Tíminn - 01.08.1996, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 1. ágúst 1996
Tíminn
spyr...
Kemur til greina ab beita flöt-
um niburskurbi til ab ná nibur 4
milljarba halla á ríkissjóbi á
næsta ári?
Margrét Frímannsdóttir
alþingiskona:
Flatur niðurskurður er ekki leiðin
til aö ná fram varanlegum úrbót-
um í rekstri ríkisins. Til að ráðstaf-
anirnar verði marktækar er nauð-
synlegt að fara ofan í reksturinn og
skilgreina hlutverk ríkisins betur.
Það hefur sýnt sig að flatur niður-
skurður skilar engu til lengri tíma
litið. Við flytjum vandann þá ým-
ist milli stofnana, ráðuneyta eða
ára. En markmiðið að ná fram
hallalausum fjárlögum, það er gott.
Hjálmar Jónsson
alþingismaður:
Við erum á öðm kjörtímabili flats
niðurskurðar. Það gengur ekki
lengur. Hinsvegar verðum við að
reikna með að ráðuneytin for-
gangsraði sjálf eftir tekjunum. Geri
þau það ekki þá verður þingið að
taka að sér þennan þátt í hlutverk-
um ráðuneytanna, en flatur niður-
skurður hjá þeim lýsir hugmynda-
leysi, og það er áhyggjuefni. Sparn-
aður getur ekki verið í formi flats
niðurskurðar. Það þarf ný tök á svo
mörgum sviðum.
Kristinn H. Gunnarsson
alþingismabur:
Það er útaf fyrir sig erfitt að ná nið-
urskurði af þessu tagi öðmvísi en
það komi við öll ráðuneytin. Ég
held hinsvegar að það sé mjög erf-
itt að ná hlutfallslegum niðui-
skurði í heilbrigðisráðuneytinu.
Það þýðir niðurskurð um 1, 5 millj-
arða og ég sé ekki að það sé mögu-
legt, nema með miklum átökum.
Þó er víða hægt að taka til hend-
inni því í heilbrigðiskerfinu lifir
góðu lífi velferðarkerfi hálauna-
manna, sem emja eins og stungnir
grísir þegar við þá er komið.
Þingvallavatnssiglingar hófu
rekstur á útsýnissiglingum um
Þingvallavatn í byrjun síbasta
mánaðar. Fólk getur nú í fyrsta
skipti keypt sér siglingu um
vatnib og notib umhverfisins
frá nýju sjónarhorni.
Þessari nýbreytni er vel tekið
að sögn Ómars G. Jónssonar hjá
Þingvallavatnssiglingum. Að-
spurður segir hann aðsókn ís-
lendinga heldur meiri heldur en
útlendinga. Útsýnisferðin tekur
Félagsfundur SEM-samtakanna mót-
mælir harblega þeirri ákvörðun
stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur að
leggja nibur Endurhæfingardeildina
á Grensási. „Meb því ab leggja deild-
ina nibur er kastab fyrir róba rúmlega
20 ára starfi, reynslu og þekkingu á
endurhæfingu mænuskaddabra", seg-
ir i fundarsamþykkt Samtaka Endur-
hæfbra Mænuskaddabra.
um það bil eina og hálfa klukku-
stund. Það er siglt frá Skálabrekku
sem er rétt sunnan vib Þingvelli,
ab Þingvöllum, austur með
ströndinni og komið upp suður-
ströndina. Um borð er kort af
svæðinu og er fólki bent á helstu
kennileiti. Báturinn sem siglt er á
heitir Sómi, hann tekur 16 manns
í sæti og er búinn öllum öryggis-
búnaði samkvæmt kröfum Sigl-
ingamálastofnunar. Útsýnisferbir
um Þingvallavatn verða í boði um
Með lokun deildarinnar sé hætt við
að þrautþjálfað starfsfólk dreifist á aðrar
sjúkrastofnanir þar sem starfsreynsla
þeirra og þekking nýtist ekki sem skyldi
í komandi framtíb. Samtökin skora á
heilbrigbisrábherra, stjórn Sjúkrahúss
Reykjavikur og þingmenn Reykjavíkur
að koma á mótmælafund sem þau efna
til á Grensásdeild á hádegi í dag.
sumartímann, alla daga vikunnar,
svo fremi sem veður leyfir, en þær
þarf að panta fyrirfram. -gos
Myndbœr gefur út tvö ný
myndbönd um íslenskan sjáv-
arútveg:
Sjávarútvegur-
inn kominn á
myndband
Myndbær hf. hefur gefib út tvö
ný myndbönd um sjávarútveg;
„Islenskur sjávarútvegur" og „Ice-
land New Horizones in Fishing".
