Tíminn - 02.04.1996, Side 5

Tíminn - 02.04.1996, Side 5
Þriðjudagur 2. apríl 1996 5 Látnir og lifandi í Bujumbura, höfubborg Búrúndi. Hatur í hjarta Afríku Höfubkúpur Tútsa, sem myrtir voru í fjöidamorbunum 7 994. Þær eru varbveittar í Kigali, höfubborg Rúanda. Stríö Hútúa og Tútsa í Búrúndi fœrist í aukana. I flótta- mannabúöum í Saír undirbúa Hútúar hernaö gegn Tútsum íRúanda Lengi hefur verið vani í heimspressunni að „skreyta" greinar um Kambódíu meb myndum af höfuðkúpum manna sem Rauðir kmerar drápu. Frá fjöldamorðum Hútúa á Tút- sum í Rúanda 1994 hefur samskonar myndefni gjarnan fylgt greinum frá því landi og grannlandi þess, Búrúndi. í báðum þessum litlu Miö- Afríkulöndum er meirihluti íbúa Hútúar, en Tútsar réðu þar mestu um langan aldur. Bæöi lönd voru um skeið belgískar nýlendur, ábur en sjálfstæðið gekk í garð, og síöan er franska þar opinbert mál og útbreidd- ustu trúarbrögð kaþólska. í fjandsamlegu „þjóbahafi"? Hútúar og Tútsar tala sama bantúmálið, en Tútsar eru margir hávaxnir, grannir og í andlitsfalli líkir evrópídum. Hútúar eru margir lág- og þétt- vaxnir og líkari því útlits sem al- gengast er um blökkumenn. Nú er margra mál að átök þessara þjóða í Búrúndi séu að verba eöa þegar orðin „blóðug- asta borgarastríð Afríku", eins og hjálparstofnunin Læknar án landamæra orðar það. Hér er um að ræba þjóða- og/eba kynþáttastríð, þar sem litið er á hvern einstakling af hinni þjóöinni sem óvin, eða a.m.k. sem líklegan eða hugsan- legan óvin. Hútúar heita á „sanna" bantúmenn og blökku- menn grannlanda sér til stuðn- ings gegn „eþíópskum" Tútsum. Tútsar kunna í framhaldi af því aö vera farnir að líta á sig sem aöþrengda „þjóðernisey" í fjandsamlegu „þjóðahafi" „eig- inlegra" blökkumanna. í bábum löndum hafa Tútsar völdin eins og er. í Rúanda náðu þeir völdum 1994 og stöðvuðu þar með útrýmingar- herferb Hútúa á hendur Tút- sum, Batwa (pýgmeum) og Hútúum sem ab mati morðingj- anna voru ekki nógu fjandsam- legir Tútsum. í Búrúndi var „samsteypustjórn" manna af báðum þjóöum frá 1993 og svo er að nafninu til ennþá. En Tútsar slepptu þar aldrei tökum sínum á hernum, sem þeir til þessa höfðu einokað, og síðan 1994, er fjöldamorðin í Rúanda voru framin, hafa þeir í krafti hersins tekið til sín svo að segja öll völd í landinu í raun. Fréttum af ástandinu í Rú- anda ber ekki aö öllu leyti sam- an. Ab sumra sögn heldur Tútsaflokkur sá, er þar stjórnar og þekktastur er undir skamm- stöfuninni RPF, uppi sæmilegri reglu og hindrar að Tútsar hefni sín á Hútúum. Aörar heimildir, m.a. frá ýmsum stofnana Sam- einuöu þjóðanna og Amnesty International, herma frá fjölda- morðum Tútsa þar á Hútúum öðru hverju allt frá 1994, í sum- um tilvikum með hlutdeild stjómarhers RPF. Einn særöur á móti 15- 20 drepnum í Búrúndi geisar borgarastríð (og mun raunar hafa staðiö síð- an 1993) sem að margra mati færist jafnt og þétt í aukana. Hútúi er þar enn forseti, en hann skiptir ekki máli og hib sama gildir um ríkisstjórn, þing, dómstóla og aörar stofnanir upp teknar eftir fyrirmyndum frá Vesturlöndum. Tútsískur her landsins stjórnar í raun, hefur rekiö næstum alla Hútúa úr höf- uöborginni, sem Bujumbura heitir, og dauöasveitir á vegum