Tíminn - 20.01.1996, Blaðsíða 19

Tíminn - 20.01.1996, Blaðsíða 19
Laugardagur 20. janúar 1996 19 Daniel í föburhlu[verkinu. Hörkutólið kjassar ungann Frjóar umræður hafa verið uppi um viðhorf stórleikarans Daniels Day- Lewis til sonarins sem fædd- ist í apríl síðastliðnum. Sonurinn Gabriel er fæddur af fyrrum ástkonu hans, leikkon- unni Isabelle Adjani. Hjúin eru sögð hafa slitið sambandinu þegar Isabelle var komin á steypirinn, sökum þess að Daniel hafi átt erf- itt með að horfast í augu við þá ábyrgð sem fylgir því að ala upp barn. Sagan segir að Isabelle hafi ver- ið djúpt særð þegar Daniel sleit sambandinu, en það ku hann hafa gert í faxi þar sem fram kom að hann vildi ekkert meira með hana hafa. Þegar Daniel hitti son sinn í fyrsta sinn, þá þriggja vikna gamlan, beið Isabelle ein úti á gangstétt meðan á stefnumóti feðganna stóð. Hins vegar sýna myndirnar að Daniel hefur ekkert á móti því að eyða tíma með syni sínum — hvernig svo sem sam- bandi þeirra Adjani er háttað. Leð- urklæddi leikarinn sást þramma um götur St. Germain-hverfisins í l’arís, skammt frá íbúð Isabelle, þar sem hann kjassaði og brosti til drengsins eins og hver annar stoltur faðir. í SPEGLI TÍIVIANS Franska leikkonan Isabelle Adj- ani er fyrrum ástkona og barns- móbir Daniels Day-Lewis. Þau slitu samvistir þegar Isabelle var Þrátt fyrir hörkuna sem stafar af leburklcebnabinum, sýndi Daniel syni komin á steypirinn. sínum blíbu og umhyggju á gönguferb þeirra í París. Fréttir í vikulok Forsetaframboð: í þaö minnsta 11 bíða átekta Ekki færri en 11 manns, 8 karlar og 3 konur, íhuga nú í alvöru forsetaframboð 29. júní næstkomandi. Enginn fæst þó til að til- kynna formlega framboð sitt, en enginn þeirra vill heldur þver- taka fyrir að ganga fram fyrir þjóðina í forsetakjöri. Snjóplógar borgarinnar liggja nú óhreyfbir og spara borgarbúum þannig Stórfé. Tímamynd: bg 20-25 milljón króna sparnaður vegna veðurblíðunnar Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri segir veðurblíðuna sem verið hefur á höfuðborgarsvæðinu í vetur valda umtalsverð- um sparnaði þar sem saltkostnaður hafi verið mjög lítill og nán- ast engin leigutæki keypt. „Það sem hefur sparast fram að þessu gæti verið um 20-25 milljónir," sagði Sigurður. Fastakostnaður- inn sé hins vegur nokkub hár þar sem naubsynlegt sé að hafa menn í viðbragðsstöðu allan veturinn. Kosningabarátta forsetaefna: Gæti vel kostað 10-20 milljónir Miklar breytingar hafa átt sér stað á fjölmiðlun og kynningum síðan síðasta alvöru forsetakjör átti sér stað fyrir nærri 16 árum. Auglýsingar í fjölmiðlum og fjölmiðlaumræða kemur til dæmis í stað stórra framboðsfunda. Búast má því við að þeir sem stefna á framboð þurfi að greiða 10-20 milljónir fyrir kynningu á sér og sínum stefnumálum. Nýr valkostur í húsbréfakerfinu: Lán til 40 ára, greiðslubyrðin 17% léttari Reglugerð um sveigjanlegan lánstíma húsbréfa er komin frá fé- lagsmálaráöuneytinu. Héðan í frá á fólk kost á því að greiða lán sín á 15, 25 eða 40 árum ab eigin vali. Farið verður að afgreiða húsbréfalán samkvæmt nýju reglugerðinni á næstu dögum. Páll Pétursson félagsmálaráðherra sagbi ab 40 ára greiðslutímabil væri vissulega dýrari kostur en greiðsla á 15 eða 25 árum. Auðvit- að væri ódýrast að staðgreiða húsnæðiskaup, en það væri fjarlæg- ur kostur fyrir allan þorra fólks. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gluggar í frumvarp ab fjárhagsáœtlun Reykjavíkur ásamt Eggert jónssyni borgarhagfrœbingi og Helgu jóns- dóttur borgarritara. Tímamynd: bc Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar lögb fram Verulegur árangur hefur náðst í fjármálum borgarinnar ab mati borgarstjóra, en fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 1996 var lögð fram á fundi borgarstjórnar á fimmtudag. Arangurinn kem- ur einkum fram í því að tekist hefur að stöbva sjálfvirka útgjalda- aukningu á ýmsum sviðum og að hallinn á borgarsjóði verður í ár um 500 milljónir, og hefur hann ekki verið minni síðan 1990. Tekist hefur að minnka skuldasöfnun borgarsjóðs, einkum með því ab beita abhaldi og sparnaði á öllum svibum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.