Myndirnar eru unnar í samstarfi
vib Fiskifélag íslands og byggbar
á upplýsingum í Útvegi. „Þar eru
ítarlegustu upplýsingar um ís-
lenskan sjávarútveg sem til eru á
einum stab", segir í tilkynningu
frá Myndbæ.
Myndirnar fjalla um fiskveiði-
stjórnun, skipastól og hafnir, helstu
fisktegundir, veiðisvæði og veiðar,
vinnslu sjávarafurða, útflutning
þeirra og veiðar á fjarlægum mið-
um. Myndirnar verða notabar í
skólum landsins og til upplýsinga
fyrir þá sem starfa vib sjávarútveg
og þjónustugreinar hans. ■
Sagt var...
Orb í tíma tölub
„Hann er kannski ekki beint lélegur
rithöfundur, en ekki í hópi bestu ís-
lensku höfundanna. Hann er fjöl-
miblafyrirbæri, blanda af persónunni
og rithöfundinum. Þab er ímyndin
sem selur, ekki bókin."
Inge Knutsson þý&andi segir sko&un
sína á rithöfundinum Olafi jóhanni Ol-
afssyni í Alþý&ublaöinu í gær.
Einhvern veginn kemur þetta
ekki á óvart
„Satt ab segja finnst mér sænskar
bókmenntir fremur leibinlegar. Þær
eru grafalvarlegar og sjálfhverfar."
Inge Knutsson í Alþý&ubla&inu.
Svikadeild lögreglunnar vinnur
góbverk
„Nýlega læknubust til dæmis 40
„blindir" menn á Sikiley af meini sínu
þegar þeim var bent á, ab þeir færu
allra sinna ferba á bíl."
Morgunbla&iö í gær um tryggingasvik
á Ítalíu.
Öllu fórnab fyrir völdin
„Þab sem máli skiptir er ab Alþýbu-
flokkurinn mun áfram halda um
stjórnartaumana í kratabænum Hafn-
arfirbi".
Guömundur Árni Stefánsson í Alþý&u-
blaöinu í gær.
Þab er ekki oft sem mabur er
sammála Svía!
„Ég hef nokkrum sinnum verib beb-
inn um ab þýba vissan íslenskan höf-
und sem ég hef talib ab sé ekki
heppilegur fulltrúi íslenskra bók-
mennta erlendis og hef því ekki viljab
þýba verk hans."
Inge hinn sænski um Ólaf Jóhann Ólafs-
son.
Á ísland ab skipta um nafn?
„Víst höfum vib gert skyssu ab skipta
ekki fyrir löngu um nafn á landinu.
Nafnib sjálft, ísland (ab ekki sé
minnst á „lceland"), er fráhrindandi
og misvísandi. þab hamlar samskipt-
um okkar vib fjölmennustu ríki...
Þab er engin ástæba til ab kenna eitt
„heitasta" land í heimi vib ís og
kulda."
Geir R. Andersen bla&amaöur í Dag-
bla&inu í gær.
Síöasti ríkisrábsfundurinn meb frú
Vigdísi Finnbogadóttur var haldinn
í gær. Eins og tilheyrir var snæddur
hádegisverbur meb forsetanum. í
pottinum fullyrtu menn ab meb for-
drykk léttum sem bobib var upp á á
undan matnum hafi ónefndur ráb-
herra sagt ab þab væri best ab njóta
vel þessa drykks, enda ekki seinna
vænni því nú yrbi vínkjallaranum lok-
ab ...
... í pottinum voru menn sammála
um ab |ón Arnar tugþrautakappi
hefbi leikib sterkum leik í tugþraut-
inni meb því ab mæta meb skegg í
fánalitunum, en Jón hafbi litab skegg
sitt blátt, rautt og hvítt. Sjónvarps-
vélar heimsins beindust því mest ab
honum en heimsfrægir kapparféllu
alveg í skuggann eins og sjónvarps-
áhorfendur gátu raunar séb í beinu
útsendingunni síbdegis í gær...
•
í pottinum í gær var verib ab ræba
um langtímaspár Veburstofunnar og
þá staðreynd ab spánni frá því ab
morgni er kippt út af símsvaranum á
kvöldin. Eins og fram kemur ÍTiman-
um í dag munu veburfræbingarnir
telja að langtímaspáin sé ekki lengur
marktæk á kvöldin og nóttunni því
forsendur séu brostnar og þess
vegna borgi sig ekki ab hafa hana í
gangi enda von á nýrri ab morgni.
Ferbaglöbu mennirnir í pottinum
töldu þab í raun hreinan óþarfa að
vera yfirleitt meb langtímaspá sem
ekki stenst nema yfir blá daginn ...!
SEM-samtökin mótmcela haröiega ákvöröun um lok-
un Grensásdeildar:
Tuttugu ára starfi
kastaö fyrir róba