Tíminn - 30.05.1996, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. maí 1996
3
Kjúklingabœndur lítt hrifnir af 100.000 kjúklingamáltíöum sem koma frá Noröurlöndum í
sumar. Bjarni Ásgeir í Reykjagaröi:
Óttast hatramma samkeppni
á kjötmarkabnum í sumar
Kjúklinga- og svínabændur
eru ekkert yfir sig hrifnir
þessa dagana þegar vib blasir
innflutningur á hátt í 200.000
máltí&um frá Noregi, Finn-
landi og Svíþjóö, 33 tonn af
hráum kjúklingum og 38
tonn af svínakjöti. Einkum
óttast kjúklingabændur hrun
í grein sinni og ógnvænlegt
veröstríb á markaöi. Fram-
leibslan á Islandi var í fyrra
rúm 1.600 tonn af kjúkling-
um og verblag lágt frá því á
sí&asta hausti.
Bjarni Ásgeir Jónsson fram-
kvæmdastjóri Reykjagarðs hf. í
Mosfellsbæ, er formaður félags
kjúklingabænda.
„í vetur hefur verið offram-
leiðsla á kjúklingum hér á landi
og það þarf ekki mikið magn til
að verðfella kjúklinginn. Menn
hafa verið að selja undir kostn-
aðarverði í vetur. Það leiðir ekk-
ert gott af sér að þannig sé hald-
ið áfram," sagði Bjarni Ásgeir.
Hann sagðist óttast hatramma
samkeppni á markaðnum í kjöl-
far innflutningsins í sumar.
Kjúklingabændur hafa ein-
hverjir áhuga á að ná í kvóta í
innflutta kjötinu, en ekki hefur
það verið rætt formlega í sam-
tökum þeirra.
Bjarni Ásgeir kvaðst ekki
skilja hvernig jöfnunargjaldib
er hindið, 148 krónur. Sú tala
þarfnast skýringar frá ráðuneyt-
inu að hans mati.
Ásgeir Eiríksson hjá Kletta-
kjúklingum er í flestu sammála
Bjarna Asgeiri:
„Ég hef ekkert á móti sam-
keppni, en ég er á móti því að
flytja störf úr landi, það er til
bölvunar fyrir þjóðfélagið. Við
eigum erfitt að keppa við millj-
ónaþjóðirnar í matvælafram-
leiðslu. Við erum reyndar skref-
inu framar en þær þjóðir hvað
varðar hreinleika og hollustu.
Þó við flytjum mest af hráefn-
unum inn, þá eru hér ekki not-
uð fúkkalyf, það hefur aldrei
verið leyft og frá því er sjaldan
greint. Ég get fullyrt að það er
ekki á mörgum stöbum á þessari
jarðarkringlu sem við fáum
kjúklinga sem jafnlítil lyf hafa
verið notuð á," sagði Ásgeir Ei-
ríksson í Klettakjúklingum í
gær.
-JBP
Framhaldsskóla-
frumvarpib
ab lögum
Framhaldsskólafrumvarpib
verbur væntanlega aö lögum
nú fyrir þinglok því þri&ju
og síöustu umræbu um þaö
lauk á Alþingi á þribjudags-
kvöld.
Frumvarpið hefur verib
nokkuð umdeilt á meðal þing-
manna og hafa stjórnarand-
stæðingar gert ýmsar athuga-
semdir við það. Megin breyt-
ingarnar frá núgildandi lögum
um framhaldsskóla fela í sér
aukna áherslu á starfsnám
þannig að auka megi veg þess
og virðingu í menntakerfi
þjóðarinnar. í frumvarpinu er
meðal annas gert ráð fyrir að
fjölga námsbrautum þar sem
starfsnám er í fyrirrúmi og
einnig að opna nemendum er
lokið hafa starfsnámi leiðir til
þess að ljúka stúdentsprófi.
-ÞI
Lækkun heimsmarkabsverbs loks ab skila sér til ís-
lenskra neytenda:
Sama lækkun hjá
Skeljungi og Esso
Heimsmarkabsverði á bensíni
hefur verib óvanalega hátt ab
undanfömu en loks virbist sem
lækkun þess síbustu daga sé ab
skila sér til íslenskra neytenda.
Esso Olíufélagib hf. lækkar í
dag bensínverb á 95 og 98 okt-
ana bensíni um eina krónu og
sömu sögu var aö segja hjá
Skeljungi í gær. Orkan hf. lækk-
aöi bensínverö um tvær krónur
lítrann um helgina en verb-
munur á bensíni hefur verib
upp í 6 krónur eftir því vib
hvaöa aðila er skipt.