hans útrýma kerfisbundið þeim Hútúum, sem einhverja mennt- un hafa hlotið eða þykja líklegir til forystu. Rábherrar falla í þann val ekki síður en aörir. Hins vegar ráða hútúskir skæru- liðar mestu í ýmsum héruðum og ráðast þar á hvern þann Tútsa sem þeir fá færi á. Að sögn BAKSVIÐ DAGUR ÞORLEIFSSON þýska blaðsins Der Spiegel er gert ráð fyrir því í „venjulegum" hernaði að fjórir særist á móti hverjum einum sem fellur. En í Búrúndi, segir sama blað, er einn skráður særður á móti hverjum 15-20 drepnum. Stefna Sameinuöu þjóð- anna/heimssamfélagsins í átök- um þessum er í orði kveðnu a.m.k. sú að Rúanda og Búrúndi verbi ríki bæði Hútúa og Tútsa, þar sem þjóðir þessar lifi í friði og vináttu vib lýðræðislegt stjórnarfar og réttaröryggi að vestrænni fyrirmynd. Heldur viröist nú langt í land með það, svo ab ekki sé meira sagt. Tortiyggja S.Þ. Því veldur ekki einungis hatr- ið milli Hútúa og Tútsa, heldur og það að þeir síðarnefndu tor- tryggja Sameinuðu þjóðirnar og gruna þær um að draga taum Hútúa. S.Þ. urðu einkar við- bragðsseinar gagnvart fjölda- morbunum á Rúanda-Tútsum og tilmæli S.Þ. til Búrúndi-Tútsa um aö þeir skipti völdunum með Hútúum og fái þeim t.d. hlutdeild í stjórn hersins líta Búrúndi-Tútsar á sem fjörráð við sig. Eftir fjöldamorbin 1994 í Rúanda eru Tútsar beggja landa sannfærðir um að þeir geti ekki tryggt sig gegn slíkum aðförum nema því aðeins aö hervaldið, og þar með allt vald, sé í þeirra höndum. Herinn í Búrúndi hefur gefið í skyn, að ef S.Þ. sendi friðargæslulið inn í það land, muni Tútsar þar líta á það sem óvin. Tútsar hafa og ill- an bifur á erlendum og alþjóð- legum hjálparstofnunum, á veg- um S.Þ. og annarra, og telja að starf þeirra sé í raun stuöningur við herskáa Hútúa. 1,7 millj. Rú- anda-Hútúa eru í flóttamanna- búðum í grannlöndum, meiri- hlutinn í Saír. S.Þ. og hjálpar- stofnanir sjá þessu fólki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum, fyrir- menn Rúanda-Hútúa ráða miklu meðal þess og undirbúa í flóttamannabúðunum og í grennd við þær skæruhernab og innrás í Rúanda, með meira eöa minna ákveönu samþykki Mo- butus Saírforseta, sem fjand- samlegur er núverandi Rúanda- stjórn. Ekki fer á milli mála að margt af þessu flóttafólki tók þátt í fjöldamorðunum á Tút- sum 1994. Með hliðsjón af öllu þessu þykjast Tútsar hafa ástæðu nokkra til að líta svo á, að með því að hjálpa hútúsku flóttafólki sé heimssamfélagið í raun að hjálpa Hútúum til ab endurheimta völd í Rúanda — sem Tútsar óttast að þeir myndu nota til að halda áfram útrým- ingunni sem RPF stöðvaði. S.Þ., í vandræðum vegna kostnaðarins við uppihald hút- úska flóttafólksins frá Rúanda, hvetja það til að snúa heim, en fátt af því vill það eða þorir. Rú- andastjórn Tútsa hefur lofaö ab taka þessu flóttafólki vel, snúi það heim. Það gerir sú stjórn lík- lega einkum fyrir ímynd sína í augum S.Þ. og Vesturlanda, en fáir Hútúar reiða sig á þau lof- orð. Tútsastjórnin segir að aö- eins þeim, sem tóku þátt í fjöldamorðunum 1994 verði refsað. En þátttaka Hútúa í þeim var almenn og vera kynni að margir Tútsar líti svo á að erfitt mundi reynast að greina sak- lausa frá sekum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.