslátt. wm Innilegar þakkir sendum viö öllum er sýndu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför Gubmundar Jónssonar frá Gunnlaugsstööum Guö blessi ykkur öll. Kristrún Inga Valdimarsdóttir Þóröur Einarsson |ón Þ. Guömundsson Jórunn H. Jónsdóttir Valdimar Guðmundsson Elsa Þorgrímsdóttir Siguröur Guömundsson Sólrún Káradóttir Jófríbur Guömundsdóttir Ingigeröur Guömundsdóttir og barnabörn (------------------------------------------------------^ Í Olína Margrét Magnúsdóttir kennari Kinnarstööum sem lést 30. desember síöastliöinn, verður kvödd frá Reykhólakirkju laug- ardaginn 6. janúar kl. 14.00. Jarðsett verður í Staöarkirkjugaröi. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Dvalarheimiíið Barmahlíö, Reykhólum. Sætaferö veröur frá Umferðarmiðstööinni kl. 8.00 sama dag. Fyrir hönd vina og vandamanna, Steinunn Erla Magnúsdóttir v_________________________Z____________________________/ Guðrún Gubmundsdóttir Fædd 13. nóvember 1946 Dáin 22. desember 1995 Hún kom ekki á óvart, andláts- fregn Guörúnar Guðmunds- dóttur. Þó reynist erfitt að gera sér grein fyrir því aö hún er ekki lengur meðal okkar. Árum sam- an vissum við sem til þekktum að hún barðist hetjulegri bar- áttu við hættulegan sjúkdóm, en trúbum lengst af ab hún mundi hafa betur meö hjálp nú- tíma vísinda, sínum jákvæðu viðhorfum og fádæma vilja- styrk. En baráttunni lauk með jafntefli. Aldrei laut hún í lægra haldi og hélt sínu mikla andlega þreki og styrk þar til yfir lauk. Guðrún lést á sjúkrahúsinu á Hólmavík föstudaginn 22. des- ember s.l. Hún hvarf yfir mób- una miklu á fyrsta degi hækk- andi sólar, þegar hátíð ljóss og friðar gengur hér í garö. Hvab hinum megin bíöur er hulið okkar ófullkomnu sýn, en ég held þó að okkur sem á eftir komum sé ávinningur að slík- um fulltrúa. Guðrúnu man ég fyrst fyrir um þrjátíu og fimm árum, fal- lega, alvörugefna unglings- stúlku í heimsókn hjá vanda- mönnum á Hólmavík, en for- eldrar hennar voru þá flutt suð- ur fyrir nokkrum árum. Ung kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Gubmundi Ragnari Jóhannssyni frá Hólma- vík. Þau stofnuðu heimili í Kópavogi og þar fæddust þrjár elstu dæturnar, Ragnheiður, Ingimunda og Jóhanna. En eitt- hvað var það sem togaði í norð- ur til átthaganna og fyrir tæp- um 18 árum brugðu þau á það ráð að flytja norður til Hólma- t MINNING víkur. Þar fæddist þeim yngsta dóttirin María Mjöll. Að Austurtúni 2 byggðu þau sér glæsilegt íbúðarhús með fal- legri og vel hirtri lób. Þar ber allt dugnaði og smekkvísi húsráð- endanna vitni. Þarna ræktuðu þau garðinn sinn í þess orbs fyllstu merkingu. Allt í röð og reglu. Heimilið og velferð barn- anna í fyrirrúmi. Og svo komu barnabörnin. Þau eru nú orðin 5 og fyrir þau er líka nóg rými í húsi og í hjarta. Á Hólmavík hefur Guðmundur jöfnum höndum stundað sjóinn og ibn sína, en hann er múrari að mennt, en Guðrún var mörg síðustu árin gjaldkeri við útibú Búnaöarbankans, ásamt um- sýslu heimilisins. Kynni mín af Guðrúnu hófust þegar við fyrir mörgum árum lentum saman í sóknarnefnd Hólmavíkursóknar. Um það leyti vantaði meðhjálpara í Hólmavíkurkirkju. Ég man að við meðnefndarmenn Guðrún- ar lögðum fast að henni að taka starfið að sér og hún lét að lok- um til leiðast. Mér er líka minn- isstætt hvað starfið var vel af hendi leyst og framgangan virðuleg og örugg. Heppnari hefðum við ekki getað verið í vali á meðhjálpara. Þannig var öllu skilað sem hún tók sér fyrir hendur. Seinna unnum við saman á vettvangi sveitarstjórnarmála í byggingarnefnd og hrepps- nefnd Hólmavíkurhrepps. Þar komu eöliskostir hennar ekki síður í ljós. Reynt að vinna öll verk vel. Ekki flanað að neinu. Öll mál athuguð af nákvæmni og velvild. Stutt í græskulausa kímni. Með þannijg fólki er gaman að vinna. I minning- unni verður þakklæti efst í huga. Og nú er hún horfin á besta aldri, þessi glæsilega kona. í okkar litla samfélagi er stórt skarð fyrir skildi. Sárastur er þó missirinn hjá ástvinunum, eig- inmanninum, dætrunum, tengdasonunum og barnabörn- unum. Guð gefi þeim styrk og þor. Mín huggunarorð eru létt- væg. En minningin lifir. Geym- ið hana og minnist þess að eng- inn getur misst mikið nema sá sem hefur átt mikið. Og minn- inguna um Guðrúnu Guð- mundsdóttur er gott ab geyma. