Tíminn - 28.03.1996, Page 6

Tíminn - 28.03.1996, Page 6
6 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM HAFNARFIRÐI Útistandandi húsaleigu- skuldir bæjarins: 2,6 milljónir óinnheimtan- legar Á síöasta fundi bæjarráðs var lagt fram bréf frá bæjar- lögmanni ásamt lista yfir húsaleiguskuldir 16 aðila, samtals að upphæð rúmlega 2,6 milljónir kr. sem taldar eru óinnheimtanlegar. Leggur lögmaður til að þessar skuldir verði afskrifaðar. Hafnarfjörður á nú einar 120 íbúðir sem leigðar eru á almennum markaði. Að sögn Guðmundar Benediktssonar bæjarlögmanns hafa óinn- heimtanlegar húsaleiguskuldir ekki verið afskrifaðar í mörg ár hjá bæjarsjóði og er það helsta ástæðan fyrir því hve þessi upphæð er orðin há. í fyrrgreindum tilvikum sé um eignalaust fólk að ræða og því þýðingarlaust aö reyna frekari innheimtu á skuldum þess. Enginn af þessum 16 aðilum býr nú í húsnæöi á vegum bæjarins. Kumlbúinn heim í Hérab Þjóðminjaráð hefur heimil- að að kumlið, sem fannst við Þórisá í Skriðdal, verði sett upp í Minjasafni Austurlands, sem opnað verður á Egilsstöð- um í sumar. Að sögn Stein- unnar Kristjánsdóttur minja- varðar er það þó háö því skil- yrði að búið verði að koma upp í húsinu rakakerfi og þjófavörn og forverja sýning- argripi. Kumlið verður sett upp sem líkast því sem það var þegar það fannst, og hefur Skógrækt ríkisins á Hallorms- stað ákveðið að kosta bás sem verður umgjörð þess. Segja má að það sé vel við hæfi, þar sem aldursgreining og nafnið á ánni, sem kumlið fannst við, leiöa rök að því að þar hafi legið Þórir, sonur Graut- Atla sem nam land í Atlavík. Þá verður sett upp skilti meö upplýsingum um kumlið á fundarstað við Þórisá. Vega- gerð ríkisins hyggst útbúa þar bílastæði og jafnvel áningar- aðstöðu, og ætlar Steinunn á þessu fyrsta starfsári safnsins í sumar að bjóða upp á reglu- legar ferðir með leiðsögn í Skriðdal. Einnig eru ráðgerðar ferðir út í Kjarvalshvamm og gönguferð um Egilsstaðabæ þar sem töluvert er um fornar minjar, þó þær láti lítið yfir sér. Sjúkrahús Suðurlands: Framkvæmda- stjórinn gefur eftir 11% af launum sínum Bjarni Arthursson, fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suð- urlands, upplýsti á fundi rekstrarstjórnar sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvar Selfoss í síðustu viku að hann gæfi eftir 11% af launum sínum vegna aðhaldsaðgeröa í rekstri stofnunarinnar. Þetta kemur fram í fundar- gerö frá fundinum. Fyrir fund- inum lá greinargerð vegna hagræðingar og sparnaðar á Sjúkrahúsi Suðurlands og Heilsugæslustöð Selfoss. Tillögurnar eru unnar með hliðsjón af skýrslu Ríkisendur- skoðunar og stjórnsýsluúttekt á sjúkrahúsinu og úttekt rekstrarráðgjafa og tillögum um endurskipulagningu stjórnunar. Tillögurnar miðast fyrst og fremst að því að reyna að standa vörð um þá þjón- ustu, sem samningurinn við heilbrigðisráðherra kveður á um. Framkvæmdastjórinn sagö- ist hafa trú á þessum hagræð- ingar- og sparnaðaraðgerðum, sem í greinargerðinni væru, án þess þó að skerða þjónust- una, en taldi þetta kannski ekki skila sér strax og nauðsyn væri á samstilltu átaki starfs- manna. FnETTnmnnin SELFOSSI Útburður pósts hafinn á Laugarvatni: