Tíminn - 14.06.1996, Page 3
Föstudagur 14. júní 1996
3
20 konur gáfu milljón í fyrra til björgunarsveitar og
300.000 kr. núna fyrir öryggisbúnab í sundlaug:
Fámennasta slysa-
varnadeild lands-
ins iöin við kolann
Slysavarnadeildin Hringur í
Mývatnssveit afhenti í fyrra-
dag Sundlaug Reykjahlí&ar ör-
yggisbúnað sem kostar um
300.000 kr. Framlagiö vekur
athygli vegna fámennis meb-
lima, en deildina skipa rúm-
lega 20 konur úr sveitinni.
„Við emm bara svona ráðdeild-
arsamar húsmæðurnar í sveit-
inni," sagði Ásdís Illugadóttir,
ritari í stjórn Hrings á léttu nót-
unum í samtali við Tímann í
gær. „Þetta eru bara smáaurar, í
fyrra gáfum við eina milljón í
húsnæði björgunarsveitarinnar
hérna."
Ásdís sagði að fjármögnun
Hringskvenna fælist einkum í
sölu jólaskreytinga sem Hrings-
konur búa sjálfar til og keyra
heim á hvern bæ. Einnig væri
veitingasala í Hlíðarrétt á haust-
in, kaffiveitingar seldar á
h'reppsnefndarfundum ofl. ofl.
Búnaðurinn til sundlaugarinn-
ar samanstendur af fjórum
myndavélum sem verða staðsett-
ar á botni laugarinnar auk pott-
anna tveggja og eru þær tengdar
tveimur sjónvarpsskjám. Batnar
öryggi sundgesta stórlega fyrir
vikið, en laugin er eftirsóttur við-
komustaður ferðamanna og hef-
ur fjöldinn farið á annað þúsund-
ið á dag þegar straumurinn er
mestur á sumrin. Gjöfin nú var
afhent í tilefni af 30 ára afmæli
deildarinnar en það var 9. októ-
ber árið 1966 sem kvenfélaginu
Hring var breytt í slysavarna-
deild. -BÞ
Innflutningur á fiski aukist gífurlega á fáum árum:
Fiskinnflutningur fór
í 2,5 milljarða 1995
íslendingar fluttu inn 26.300
tonn af fiski í fyrra fyrir nærri
2,5 milljarða króna. Þetta var
aukning frá árinu áður um
30% að magni til en rösklega
50% í krónum talið.
Fiskinnflutningur hefur auk-
ist úr um 10 þús. tonnum á ár-
unum 1991/92 og verðmætið
meira en þrefaldast á sama
tíma, samkvæmt skýrslum Hag-
stofunnar um utanríkisviðskipti.
Ríflega 40% þess fiskjar sem
fluttur var inn í fyrra var keypt-
ur af Rússum. Meginhluti þess
var um 10.000 tonn af þorski
fyrir rúman milljarð króna cif.,
eða kringum 100 kr. að jafnaði
fyrir kílóið.
Alls voru flutt inn tæp 12.000
tonn af þorski fyrir nærri 1,2
milljarða króna, hvar af um 7.
hlutinn var ferskur, heill þorsk-
ur.
Fryst rækja kom í öðru sæti,
rúmlega 4.100 tonn fyrir 625
milljónir króna. Mest af henni
var keypt frá Danmörku, Kan-
ada og Færeyjum.
Ferskur heill karfi kom í þriðja
sæti, 3.600 tonn fyrir 100 millj-
ónir króna. Ríflega helmingur
karfans var keyptur af Færeying-
um.
Rúmlega 200 milljónum
króna var varið til kaupa á 2.150
tonnum af smokkfiski til beitu.
Smokkfiskurinn kom frá 10
löndum um víða veröld, en þó
mest frá Bandaríkjunum, Nor-
egi, Falklandseyjum, Rússlandi,
Svíþjóð og Taívan. ■
Óánœgja meb nýjan rektor Menntaskólans vib Sund:
Formaöur skóla-
nefndar segir af sér
Formaður skólanefndar
Menntaskólans við Sund hef-
ur sagt sig úr nefndinni
vegna þeirrar ákvörðunar
menntamálaráðherra að setja
Eirík G. Guðmundsson, aðstoð-
arskólameistara Fjölbrautar-
skóla Vesturlands sem rektor
M.S.
