Tíminn - 29.02.1996, Page 10
10
LANPBÚNAPUR
Fimmtudagur 29. febrúar 1996
f p
Lverneland
Frá bœnum Fribarstöbum í Hveragerbi, en þar hefur verib stundub vistvæn grœnmetisrœkt.
Kverneland plógurinn hefur unnið 20
heimsmeistarakeppnir í plægingum.
Við bjóðum öll jarðvinnslutæki frá Kverneland,
svo sem:
Allar stærðir af plógum frá 2 til 12 skera.
Pantiö tímanlega fyrir voriö
Leitió nánarí upptýsinga.
Brynjólfur Sandholt yfirdýralœknir flutti erindi á ráöunautafundi:
Reglur um eftirlit með
lífrænni framleiðslu
Ingvar
Helgason hf. vélasala
Sævartiöföa 2, SÍMI 525-8000
Aö undanförnu hefur veriö
vaxandi áhugi meöal bænda
hér á landi á ræktun lífrænna
og vistvænna iandbúnaöaraf-
uröa, en eftirspurn eftir líf-
rænt ræktuöum afuröum hef-
ur fariö mjög vaxandi á allra
síöustu árum. Markaösverö
þessara afuröa er hærra og
þær eru markaössettar meö
ábendingum þar sem fram
kemur aö þær séu framleidd-
ar á lífrænan hátt. Evrópu-
sambandiö og fleiri hafa sett
fram reglur um framleiöslu
og merkingu þessara afuröa
og eftirlit meö ræktuninni.
Brynjólfur Sandholt yfirdýra-
læknir flutti fyrirlestur um
þetta mál á rábunautafundi,
sem haldinn var nýlega, og
geröi þar grein fyrir í hverju
eftirlit er fólgið, miðab viö
þær reglur sem settar hafa
verib um þessa framleiðslu.
Brynjólfur segir aö öll fram-
leiðsla lífrænna afuröa verði að
uppfylla skilyröi, sem sett eru í
löggjöf viðkomandi lands, til
þess að geta merkt framleiðslu
sína sem lífræna. Framleiöend-
ur geti síðan sett strangari skil-
yröi og merkt framleiöslu sína í
samræmi viö það, en þó aðeins
eftir að hafa tilkynnt opinber-
um yfirvöldum kröfur þar aö
lútandi.
Þá skal framleiðandi, sem
hyggst taka upp framleiðslu líf-
rænna afuröa, tilkynna eftirlits-
aöila þaö. í framhaldi af því
skulu framleiöandi og eftirlits-
aðili gera skýrslu um fram-
leiösluaöferöir sínar og staði,
ásamt aðstöðu fyrir vinnslu og
pökkun afurðanna.
Framleiðanda er skylt að til-
kynna eftirlitsaöila árlega fyrir
ákveöinn dag framleiðsluáætl-
un sína. Hann skal halda
skýrslu sem gerir eftirlitsaðila
kleift að átta sig á uppruna, eðli
og magni hráefnis, sem keypt
er, og notkun þess. Einnig sé
honum skylt að færa skriflega
skýrslu um alla sölu afurða frá
búinu. Eftirlitsaðilinn skal
framkvæma fullkomið eftirlit á
staðnum, a.m.k. einu sinni á
ári, auk eftirlitsferða sem ekki
er tilkynnt um fyrirfram. Að
því loknu skal eftirlitsaðilinn
rita skýrslu, sem framleiðand-
inn skrifar einnig undir.
Eftirlitsaðilinn getur bæði
verið opinber aðili eða einkaeft-
irlitsaðili, en þarf þá að hafa
hlotið viðurkenningu opinbers
valds.
Einungis er heimilt að
merkja, auglýsa og dreifa líf-
rænt framleiddum landbúnað-
arafurðum að því tilskildu að
framleiðslu- og vinnustaðir hafi
verið undir eftirliti viður-
kenndrar vottunarstofu. Land-
búnaðarráðherra veitir vottun-
arstofu starfsleyfi að fenginni
faggildingu Löggildingarstof-
unnar og gildir slíkt leyfi í
fimm ár.
-PS
Sláturfélag Suöurlartds:
Hakkabollur
bætast í 1944
fjölskylduna
Sláturfélag Suöurlands, sem
framleiðir fljótlegu 1944 rétt-
ina, hefur sett nýjan rétt á
markaöinn, Hakkabollur í
brúnni sósu meö kartöflu-
mús, en þama er um aö ræöa
rétti sem tilbúnir em á nokkr-
um mínútum og hægt er aö
hita í hvort sem er örbylgju-
ofni eöa venjulegum ofni.
Verðið á nýja réttinum er kr.
349 en verð á öðrum réttum er
allt niður í 139 krónur. í frétt
frá SS kemur fram aö meö mjög
vönduðum framleiðsluaðferö-
um er gert kleift að bjóða upp
kælda ekki frosna rétti þar sem
ferskleiki matvælanna er
tryggður.
-PS