Tíminn - 18.04.1996, Blaðsíða 6
6
tOTMr iftfhfírfr ffwfy/ivfi-
Fimmtudagur 18. apríl 1996
UR HERAÐSFRETTABLOÐUM
lMI
eIgiEstoðu^^
Lobdýrabændum
fjölgar aö nýju
Útlit er fyrir að loðdýra-
bændum fjölgi á ný á svæði
Búnaðarsambands Austur-
lands eftir mikinn samdrátt,
en afkoma í greininni hefur
batnað til muna á siðustu ár-
um. Sérstaklega eru það
bændur sem voru í þessum
búskap og eiga hús og annan
búnað, sem hugsa sér til
hreyfings og hafa tveir bænd-
ur, í Vopnafirði og Hlíðar-
hreppi, hafið búskap að nýju
á síðastliðnum tveimur árum.
Fleiri eru í startholunum. Á
Jökuldal hyggjast tveir bænd-
ur, jafnvel fleiri, hefja loð-
dýrarækt á þessu ári. Allir hafa
þeir fengist við þessa grein bú-
skapar áður og eru hús til
staðar á jörðunum.
Að sögn Jóns Atla Gunn-
laugssonar, ráðunautar hjá
BSA, er hugsanlegt að Byggða-
stofnun veiti fyrrverandi loð-
dýrabændum styrki til að
koma á fót búskap að nýju.
Verð á blárefaskinnum hefur
verið gott síðastliðin þrjú ár
og verð á minkaskinnum fer
hækkandi. Loðdýrabúum á
sambandssvæði BSA hefur nú
fjölgað í ellefu, en aöeins níu
bú stóðu af sér þær miklu
þrengingar sem gengu yfir
loðdýrabúskapinn á sínum
tíma.
Bætt aöstaöa
fyrir feröamenn
í Papey
Papeyjarferðir eru í hópi
þeirra fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu á Áusturlandi sem fengu
styrk til úrbóta á ferðamanna-
stöðum. Að sögn Más Karls-
sonar framkvæmdastjóra
verður í vor ráðist í það verk-
efni að merkja gönguleiðir um
eyjuna, brúa mýrarfen og setja
upp merkingar á hættusvæð-
um. Einnig verður lagfærður
stígur upp á Hellisbjarg, sem
er hæsti hluti eyjarinnar eða
58 metrar, og útbúið tjald-
stæði. Papeyjarferðir hf. eru
að hefja sitt annað rekstrarár,
en á síðasta sumri var boðið
upp á daglegar ferðir frá mán-
aðamótum maí-júní fram
undir miðjan september og
flutti Papeyjarferjan „Gísli í
Papey" um 700 manns út í
eyjuna. Töluverðar fram-
kvæmdir voru í Papey í fyrra-
vor til að auðvelda móttöku
ferðamanna. Gerðar voru lag-
Refir í loödýrabúi Karls á Þrándarstöbum, en bú hans er í hópi þeirra
níu sem héldu velli.
færingar á höfnunum í Áttær-
ingsvogi og Selavogi og komið
uþp vatnssalernum.
I Papey og úteyjum er margt
aö sjá. Þar er mikið fuglalíf,
m.a. státar eyjan af einni
mestu lundabyggð landsins.
Einnig er þar lítil timbur-
kirkja, nýuppgerð. Kirkjan var
byggð upp úr aldamótum, að
hluta til úr viðum eldri kirkju.
dómi, að viðkomandi fær ekki
að gegna starfi stýrimanns um
þriggja mánaða skeið, en aftur
á móti má hann vera skip-
stjóri. Er þetta ámóta og að
rútubílstjóri væri sviptur rétt-
indum til að aka heimilisbíln-
um sínum, en mætti eftir sem
áður keyra rútuna.
Slmrtlm frtlta og auglyiingablatid a Suiurntijun
VESTMANNAEYJUM
Sérkennilegur dómur í máli
stýrimannsins á Andvara:
Missir stýri-
mannsréttindin
— en heldur skip-
stjórnarréttind-
unum
Nýlega var kveðinn upp
dómur í máli sem höfðað var
gegn stýrimanni á Andvara
VE. í janúar 1994, þegar skip-
ið var við Grímsey, sofnaði
stýrimaöurinn á vakt með
þeim afleiðingum aö skipið
strandaði. Andvari komst á
flot á ný fyrir eigin vélarafli
og skemmdir reyndust ekki
miklar.