Ingólfur H. Ingólfsson, sagði
sig úr skólanefnd MS á fundi
nefndarinnar 5. júní sl. Skóla-
nefndin hafði áður gert tillögu
um að Pétur Rasmussen, kon-
rektor við M.S. yrði settur rektor
og er Ingólfur ósáttur við að ráð-
herra skyldi ekki fara að tillögu
nefndarmanna. í bókun sem
Ingólfur lét gera á fundinum
segir m.a. að skólanefndin hafi
lagt á sig mikla vinnu og staðib
fagmannlega að tillögum um
næsta rektor við menntaskól-
ann. í bókuninni segir enn-
fremur: „Menntamálaráðherra
virti ekki tillögur nefndarinnar
án þess að sjá á þeim nokkra
meinbugi né heldur á vinnu-
brögðum nefndarinnar. Ákvörð-
un ráðherra er því byggð á eigin
geðþótta. Þetta er lítilsvirðing á
vinnu nefndarmanna og gerir
störf nefndarinnar og ákvarðan-
ir ótrúverðug. Við þessi skilyrði
treysti ég mér ekki til ab vinna
að hagsmunum skólans af sömu
einurð og áður og segi því af mér
formennsku frá þessum fundi
að telja. Auk þess mun ég til-
kynna borgarráði úrsögn mína
úr nefndinni og óska eftir að
varamaður komi í minn stað."
Tilkynning um úrsögn Ing-
ólfs var lögð fyrir fund borgar-
ráðs í gær.
-GBK
Halim Al var í beinu augnsambandi viö Dagbjörtu og Rúnu þeg-
ar þœr sögöust vilja búa hjá fööur sínum:
Gátu ekki horft í
augu móður sinnar
„Dómarinn gekk á stúlk-
urnar þegar þær voru
leiddar fyrir hann. Þegar
hann spurði þær hvar þær
vildu vera, sögðust þær vilja
vera hjá föður sínum. En
þegar hann bað þær að horfa
á móður sína meðan þær
svöruðu þá neituðu þær að
svara í annað skiptið og neit-
uðu að hta til hennar.
Dómarinn lét þær taka of-
an gleraugun en ekki blæj-
una. Það var ljóst af þessu
öllu saman að það var búib að
fara í gegnum þetta mjög oft
því maður sá hvernig Halim
A1 stýrði í rauninni svörum
þeirra með svipbrigðum í and-
liti. Þær sáu framan í hann
þegar þær svöruðu," sagði
Gunnlaugur Sigmundsson,
þingmaður, í samtali frá Ist-
anbúl í gærmorgun. Gunn-
laugur er staddur í Tyrklandi
ásamt fleirum íslendingum á
Habitat-ráðstefnu SÞ og vom
þeir viðstaddir réttarhöldin í
undirrétti í Istanbúl í forræð-
ismáli Sophiu Hansen.
Svitinn lak
af veggjum
„Andrúmsloftið mótaðist
náttúrulega af því að réttar-
salurinn var lítið skítugt her-
bergi, svona 20 fermetrar.
Þar voru gömul rykfallin
skjöl í hillum á veggjum.
Rússnesk ljósapera hékk í
loftinu og þarna var hrúgað
inn á fjórða tug manna. Það
lak svitinn af öllum og af
veggjunum og þetta var
mjög þrúgandi." Að sögn
Gunnlaugs reyndi Sophia að
mótmæla framburði stúlkn-
anna vegna þess að þeim hefði
verið skipab að segja þetta en
lögmaöur hennar bað hana
um að tjá sig ekki. „En hún
var, sá maður, í hálfgerðu
sjokki. Stóð sig samt mjög
vel."
Fagnaðarlæti
múslíma
„Svo kvað dómarinn upp
þann úrskurb að dæturnar
skyldu vera hjá föbur sínum
en hún hefði umgengni við
þær í júlí og ágústmánuði.
Þetta er þriðja skiptið sem
málib fer fyrir þennan sama
dómara í undirrétti þannig að
ef því verður vísað til hæsta-
réttar þá getur hann ekki
sent þab aftur heim í hérað,"
sagði Gunnlaugur en Sophia
hefur þegar ákveðið að áfrýja
til Hæstaréttar og verður
væntanlegur dómur hans sá
endanlegi. „Vib heyrðum þá
mikil fagnaðarlæti utan af
götu frá stuðningsmönnum
Halims."