Bjarni Bjarnason, fulltrúi hjá
Esso, sagði í gær að verðbreyting-
in væri tilkomin vegna lækkunar
á heimsmarkaðsverbi og líklegt
væri að verðib lækkaði enn frekar
á næstunni. Hjá Skeljungi tóku
menn í svipaðan streng en verðið
á bensínlítranum hjá þessum
tveimur aðilum er nú 74.30 á 95
oktana bensíni, sem er 1,33%
lækkun en 98 oktana bensín fer
úr 80 kr. í 79 kr., 1,25% lækkun.
Afláttur á sjálfsafgreiðslustöðvum
verður áfram kr. 1.20 hjá Skelj-
ungi og jafnframt býður fyrirtæk-
ið 2 kr. verðlækkun í kynningar-
skyni við Gylfaflöt í Grafarvogi,
Miklubraut norður og Shellstöð-
inni við Kleppsveg. Ekki nábist í
forráðamenn Olís í gær.
-BÞ
Teikning af fyrsta áfanga framkvœmda á Skólavöröuholti sem sýnir hvernig horn Eiríksgötu og Njaröargötu mun
líta út eftir breytingarnar.
Breytingar á Skólavöröuholti hafnar í sumar:
Rithöfundasamband Islands:
Svava og Stefán
heibursfélagar
Rithöfundamir Svava Jak-
obsdóttir og Stefán Júlíus-
son vom kjörin heibursfé-
lagar Rithöfundasambands
íslands á aðalfundi fyrir
skömmu. Ólafur Haukur
Símonarson, varaformabur
sambandsins, sagði af því
tilefni um heibursfélagana:
„Stefán Júlíusson er ágætur
rithöfundur og þýðandi, og
tæpast hefur barn vaxið úr
grasi á íslandi síðustu áratugi
að það hefur ekki eignast
bækur hans að vinum.
Svava er einn helsti prósa-
höfundur okkar á þessari öld.
Ritverk hennar eru orðin dýr-
mæt sameign þjóbarinnar.
Svava er einn þeirra ágætu fé-
laga okkar sem hafa setið á
Alþingi og þar hefur hún
reynst okkur góður talsmað-
ur." ■
Hom Eiríksgötu og
Njaröargötu fært
Lagfæring á homi Eiríksgötu
og Njarbargötu verbur fyrsti
áfangi framkvæmda á Skóla-
vörbuholti og ver&ur unnið
vib hann á þessu ári. Borgar-
ráb samþykkti svohljóbandi
tillögu borgarverkfræbings á
fundi sínum í vikunni.
Skólavörðuholtið og nágrenni
þess munu taka miklum breyt-
ingum áður en framkvæmdum
þar lýkur, eins og sjá má á teikn-
ingum, en ekki er fyrirséö hve-
nær það verður.
Byrjað verður á breytingum á
horni Eiríksgötu og Njarðargötu
fyrir mitt sumar og er ætlunin
ab ljúka þeim á þessu ári. Horn-
ið varð fyrir valinu sem fyrsti
áfangi framkvæmda við Skóla-
vörðuholt þar sem enn standa
yfir viðræður við sóknarnefnd
og ráðuneyti um þátttöku í fjár-
mögnun framkvæmda innan
lóðamarka Hallgrímskirkju.
Best er að átta sig á breyting-
r isa E BjS
»4 Ba i
tVr-o1- í
unum á horni Eiríksgötu og
Njarðargötu með því að skoba
teikningar. Eins og sjá má mun
efsti hluti Eiríksgötu færast í
sveigju í átt að styttunni af Leifi
Eiríkssyni og Eiríksgatan tengj-
ast þannig Frakkastígnum.
Njarðargatan sveigist einnig og
mun eftir breytingarnar enda
þar sem hún tengist Eiríksgötu.
Hornib eins og það er í dag, þyk-
ir mjög erfitt umferðarlega séð
og er ætlunin m.a. að bæta úr
því með breytingunum. Einnig
verður umhverfi hornsins fegr-
ab í fyrsta áfanga verksins og að-
koma að leikskólanum Grænu-
borg við Eiríksgötu og Hnit-
björgum, Listasafni Einars Jóns-
sonar bætt. Um leiö og horn
Eiríksgötu og Njarðargötu færist
verður tengingu Lokastígs við
Njarðargötu breytt.
-GBK
Skólavöröuholtiö, horn Njaröar-
götu og Eiríksgötu en aögengi aö
Hnitbjörgum, listasafni Einars
jónssonar, veröur m.a. bætt
Tímamynd:GVA