Tíminn - 19.04.1996, Qupperneq 6
6
Föstudagur 19. apríl 1996
Frá Höfn í Hornafiröi.
Sveitarfélög á Suöausturlandi undirbúa aö samþœtta starf skólaskrif-
stofu og félagsþjónustu í einni skrifstofu:
Stóraukin þjónusta viö
litlu sveitarfélögin
„Við stefnum a& samþætt-
ingu þeirrar þjónustu sem
nú fer fram á fræðsluskrif-
stofu Austurlands, hefð-
bundinni félagsþjónustu
sveitarfélaga og þjónustu
svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra í einni stofnun,"
segir Hallur Magnússon, fé-
lagsmálastjóri á Höfn í
Homafirði, en sveitarfélögin
í Austur-Skaftafellssýslu og í
Djúpavogshreppi ákváöu að
taka ekki þátt í samstarfi við
önnur sveitarfélög á Austur-
landi um rekstur einnar
fræðsluskrifstofu, en hingað
til hefur Fræðsluskrifstofa
Austurlands verið staðsett á
Reyðarfirði.
Fræðsluskrifstofur hafa verið
reknar af ríkinu í hverju kjör-
dæmi og verða þær lagðar nið-
ur, eins og kunnugt er, við yf-
irfærslu grunnskólans í ágúst
komanda. Við yfirtökuna er
sveitarfélögunum gert skylt að
veita þá þjónustu, sem
fræðsluskrifstofur hafa hingað
til veitt, og er misjafnt hvernig
þau hafa ráðgert að sinna hlut-
verki fræðsluskrifstofa. Á Suð-
urlandi munu t.d. sveitarfélög
kjördæmisins taka sig saman
um rekstur einnar skrifstofu. í
Austur- og Vestur-Húnavatns-
sýslu er einnig stefnt að rekstri
einnar skólaskrifstofu, sem
muni líklega taka yfir al-
menna félagsþjónustu.
Að sögn Halls mun þessi
samvinna mismunandi aðila
leiða til heildstæðari þjónustu.
„Við töldum okkur geta veitt
grunnskólum á Suðaustur-
landi betri þjónustu með því
að koma á fót skólaskrifstofú á
Hornafiröi, sem rekin yrði í
tengslum við félagsþjónustu
sveitarfélaganna, heldur en að
sækja þjónustu alla leið til
Reyðarfjarðar. Með rekstri
einnar fræðslu- og fjölskyldu-
skrifstofu næst betri nýting á
því fjármagni, sem renna mun
til þessara málaflokka frá sveit-
arfélögunum, og því hægt að
veita meiri og markvissari
þjónustu en élla," segir Hallur.
Ætlunin er að Hornafjarðar-
bær reki skrifstofuna á sína
ábyrgð, en hin sveitarfélögin
— Hofshreppur, Borgarhafnar-
hreppur, Bæjarhreppur og
Djúpavogshreppur — greiði
fyrir þá þjónustu sem þau óska
eftir. „Það gerir það að verkum
að sveitarfélögin litlu, eins og
Hofshreppur og Borgarhafnar-
hreppur, fá aðgang að félags-
þjónustu sem þau hafa hingað
til ekki haft bolmagn til að
veita."
Fimm stöðugildi verða á
skrifstofunni, sem tekur til
starfa 1. júní: kennsluráðgjafi
og sérkennsluráðgjafi, félags-
málastjóri og félagsráðgjafi og
svæðisstjóri um málefni fatl-
aðra. Auk þess eykst þjónusta
sálfræðings um helming og
keypt verbur þjónusta af leik-
skólaráðgjafa.
Þar sem málefni fatlaðra em
nú á könnu ríkisvaldsins,
verður Hornafjarðarbær að
semja við félagsmálaráðuneyt-
ið um yfirtöku þess mála-
flokks, en Hornafjarbarbær
hafði óskað eftir viðræðum vib
ráðuneytiö um það efni ábur
en hugmyndin að stofnun
Fræðslu- og fjölskylduskrif-
stofu Suðausturlands vaknaði.
Þess má geta að um áramót-
in tók Hornafjarðarbær einnig
að sér rekstur allrar heilbrigð-
is- og öldrunarþjónustu í Aust-
ur-Skaftafellssýslu til reynslu
fram til ársins 2000 gegn
rammafjárveitingum frá ríkis-
valdinu.
LÓA
Sólvallagata dregur nafn sitt af Sólvöll-
um. Hún liggur á milli Kirkjugarbsstígs
að sunnan og Ánanausta að norðan.