Laugarvatn í átt til nútímans Mánudaginn 11. mars var í fyrsta skipti borinn út póstur á Laugarvatni, en hingað til Lilja Dóra Eyþórsdóttir aö bera út fyrstu bréfin á Laugarvatni. hefur hver og einn þurft að sækja póst sinn á pósthúsið. Þorpsbúar fagna mjög þess- ari bættu þjónustu Pósts og síma, svo mjög aö hermt er að einhverjir þeirra hafi getið þessa í bréfum sínum til út- landa. Fyrsti bréfberi Laugvetninga er Lilja Dóra Eyþórsdóttir. Segir hún að nýja starfið legg- ist vel í sig og það sé gott aö fá borgað fyrir að trimma um þorpið. Austurland NESKAUPSTAÐ Hérabsmenn í sameiningarhug Vinna við athuganir vegna hugmynda um sameiningu sveitarfélaga á Héraði er nú að fara af stað hjá allmörgum sveitarfélögum. Fyrir skömmu var haldinn fyrsti fundur í nefnd á vegum Egilsstaðabæj- ar, Hjaltastaöa- og Eiðahrepps, sem ætlað er að fara ofan í saumana á sameiningarhug- myndum. Formaður nefndar- innar er Þuríður Backman. í samtali við Helga Halldórs- son, bæjarstjóra á Egilsstöð- um, kom fram aö umrædd nefnd á vegum sveitarfélag- anna þriggja heldur öllu opnu, ef vilji er hjá fleiri sveit- arfélögum að taka þátt í þess- ari undirbúningsvinnu. „Þetta er gert í fullri alvöru og al- menn samstaða um að gefa þeim sveitarfélögum, sem hafa áhuga, tækifæri til að vera með," sagöi Helgi. Þá hafa Vallahreppur, Skrið- dalshreppur og Fljótsdals- hreppur einnig sett á Iaggirnar nefnd til að skoða sameiningu þessara hreppa og sama hafa Jökuldælingar, Hlíðar- og Tungumenn gert. Egilsstabir sébir frá Fellabœ. Þetta er algengt útsýni úr eldhúsgluggum fólks í Fellabce, enda er abeins um tveggja kílómetra akstur á milli bœjanna. Fellamenn eru þó ekki í sameiningarhugleibingum, þótt vega- lengdin œtti ekki ab vera þröskuldur. Ef marka má ummœli Fellamanna ífjölmiblum upp á síbkastib, vilja þeir ekki sameinast öbrum sveitarfélögum, svo félagsleg þjónusta verbi ekki meiri en þeir kœra sig um. Fimmtudagur 2Ö mars 1996 Mjólkursamsalan meö 38 milljóna hagnaö af 4.010 milljóna tekjum: Um 900 bænd- ur komu í sex- tugsafmælisboð Mjólkursamsalan bauð heim öllum bændum á Suöur- og Vesturlandi í tilefni af sextíu ára afmæli sínu í fyrra. „Varð þátttaka mjög góö, sérstak- lega úr sveitum sem næst liggja, og alls þáðu hátt í 900 manns þetta boð," segir Magnús H. Sigurðsson, stjórn- arformaður MS, í ársskýrslu sem dreift var á aðalfundi fyrir helgina. í skýrslunni kemur m.a. fram að Mjólkur- samsalan keypti mjólk af 914 framleiöendum á síðasta ári. Þeim hafbi þá fækkað um 23 frá árinu áður og um rúmlega 150 á síðustu 10 árum. Heildartekjur Mjólkursamsöl- unnar og dótturfélaga hennar námu 4.010 milljónum á síð- asta ári (sem samsvarar t.d. um 23 þús. kr. á hvern íbúa Reykja- víkur og Reykjaness). Tekjurnar jukust um tæplega 1% frá árinu áður, en rekstrarkostnaðurinn um 2,5%. Hagnaður af rekstrin- um, án fjármagnsleiða og skatta, varö 38 milljónir. Eignir Mjólkursamsölunnar og dóttur- félaga námu rúmlega 3.630 milljónum kr. í árslok, en skuldir voru 670 milljónir. Eig- infjárhlutfall var rösklega 81,5% í árslok. Sú veigamikla breyting var gerð á fjárhagsskipan Mjólkur- samsölunnar á s.l. ári, að stofn- aður var séreignarsjóbur