Stýrimaðurinn var dæmdur
til greiðslu sektar að upphæö
kr. 80 þúsund, ásamt missi
stýrimannsréttinda í þrjá
mánuði. Jón Ragnar Þorsteins-
son héraðsdómari kvað upp
dóminn í Héraðsdómi Suður-
lands.
Það, sem vekur hvað mesta
athygli við þennan dóm, er að
viðkomandi missir stýri-
mannsréttindi sín tímabund-
ið, en ekki skipstjórnarréttind-
in. Ástæðan er sú aö í ákær-
unni er hann sakaöur um brot
á sjómannalögum og á þeirri
forsendu missir hann stýri-
mannsréttindin. Aftur á móti
gerði ákæruvaldið ekki kröfu
um að refsað yröi fyrir brot á
siglingalögum, sem varöar þá
missi skipstjórnarréttinda.
Því kemur upp sú kúnstuga
staða, samkvæmt þessum
Bœrinn Bjarg í Papey.
KEFLAVIK
Alvarlegt líkamsárásarmál
kært til lögreglunnar:
Réöust inn á
heimili um há-
nótt og böröu
húsbóndann
Ungir piltar af Suðurnesj-
um hafa verið kærðir til lög-
reglu fyrir mjög alvarlegt lík-
amsárásarmál í Njarðvík fyrir
skömmu. Piltarnir réðust að
tilefnislausu á karlmann og
misþyrmdu honum. Síðar
um nóttina höfðu piltarnir
upp á syni mannsins og réð-
ust einnig á hann. Höfuð-
paurinn í árásinni, sem gerð
var aðfaranótt laugardags
fyrir þremur vikum, var
handtekinn morguninn eftir
og sat inni þar til á sunnu-
dagskvöld.
Málsatvik voru þau að pilt-
arnir áttu óuppgerö mál við
son mannsins sem ráðist var
á. Hugðust þeir hefna sín á
^syninum og fóru út til að
leita að honum. Þegar pilt-
arnir fundu ekki fórnarlamb
sitt í miöbæ Keflavíkur, fóru
þeir að heimili í Njarðvík.
Bönkuðu þeir þar uppá og
vöktu húsbóndann á heimil-
inu. Þar sem sonur húsráð-
anda var ekki heima, réðust
piltarnir á manninn, fyrst í
forstofu íbúðarinnar og
drógu hann síðan út á stétt.
Þar ógnaði einn pilturinn
honum með hnífi og hótaði
að skera hann, meðan annar
veitti honum áverka með
spörkum og barsmíðum.
Maðurinn er m.a. með höf-
uðáverka eftir atburðinn.
Piltarnir höfðu sig hins veg-
ar á brott, þegar húsmóðirin
á heimilinu vaknaði við læt-
in og gerði viðvart um árás-
ina.
Síðar sömu nótt höfðu
árásarpiltarnir upp á syni
mannsins. Brutust út slags-
mál milli piltanna og sonar-
ins. Lögreglu tókst að hafa
upp á árásarpiltunum þegar
líða tók á morguninn, eins
og áður segir.
Að sögn lögreglu er þetta
mjög alvarlegt árásarmál,
sem örugglega mun fara fyrir
dómstóla.
í r ' na^ .i-t-
Aöskilnabur ríkis og kirkju lagbur til á Alþingi:
Kirkjan misst tiltrú
almennings á und-
anförnum misserum
Ásta R. Jóhannesdóttir og
Jóhanna Sigurbadóttir þing-
menn Þjóbvaka hafa lagt
fram tillögu til þingsálykt-
unar þar sem kirkjumála-
rábherra er falib ab skipa
nefnd sem hafi þab verkefni
ab endurskoba núverandi
kirkjuskipan landsons.
Verkefni nefndarinnar verbi
ab endurskoba samband rík-
is og kirkju og kanna kosti
þess og galla ab auka sjálf-
stæbi og ábyrgb kirkjunnar
þannig ab hún verbi skilin
frá ríkisrekstrinum.
í greinargerð þingmann-
anna segir að umræða um að-
skilnað ríkis og kirkju hafi far-
ið vaxandi og vaxið fiskur um
hrygg meðal kennimanna
kirkjunnar sjálfrar. „Ljóst er
að samfélagið hefur breyst
mikið frá því að núverandi
fyrirkomulag kirkjunnar var
formlega staðfest og hlutverk
kirkjunnar er allt annað í dag
en það var árið 1874. Þá
gegndi hún veraldlegu þjón-
ustuhlutverki sem aðrar stofn-
anir hafa tekið viö, svo sem
heilsugæslustofnanir,
menntastofnanir, Hagstofa ís-
lands ofl. Félagsráðgjafar, sál-
fræðingar, læknar og lögfræð-
ingar vinna því störf sem áður
voru að miklu leyti unnin af
kirkjunnar mönnum," segja
þingmenn Þjóðvaka.