Gatan var sameinuð Sellandsstíg um
1940. Sellandsstígur nábi frá Framnes-
vegi að Bræðraborgarstíg. Á mótum
Hofsvallagötu og Sólvallagötu liggur
gatan í boga fram meb húsunum Hofi
og Ási, sem eru elstu byggingar við göt-
una.
í júlí 1906 fær séra Lárus Halldórsson
leyfi fyrir ab byggja hús á Melstúni, 14
1/8 x 12 1/8 álnir og skúr 3x4 1/8 áln-
ir. Þau skilyrði vom sett að húsinu
fylgdi lóð, að minnsta kosti 1000 feráln-
ir, og að lóðinni yrði breytt í byggingar-
lóð. Séra Lárusi Halldórssyni var úthlut-
ab stærri lóð eða 1750 ferálnir. Húsið
nefndi hann Hof eftir æskuheimili sínu
í Vopnafirði.
í fyrstu brunavirðingu á húsinu, sem
var gerð í október 1906, segir að séra
Lárus Halldórsson hafi byggt einlyft hús
meb 5 1/4 álna risi á lóð sinni á Meln-
um. Húsib er byggt af bindingi, klætt ut-
an með plægöum 1" borðum, pappa,
listum og járni yfir, og með járnþaki á
plægðri 1" súð. Innan á bindingi er
pappi og millihólf í báðum bitalögum.
Niðri em 3 íbúðarherbergi, eldhús, búr
og tveir gangar, allt þiljað og herbergin
meö striga, pappa á veggjum og loftum,
og máluð. Þar em tveir ofnar og ein
eldavél. '
Uppi em fjögur íbúðarherbergi,
gangur og geymsluklefi, sem allt er þilj-
að og málað. Herbergin og gangurinn
með striga og pappa á veggjum, súð og
loftum, þar er einn ofn. Á skammbitum
er gólf úr plægðum 1" borðum. Kjallari
er undir öllu húsinu, 3 1/2 alin á hæð. í
honum er skilveggur úr steyptum steini,
sem skiptir kjallaranum í tvennt að
endilöngu.
Vib vesturgafl er inn- og uppgöngu-
skúr, með þaksvölum og kjallara, sem er
byggður eins og húsið.
Séra Láms Halldórsson var fæddur
10. janúar 1851 ab Hofi á Vopnafiröi.
Hann varð stúdent í Reykjavík 1870.
Cand.theol. Prsk. 27. ág. 1873. Hann
var mikill fræðimaður og sinnti mörg-
um embættisstörfum bæði í Reykjavík
og úti á landi. Stundakennari í kristnum
fræðum við Lærða skólann í Reykjavík
veturinn 1873 til 1874. Biskupsskrifari
frá 1874 til 1877, þá var honum veittur
Valþjófsstaður og vígður í maí 1877.
Settur próf. í Norður-Múlaprófastsdæmi
1878. Var prestur fríkirkjusafnaðarins í
Reyðarfirði 1885. Settur kennari við
Sólvallagata 25
(Hof)
Lærða skólann í
Reykjavík 1904. Al-
þingismaður Sunn-
mýlinga 1886 til
1891. Hann var af-
kastamikill rithöf-
undur, eftir hann liggur mikið af fmm-
sömdum sögum, kristilegs efnis og
sálmum. Hann þýddi bækur og ljóð.
Kona hans var Kirstín Katrín Pétursdótt-
ir, fædd 6. maí 1850. Börn þeirra: Sigríð-
ur, fædd 6. júlí 1877; Halldór, fæddur 2.
september 1878; Guðrún, fædd 8. janú-
ar 1880, kona séra Sigurbjarnar í Ási
Gíslasonar alþingismanns; Halldór,
fæddur 4. febrúar 1881, hraðritari; Pét-
ur, fæddur 4. maí 1882, fulltrúi á skrif-
stofu Alþingis; Valgeröur, fædd 12.
október 1885, kona séra Þorsteins Bri-
em; Gunnþómnn, fædd 7. maí 1890.
Séra Láms Halldórsson andaðist 24. júlí
1908, langt fyrir aldur fram.
Eftirlifandi kona hans bjó áfram í
húsinu ásamt niðjum þeirra og var hús-
ið í eigu ættarinnar allt til ársins 1986.
í nokkur ár leigöi Kirstín Katrín hluta
af húsinu, fólki sem hún þekkti til. Flest
af þessu fólki var úr kirkjusóknum sem
maöur hennar haföi þjónað. Sagt er að
frúin hafi leigt
ódýrt og leigan
borgub eftir
minni.