mjólk- urframleiðenda. Sjóðurinn nam um 40 milljónum í árslok, sem skiptust á milli 1.326 aðila. Lakari afkoma á síðasta ári en næstu ár þar á undan var eink- um skýrð með samdrætti í mjólkurneyslu, samfara kostn- aðarhækkunum í vinnslu og dreifingu mjólkur, sem úr- vinnsluiðnaðurinn hafi að mestu tekið á sig án þess að hækka heildsöluverð mjólkur- innar. Grundvallarverð mjólkur hafi þannig aðeins hækkað um 0,36% frá mars 1992 til ársloka 1995, á sama tíma og vísitala neysluverðs hækkaði um 9,9%. í raun megi segja að verðstöðv- un hafi gilt gagnvart úrvinnslu- iðnaðinum allt frá ársbyrjun 1990, þótt nokkrar innbyrðis verðbreytingar hafi orðið milli vöruflokka. Fram kom að árleg mjólkur- neysla á hvern íbúa á sölu- og dreifingarsvæði MS hefur minnkað úr 155 lítrum árið 1992 niður í 143 lítra 1995, eöa um 8% ab meöaltali á mann á s.l. þrem árum. Á sama tíma og mjólkursala hefur þannig minnkað um 1,5 til 2 milljónir lítra hefur sala á ávaxtasöfum aukist um 5-6 milljónir lítra. Afkoma kúabúa rýrnaöi um samtals 14% á árunum 1991 til 1994: Aöeins eitt nýtt fjós í byggingu árið 1995 Kúabændur hafa átt við vax- andi vanda að stríða á undan- förnum árum, þótt mun minna hafi á honum borið í fjölmiblum en vanda saubfjár- bænda. Frá árinu 1991 til 1994 rýrnabi þannig afkoman í greininni um samtals 14% (um 4,8% árib 1992, 3% árib 1993 og 6,8% árib 1994), sam- kvæmt skýrslu Jónasar Bjarna- sonar um störf Hagþjónustu landbúnabarins. Afleibingar afkomutaps ár eftir ár sjáist m.a. í litlum fjárfestingum. Til dæmis hafi aðeins eitt nýtt fjós verib í byggingu á landinu 1995. Jónas segir hækkun á af- urbaverði ólíklega. Frekari verð- lækkanir vegna vaxandi þrýst- ings frá innflutningi séu líklegri og framundan sé óvægin harka samkeppninnar. „Hvað kúa- bændur áhrærir, gæti það m.a. orðið í formi hollenskrar mjólk- ur." Skýringu á rýrnandi afkomu ár frá ári segir Jónas ab hluta til verðfall á nautakjöti (einkum 1994) auk raunverðslækkunar á mjólk. Miklar og vaxandi kröfur um heilbrigði og alla aðstöðu til mjólkurframleiðslu sem at- vinnugreinar komi hér Iíka til. Miðab við ríkjandi forsendur sé ekki líklegt aö kúabændur geti vænst þess að bæta fjárhags- stöðu sína meb hækkun afuröa- verðs til neytenda. í annan stað bendi allt til þess, að ekki verði hægt að verjast innflutningi landbúnabarvara til frambúðar. „Þaö vekur spurn- ingu um hvort ekki brennur á fleiri aðilum en bændum að undirbúa sig. Hér er átt við framleiðsluþróun í úrvinnslu- greinum landbúnaðar, sem óneitanlega hefur verið bágbor- in. Þannig minnkaði t.d. fram- leiðni vinnuafls í mjólkuriðnaði um 35% á tímabilinu 1973 til 1991. Til samanburðar hefur framleiðni almenns iðnabar auk- ist um hartnær 40% á sama tíma." Jónas segir bændum nauðsyn- legt ab búa við örugga landbún- aðarstefnu, sem sé það sjálfstæb að unnt sé að skilja á milli hennar og almennrar byggða- stefnu. „Jafnframt þarf að skapa skilyrði til að landbúnaðarafurð- ir geti haldiö áfram að lækka til neytenda án þess að byrðarnar lendi á bændum; sú hagræðing þarf fyrst og fremst að koma við sögu á vinnslu- og heildsölu- stigi."

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.