Tíminn - 20.01.1996, Síða 6

Tíminn - 20.01.1996, Síða 6
6 -1.- mmmm Laugardagur 20. janúar 1996 Stefnt ab því aö stöbva útgjaldaaukningu til félagsmála i fjárhagsáœtlun Reykjavíkur: Tekjur íbúa í leiguíbúðum endurmetnar eftir þrjú ár Reykjavíkurborg hefur sagt upp öllum ótímabundnum leigusamningum um leigu- íbúbir borgarinnar. Stefnt er aö því ab hækka innheimtu- hlutfall fyrir heimaþjónustu úr 6% í 10%. í frumvarpi ab fjárhagsáætl- un Reykjavíkurborgar er gert ráb fyrir ab rekstrargjöld til fé- lagsmála verbi 1.467,6 milljón- ir króna á árinu, sem er rúm- lega 13 milljónum króna lægri upphæb en fór til málaflokks- ins á síbasta ári. Náist þetta markmib, verbur um umtalsverba breytingu ab ræba, þar sem útgjöld til þessa máiaflokks hafa hækkab svo skiptir tugum milljóna á milli ára allan þennan áratug. Rekstrargjöldin hækkubu t.d. um tæpar 110 milljónir á milli áranna 1994 og 1995 og um svipaba upphæb á milli áranna 1993 og 1994. Gubrún Ögmundsdóttir, for- mabur Félagsmálarábs, segir ab þetta markmib eigi fyrst og fremst ab nást meb almennri hagræbingu í öllum rekstri, einkum þó innan Félagsmála- stofnunar. Gubrún nefnir einnig, ab stefnt sé ab því ab hækka inn- heimtuhlutfall fyrir heima- þjónustu. í dag innheimtast um 6% af kostnabi vib þjónust- una, en stefnt er ab því ab hækka hlutfallib í 10%, sem Gubrún segir vera þab hlutfall sem önnur sveitarfélög nái. Þessi hækkun á ab nást án þess ab til komi hækkun á gjaidskrá. Húsnæbismál verba einnig skobub frá grunni, ab sögn Gubrúnar. M.a. verbur gert átak í því ab koma hreyfingu á leiguíbúbir í eigu borgarinnar. Borgin á nú 1170 leiguíbúbir og segir Gubrún ab hingab til hafi verib gerbir ótímabundnir leigusamningar þegar íbúbum er úthiutab. Búib er ab segja öll- um slíkum samningum upp og gera nýja samninga til þriggja ára. Stefnt er ab því ab endur- meta abstæbur fólks ab þeim tíma loknum, til ab íbúbirnar nýtist örugglega þeim sem mest þurfa á ab halda. Gubrún segist einnig telja eblilegt ab skobab verbi hvort hækka eigi leigu fyrir íbúbirnar, en hún Frá borgarstjórn. nemur nú í hæsta lagi 16 þús- und krónum á mánubi. Jafn- framt verbi gengib harbar eftir því en ábur ab fólk greibi leig- una. Síbastlibin fimnr ár hefur ver- ib gefin út aukafjárveiting vegna fjárhagsabstobar á veg- um Félagsmálastofnunar á síb- ari hluta ársins. Gubrún segir skýringuna vera þá ab í áætlun- um hafi ekki verib gert ráb fyrir sjálfvirkri hækkun á þessum lib á milli ára. í nýrri fjárhagsáætl- un er reiknab meb 628,7 millj- ónum til fjárhagsabstobar og segist Gubrún ekki gera ráb fyr- ir ab sú tala komi til meb ab hækka þegar líbur á árib. „Ég á ekki von á ab þörfin muni aukast á þessu ári frá því síbasta. Þar hefur atvinnu- ástandib mest ab segja, en vib teljum ab þab muni lagast þeg- ar líbur á árib. Eins á ég von á ab bobib verbi upp á fleiri nám- skeib fyrir atvinnulausa, sem muni þýba ab færri fari á bóta- laust tímabil." -GBK Heilsdagsrýmum á leikskólum Reykjavíkur fjölgar um 350-400 á árinu: Aðallega eins árs börn á biölista um áramótin Framkvæmdir á svibi leik- skóla og skólamála halda áfram í Reykjavík á þessu ári. Reiknab er meb ab heilsdags- rýmum á leikskólum fjölgi um 350-400 á árinu. Stærsta verkefnib í skólamálum er bygging Engjaskóla. A síbasta ári var um 415 millj- ónum króna varib til byggingar leikskóla í Reykjavík og hækk- abi fjárveitingin þá um 90% frá árinu 1994. Heilsdagsrýmum á leikskólum fjölgabi um 400 á ár- inu, sem skilabi sér í því ab börnum á biölista fækkabi um 150-200. Einnig var gerö sú breyting, ab nú eiga öll börn