Klapplið
Gunnlaugur sagði töluverð-
an mannsöfnuö hafa verið fyr-
ir utan dómshúsið og giskaði á
að þar hefðu verið saman
komnir um 300 heittrúaðir
múslímar. Þegar íslending-
arnir komu upp á 5. hæð
hússins þá hafi múgur og
Sophiu Hansen var úrskuröaöur réttur til aö umgangast dcetur sínar
Dagbjörtu og Rúnu í tvo mánuöi á ári en hún býst viö aö Halim Al
fari þá meö stúlkurnar í felur. Sophia hefur nú þegar ákveöiö aö áfrýja
úrksuröinum til Hœstaréttar. Dómur Hœstaréttar veröur þá endanleg-
ur því samkvœmt lögum getur hann ekki vísaö málinu aftur til undir-
réttar.
Skilningur
tyrkneskra mæðra
Gunnlaugur Sigmundsson þing-
maöur Vestfjaröa, kona hans,
og fleiri íslendingar voru viö-
staddir réttarhöldin í ístanbúl í
gœr.
margmenni verið á ganginum
fyrir utan réttarsalinn „Þar
var Halim A1 mættur með ca.
15 ungar stúlkur, allar
klæddar eins, í blæjur með
dökk sólgleraugu. Það var því
mjög erfitt að greina hverjar
væru dætur hans. Hann var
með svona 20 karlmenn með
sér sem hann stýrbi. Svo var
eitthvert klapplið þarna til
viðbótar. Við heilsuðum Halim
og hann svaraði okkur á ís-
lensku. Síðan kom Sophia og
um 10-15 lögreglumenn
fylgdu henni í bak og fyrir og
leiddu hana í gegnum þvög-
una."
Gunnlaugur sagði að íslend-
ingamir hefbu allir fengið að
fara inn í réttarsalinn og taldi
að dómarinn hefði beitt sér
fyrir því. Að úrskurðinum
uppkveðnum var mikið af fjöl-
miðlafólki mætt á staðinn og
tóku m.a. viðtöl við íslending-
ana. „Fjölmiðlar sýna þessu
mikib meiri áhuga en mig ór-
aði fyrir og þetta mál var á
forsíðu nokkurra blaba í gær."
íslendingarnir hittust svo
heima hjá Sophiu eftir dóm-
inn og í gærmorgun sendu
íslendingarnir sem viðstaddir
voru réttarhöldin frá sér
fréttatilkynningu til tyrk-
neskra fjölmiðla. Þar þakka
þeir viðtökurnar í Tyrklandi
og lofa fegurð landsins. Þar
segir líka: „í forræðismálinu
viljum við leggja áherslu á
rétt móðurinnar til jafns við
rétt föður til að umgangast og
annast börn sín. Við trúum
því að allar tyrkneskar mæður
séu okkur sammála um þetta
atriði og vonum að tyrkneskir
feður deili sjónarmiðum okk-
ar. Samkvæmt stjórnarskrá
ríkir trúfrelsi á Islandi. í
þessu máli viljum við undir-
strika eftirfarandi. 1) 10. apr-
íl 1992 var Sophiu úrskurðað
af íslenskum dómstólum for-
ræði yfir dætrum sínum og
allir málsaðilar voru íslenskir
ríkisborgarar. 2) í júní 1990
fór faðirinn með dæturnar í
heimsókn til Tyrklands og
átti að koma með þær heim
aftur 15. ágúst sama ár. Þann
dag hringdi hann og sagðist
aldrei mundu koma aftur
með dæturnar. 3) Tyrkneskur
dómstóll úrskurðaði 12. nóv.
1992 Sophiu umgengnisrétt
sem faðirinn hefur brotið
63svar sinnum. 4) Sophia
Hansen hitti dætur sínar síð-
ast 16. maí 1992. í fjögur ár
hefur faðirinn einhliða mótað
viðhorf dætranna og því var
vitnisburður þeirra við réttar-
höldin ekki sannfærandi. Við
skomm á tyrknesku þjóbina
að tryggja stúlkunum tveimur
rétt sinn til umgengni við
bába foreldra sína."
LÓA