Ennfremur: „Gera má ráð
fyrir að sjálfstæð og fjárhags-
Ásta R. jóhannesdóttir.
lega óháð kirkja leiði til auk-
innar virðingar og sterkari
stöðu meðal almennings.
Undanfarin misseri hefir bor-
ið á því að kirkjan hafi verið
að missa tiltrú almennings.
Hún hefur sætt gagnrýni sem
beinist að athöfnum einstakra
presta og einstökum málefn-
um eins og hvar ákvarðanir
skuli teknar, óljósu stjórn-
skipulagi osfrv. Gagnrýnin,
sem er ein birtingarmynd
þessa trúnaðarbrests milli
fólksins og kirkjunnar, kallar
á nauðsyn þess að endurskoð-
uð verði tengsl ríkis og
kirkju."
-BÞ
Forsetaframbjóbendur leita eftir mebmœlendum. Þurfa
minnst 1.500 uppáskriftir, aballega úr Sunnlendinga-
fjórbungi þaban sem 3/4 mebmœlendanna koma:
Flestir meðmælenda
gætu veriö Reykvíkingar
Stjórnarskráin frá 1944
kvebur á um fjölda meb-
mælenda sem væntanlegir
forsetaframbjóbendur þurfa
ab fá til ab undirrita meb-
mælendalista sína sem þeir
síban leggja fram í dóms-
málarábuneyti 5 vikum fyr-
ir forsetakjör. Mögulega
gætu 1.141 mebmæland-
anna verib Reykvíkingar,
svo öflugur er Suburlands-
fjórbungur samkvæmt
stjórnarskránni.
Forsetaefnið skal hafa meb-
mæli minnst 1.500 kosninga-
bærra manna en mest 3.000,
segir í auglýsingu forsætis-
rábuneytis í Stjórnartíðindum
í síðasta mánuði.
Söfnun meðmælenda fer
fram í landsfjórðungunum og
kemur í ljós að Sunnlendinga-
fjórðungur vegur þar þyngst,
þar þarf 1.141 meðmælanda
minnst en 2.282 mest. Fjórö-
ungurinn er skilgreindur frá
V-Skaftafellssýslu í austri og
til Borgarfjarbarsýslu í vestri,
eða frá Skeiðará að Hvítá í
Borgarfirði.
í hinum fjórðungunum er
krafa um eftirfarandi: 88 með-
mælendur minnst og 176
mest í Vestfirðingafjórðungi,
sem nær frá Mýrasýslu til
Strandasýslu að báðum sýsl-
um meðtöldum. í Norðlend-
ingafjórðungi þarf minnst
194 meömælendur en hið
mesta 387, en fjórðungurinn
nær yfir svæðið sem markast
af Húnavatnssýslu í vestri og
Suður-Þingeyjarsýslu í austri. I
Austfirðingafjórðungi, Norð-
ur-Þingeyjarsýslu til Austur-
Skaftafellssýslu er krafist 77
meðmælenda minnst en 155
mest.
„Það er ljóst að hundraðs-
hlutfalliö er mun lægra nú en
það var 1944, þegar við vor-
um um 120 þúsund manns,"
sagði Jón Thors skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu
í gær. Jón sagði þó aö enda
þótt þessi ákvæði hefðu ekki
verið endurskoðuö í 52 ár
væru þau þó ekkert endilega
orðin úrelt.
Forsetaframbjóðendur og
stuðningsmenn þeirra eru á
þönum eftir undirskriftum
þar til bærra manna. Mest er
greinilega unnið í Reykjavík
og á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki er vitab um árangur enn
sem komið er. Guðmundur
Rafn Geirdal sagði í fyrradag
að hann hefði byrjað í vik-
unni að safna. Hann ætti eftir
að ná meðmælendum, þrír
væru komnir á blað. Hann
segist hafa útbúið 152 með-
mælendalista með 20 línum
hver. Guðmundur Rafn segist
geta unnið mjög hratt að
söfnun meðmælenda á næstu
dögum og vikum.
. TRP
I