Tíminn - 18.04.1996, Page 8
8
Fimmtudagur 18. apríl 1996
Húsafribunarnefnd ríkisins:
Níu hús fá
eina millj-
ón hvert
Á fundi Húsafriöunarnefndar rík-
isins þann 2. apríl sl. voru sam-
þykktar styrkveitingar úr Húsa-
friðunarsjóði fyrir árið 1996.
Veittir voru 155 styrkir samtals
að upphæð 43.450.000, aðallega
til endurbygginga og viðhalds
gamalla húsa um land allt.
Sú nýbreytini var tekin upp að
veita stóra styrki, að upphæb ein
milljón hver, til verkefna í hverjum
landshluta í samræmi við nýja
stefnumörkun Húsafriöunarnefnd-
ar.
Eftirtalin hús fengu slíkan styrk:
Vesturgata 3, Hlaðvarpinn,
Reykjavík, byggingarár 1885-1903.
Strandgata 49, Hafnarfirði, bygg-
ingarár 1907
Skólahús í Ólafsdal, Dalasýslu,
byggingarár 1896.
Salthúsið, Þingeyri, byggingarár
1787.
Riishús, Borðeyri, byggingarár
1862.
Hildebrandtshús, Blönduósi,
byggingarár 1877 eða eldra.
Roaldsbrakki, Siglufirði, bygging-
arár 1907.
Jensenshús, Eskifiröi, byggingar-
ár 1837.
Landlyst, Vestmannaeyjum,
byggingarár 1847.
Húsafriðunarnefnd stjórnar
Húsafriðunarsjóði, en hlutverk
sjóðsins er að veita styrki til við-
halds og endurbóta á fribuðum
húsum og mannvirkjum. Ennfrem-
ur til húsa, sem hafa menningar-
sögulegt eða listrænt gildi að mati
nefndarinnar.
Sjóðurinn styrkir einnig verkefni
sem stuðla að rannsóknum á ís-
lenskum byggingararfi og útgáfu
rita þar að lútandi.
í Húsafriðunarnefnd sitja Þor-
steinn Gunnarsson arkitekt, for-
maður, Guðný G. Gunnarsdóttir
forstöðumaður Minjasafns Akur-
eyrar, Guðmundur Gunnarsson
arkitekt, Magnús Karel Hannesson
oddviti Eyrarbakkahrepps og Þór
Magnússon þjóðminjavörður. ■
Unnib ab endurbótum á húsi Einars Þorgilssonar í Hafnarfirbi ab Strand-
götu 49.
Strandgata 49, Hafnarfirbi. (Tillaga ab endurbótum)
Vesturgata 3, Hlabvarpinn, Reykjavík.
Landlyst, Vestmanna-
eyjum. (Tillaga ab
endurbótum)
Salthúsib, Þingeyri. (Til-
laga ab endurbótum)
Hildebrandtshús, Blönduósi.
(Tillaga ab endurbótum)
Roaldsbrakki, Siglufirbi.
'V'tTFWr***
Riishús, Borbeyri.
Skólahús í Ólafsdal.