Árið 1910 eru
skráð til heimilis
að Sólvallagötu 25 (Hofi), Kirstín Katrín
Pétursdóttir, ekkja Lámsar Halldórsson-
ar, sonur þeirra, Pétur Lárusson, fæddur
4. maí 1882 í Valþjófsstaðarsókn, Hólm-
fríður Guðjónsdóttir, fædd 20. apríl
1892 í Hólasókn í Skagafirði, Kristín
Helgadóttir, fædd 21. apríl 1888 í
Snóksdalssókn, Ingiríður Helgadóttir,
fædd 28. júní 1890 í Snóksdalssókn,
Þórunn Þórarinsdóttir, fædd 18. desem-
ber 1891 í Skeggjastaöasókn, og Sigurð-
ur Vigfússon, fæddur 21. júní 1867 á
Reyðarfirði.
Eftir að Hof var byggt stób það ásamt
húsinu Ási nokkuð utan þéttbýliskjarn-
ans, á erfðafestulandi sem í daglegu tali
var kallað „á Melnum". Þegar Hofsvalla-
gata, sem heitin er eftir húsinu Hofi, var
lögb, var þrengt það ab húsinu að farið
var undir inn- og uppgönguskúrinn.
Eftir þaö var fallist á viðbygginguna við
húsib, sem sagt verður frá síbar. Guð-
rún, dóttir séra Lámsar og Kirstínar
HÚSIN í BÆNUM
FREYJA JÓNSDÓTTIR
Katrínar konu hans, og maður hennar
Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason byggöu
húsið Ás, sem fjallað verður um í næstu
grein.
Þegar Sólvallagata var lögð, varð Hof
númer 25 við götuna. í mati, sem fram-
kvæmt var 10. febrúar 1957, kemur
fram ab búið er aö byggja við húsið, en
það mun hafa verið gert 1954. Viðbygg-
ingin er úr timbri einangmð meb gosull,
bárujárnsklædd að utan. Þakið er úr
timbri, pappa og bárujárni meb tveimur
gluggakvistum.
Á fyrstu hæð em fjögur íbúðarher-
bergi, eldhús og snyrting, anddyri og
innri forstofa. Allt ýmist veggfóðrað eða
málað og dúklagt. Á annarri hæð eru
fjögur íbúðarherbergi, baðherbergi meb
kerlaug og snyrting, stigahús og gangur.
Allt málað og dúklagt.
Þakhæð er notuð sem geymsla. Kjall-
ari er óbreyttur frá síðasta mati 21.
febrúar 1936.
Kirstín Katrín Pétursdóttir lést 28.
september 1940. Hún var eigandi að
húsinu, en bjó þar ásamt Pétri syni sín-
um og konu hans Ólafíu Hólmfríði Ein-
arsdóttur og börnum þeirra. Kirstín
Katrín var oft langdvölum á heimili
dóttur sinnar, Valgerbar, konu séra Þor-
steins Briem. Valgerður var um tíma
heilsulítil og var langdvölum á sjúkra-
húsi. Á meðan hugsaði móðir hennar
um heimilið.
Gluggar hússins em stórir miðað við
það sem venja er á húsum, sem byggð
voru á þessum tíma, og húsið bjart og
hlýlegt. Frá vesturgluggum á efri hæð
sést vestur á Hringbraut og Mela.
Vel hirtur og fallegur garður er í
kringum húsið. Ólafía Einarsdóttir,
kona Péturs Lámssonar, gróðursetti þar
sýrenu og gullregn. Sýrenuna lét hún
sérstaklega flytja inn frá Hollandi til
ræktunar í garðinum við heimili sitt,
Hof. Ólafía Einarsdóttir stofnsetti og rak
til margra ára verslunina Blóm & ávexti,
ásamt Ástu frá Reykjum.
Árið 1986 var Sólvallagata 25 (Hof)
selt. Þá kaupa Ingimundur Sigfússon og
kona hans Hrafnhildur Óskarsdóttir.
Verið er að gera húsið húsið upp af mik-
illi smekkvísi. Breytingar hafa verið
geröar á herbergjaskipan frá því húsiö
var byggt, en upphaflegur stíll hússins
verið látinn halda sér. Búið er að gera
pláss í kjallara að íbúð og verslun. Þar er
Postulínshúsið, verslun fyrir postulíns-
málara, sem Hrafnhildur Óskarsdóttir
rekur.
Heimildir: Árbæjarsafn og Landsbókasafn.