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur öllum innilega samúð. Brynjólfiir Sœmunclssoti NÝJAR BÆKUR Eigulegur minja- gripur Iceland Review hefur sent frá sér nýja bók. Hún er gefin út á ensku og heitir Iceland's Treasur- ed Gifts of Nature. Hér er fyrst og fremst um lítinn en eigulegan minjagrip að ræða þar sem nokkrar helstu náttúru- perlur landsins skarta sínu feg- ursta. í bókina voru valdir tuttugu og fimm staðir, sem sýna sérstætt landslag og fjölbreytni íslenskrar náttúru, og þeim gerð skil í máli og myndum. Páll Stefánsson ljósmyndari tók allar myndirnar og þeim fylgir stuttur texti með ýmsum fróð- leiksmolum og lýsingu á hverjum stað, sem Páll Asgeir Ásgeirsson skrifaði. Bókin er prentuð í Prentsmiðj- unni Odda hf. Hún er 57 blaðsíð- ur og kostar 980 krónur. Frumsamin ljób og þýdd Út eru komnar bækurnar Mis- væg orð og Af erlendum tungum II eftir Braga Sigurjónsson. Bragi lést 29. október á þessu ári, en hefði annars orðið 85 ára 9. nóv- ember sl. Misvæg orð er tíunda ljóbabók Braga. Fyrsta ljóðabók hans, Hver er kominn úti?, kom út árið 1947. í Misvægum orbum íhugar höfundurinn hvort tíminn sé skynvilla, það sé eilífðin sem sé staðreyndin, óskiljanleg fávísum en engu ab síður hugsanleg og veki bæði ótta og þrá hjá mann- inum. Hann yrkir um glímu mannsins við mistök sín og spurninguna um tilvist æðri máttarvalda. Þá yrkir hann um fegurð náttúrunnar. Að bókarlok- um kvebur hann upp úr með að hann dreymi ekki um annaö sumar, sé engin von til þess að mæta aftur því sem honum hafi veist fegurst og dýrmætast í líf- inu. Flest Ijóöin í bókinni eru háttbundin og stuðluð. Af erlendum tungum II er ann- að bindi ljóðaþýðinga eftir Braga Sigurjónsson. Fyrsta bindið kom út árið 1990. Eins og í þeirri bók eru allar þýðingarnar úr ensku og Norðurlandamálum. Hér eru þýdd ljóð úr ensku eftir John Milton, Sir Walter Scott, A.C. Swinburne, Laurence Binyon, John Masefield og Joseph Camp- bell, úr norsku eftir Rolf Jacob- sen, Olav H. Hauge, Ivar Org- land, Gunvor Hofmo, Harald Sverdrup og Stein Mehren, úr dönsku eftir Harald Bergstedt og Tove Ditlevsen og úr sænsku eftir Bo Carpelan. I.jóðin eru bæði í bundnu og óbundnu formi. Bækurnar eru prentaðar hjá Ás- prenti á Akureyri, sem einnig sér um dreifingu. Ný hljóðbók: Undir fjalaketti Út er komin hjá Hljóðbóka- klúbbnum ný skáldsaga eftir Gunnar Gunnarsson, sem ber heitiö Undir fjalaketti. Umgjörð sögunnar er litla leikhúsið við Tjörnina þar sem menn eru jafn- an á tímamótum, en leikarinn Guðlaugur Bergmann Lárusson I — þjóðkunnur fyrir sinn smit- andi hlátur — á sér trúlega þján- ingarbræður og -systur á flestum sviðum þjóðfélagsins. Stíll sög- unnar er hrabur og atburðarásin spennandi, enda minnir þar margt á sakamálasögur. Hér er þó um dýpri lýsingu að ræða og les- andinn kynnist persónu og hlut- skipti leikarans, þar sem vanga- veltur aðalpersónunnar skiptast á við lifandi og gamansama frásögn af lífinu í leikhúsinu. Þegar til tíð- inda dregur, koma þau lesandan- um á óvart. Undir fjalaketti er á 5 snældum, um sjö og hálf klukkustund í flutningi, og það er höfundurinn, Gunnar Gunnarsson, sem les. Undir fjalaketti er jafnframt gefin út á prenti, en útgefandi hljóbbókarinnar er Hljóðbóka- klúbburinn. Um hljóöritun og fjölföldun sá Hljóbbókagerð Blindrafélagsins. Hljóðbókin verður fyrst um sinn aðeins seld félögum í Hljóð- bókaklúbbnum og kostar 1.995 krónur. Heimspeki á alþýblegu máli Afarkostir eftir Atla Harðarson er nú komin út hjá Háskólaútgáf- unni og er hún þriðja bókin í rit- röð Heimspekistofnunar. Afar- kostir hefur ab geyma 22 greinar um evrópska heimspeki, sögu hennar, vandamál, kenningar og úrlausnarefni. Bókin er skrifuö til ab kynna heimspeki fyrir al- menningi og er textinn því á al- þýðlegu máli og ab mestu laus viö tæknileg hugtök. Heiti bókarinn- ar er dregið af því hvernig heim- spekin bannar mönnum öll und- anbrögö og setur hugsun þeirra afarkosti. Bókin kostar kr. 1950 og er 126 bls.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.