rétt á heilsdagsrými, en ekki aö- eins börn einstæöra foreldra. Á þessu ári er reiknaö meö ab verja 393 milljónum króna í framkvæmdir vib leikskóla. Byrjaö verbur á a.m.k. tveimur nýjum leikskólum og byggt vib einhverja eldri skóla. Gert er ráb fyrir ab heilsdagsrýmum fjölgi á árinu um 350-400. í lok þessa árs má því ætla aö biölisti Dag- vistar barna samanstandi aöai- lega af eins árs börnum. Stefnt er aö því ab allir grunn- skólar borgarinnar veröi ein- setnir árib 2001. Þegar eru 11 skólar af 28 skólum borgarinnar einsetnir og er gert ráö fyrir aö þrír bætist vib á árinu. Alls fara 830 milljónir króna til stofn- kostnaöar skólamála á þessu ári. Stærsta einstaka verkefnib í þeim málaflokki er bygging Engjaskóla og nemur kostnaöur vib hana 230 milljónum króna. -GBK Mikil þörf fyrir hjúkrunarrými aldraöra í Reykjavík, þrátt fyrir áframhaldandi uppbyggingu á árinu: 160 á biölista í mikilli þörf Haldib verbur áfram meb byggingu Skógarbæjar, hjúkr- unarheimilis aldrabra í Subur- Mjódd á þessu ári. Gert er ráb fyrir svipubum rekstrargjöld- um á svibi öldrunarmála á þessu ári og því síbasta. Borg- arstjóri telur brýnt ab leita nýrra leiba í þjónustu vib aldr- aba. Rekstrargjöld til öldrunarmála veröa samkvæmt fjárhagsáætl- un þessa árs 668,1 milljón á móti 686 milljónum sem fóru til málaflokksins á síöasta ári. Stærsti einstaki liöurinn er heimaþjónusta viö aldraba, sem tekur til sín alls 317,3 milljónir. Haldiö verbur áfram byggingu hjúkrunarheimiiis í Suöur- Mjódd á árinu. Alls veröur 220 milljónum varib í bygginguna á árinu, en þar af er framlag úr framkvæmdasjóöi aldraöra 15 milljónir og reiknaö er meb 60 milljóna króna framkvæmdal- áni. Stefnt er ab því ab taka fyrstu 49 rýmin í notkun á næsta ári og ljúka byggingunni á árinu 1998. Alls veröa 79 rými á heimilinu, en til samanburöar eru 160 manns nú á biölista eft- ir hjúkrunarrými í mikilli þörf. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri leggur áherslu á aö þörf sé nýrra leiöa í þjónustu viö aldraöa. Hún bendir á aö jafnvel þótt borgin heföi fjármagn til ab byggja hjúkrunarheimili fyrir alla sem á þurfa ab halda, eigi ríkib erfitt meö aö reka þær lieil- brigöisstofnanir sem þegar eru til staöar. Hún bendir einnig á þá stab- reynd, ab aldrabir eiga oft í fjár- hagserfiöleikum þrátt fyrir aö eignarstaöa þeirra sé ab meöal- tali mjög góö. Þannig er meöal- eign fólks 67 ára og eldri (aö skuldum frádregnum) 11 millj- ónir króna. Tekjur þeirra eru hins vegar oft á tíöum iágar og því eiga margir í erfiöleikum meb ab greiöa gjöld af eignum sínum. Uppsafnaöur sparnabur aldrabra nýtist þeim þannig í mörgum tilfellum alls ekki. Borgarstjóri telur brýnt aö móta framtíöarstefnu í málefnum aldrabra, sem tekur á þessum vanda og gerir þeim kleift ab nýta uppsafnaban sparnab sinn. -GBK HofsstabaskóU: „Yfirborð" Listaverkib „Yfirborb" eftir Krist- in E. Hrafnsson var nýiega sett upp í Hofsstabaskóla, en Kristinn bar sigur úr býtum í samkeppni um listaverk í nýbyggingu Hofs- stabaskóia ásamt Siguröi Gub- mundssyni, sem á verk utan dyra. „Yfirborö" er unnið úr svörtu graníti og bronsi, en verkiö saman- stendur af litlum lágmyndum þar sem finna má firði, fjallgarða, jökla, eldfjöll og fleira sem gefa á eins fjöl- breytta mynd af yfirborðinu og hægt er. Lágmyndirnar hvíla á tveimur teningum, frumformum þrívíddarinnar. Vonast er til að verkið geti kveikt frjóar hugmyndir og þroskandi hugsun meðal nem- enda, en höfundur verksins sá í því margbrotna möguleika sem nota mætti við kennslu. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.