Tíminn - 02.08.1996, Qupperneq 1
EINARJ.
SKÚLASON HF
80. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 2. ágúst 145. tölublað 1996
\ í f I 1 |
■ •' ■
1 —BBWwÍB ghl :
4
Nýr
forseti
tekur vib
Skattrannsóknarstjóri segir þaö meira áhyggjuefni ab skrifstofan hans anni ekki almennum
verkum en hvort virbisaukaskattssvik hafi aukist á þessu ári:
Óttast að VSK-svik hafi
stóraukist á þessu ári
Formaöur fjárlaganefndar
Alþingis telur fulla ástæöu
til aö kanna hvort VSK-svik
séu aö stóraukast á þessu ári,
en skattrannsóknarstjóri
segir ekkert geta sagt um
þaö. Skattrannsóknarstjóri
hefur hins vegar miklar
áhyggjur af annríki embætt-
isins.
Ýmsum þykir meö ólíkind-
um, í ljósi stóraukinnar veltu
flestum sviöum, aö tekjur rík-
issjóös af virðisaukaskatti
(VSK) skyldu aðeins fara 200
milljónir (1%) framúr áætlun
á fyrri helmingi þessa árs. í
fjárveitinganefnd og fjármála-
ráðuneyti höfðu menn vænst
allt aö 800 milljóna kr. aukn-
ingar. VSK af innflutningi fór
að vísu 1,8 milljarða (13%)
framúr áætlun, en virðisauka-
skattur af innlendri fram-
leiðslu varð hins vegar 1,5
milljörðum minni en áætlað
var. Formaður fjárveitinga-
nefndar, Jón Kristjánsson, seg-
ir að þess verði farið á leit við
fjármálaráðuneytið að skoða
málið nánar og fylgjast grannt
með þróuninni næstu mán-
uði.
Skattrannsóknarstjóri, Skúli
Eggert Þórðarson, var spurður
hvort þetta gæfi hugsanlega til
kynna að skattsvik væru enn
að aukast. „Það verður að hafa
í huga að þetta eru tölur fyrir
aðeins helming ársins, þannig
að í ákveðnum tilfellum kann
skýringin að felast í aukinni
birgðasöfnun. Það er samt
frekar ólíklegt að mismunur-
inn skýrist eingöngu af því.
Hin skýringin er aukin skatt-
svik".
Þannig að þú álítur megin-
skýringuna felast í auknum
skattsvikum?
„Þessi mismunur gefur alla-
vega tilefni til að staldra við og
hugleiða málið. Að mínu mati
er a.m.k. ekkert sem bendir til
að umfang skattsvika séu
minnkandi. En hvort þau eru
að aukast, það veit maður
ekki".
Má þá búast við að þetta
verði skoðað nánar? „Við er-
um auðvitað í þeim bissnis
alla daga. Það er enginn skort-
ur á verkefnum — þvert á móti
komumst við ekki yfir öll þau
verkefni sem okkur eru ætluð.
Og það er sérstakt áhyggju-
efni", sagði skattrannsóknar-
stjóri.
Við kynningu fjármálaráðu-
neytis á afkomu ríkissjóðs á
fyrri helmingi ársins kom fram
að rúmlega 1.500 milljóna
minni skil virðisaukaskatts en
áætlað var skýrðust að hluta til
af 660 milljóna króna meiri
endurgreiðslu til sjávarútvegs
en áætlað var. Um fjórðungs
aukning á innflutningi fjár-
festingarvara, kynni einnig að
valda einhverjum tilfærslum í
greiðsluflæði á tímabilinu. í
tekjuáætlun fjárlaga hefði
þvert á móti verið gert ráð fyr-
ir nokkrum viðbótartekjum af
VSK á þessu ári vegna aukinn-
ar framleiðslu í kjölfar mikilla
fjárfestinga í atvinnurekstri á
síðasta ári, og þar af leiðandi
mikils frádráttar á innskatti frá
útskatti. Þessi áhrif virtust
lengur að koma fram en búist
hafi verið við.
Veltuaukning og hagnaöur hefur
orbiö hjá Eimskip hf. á yfirstand-
andi ári. Velta fyrirtækisins og
dótturfyrirtækja þess jókst um
12% miöaö viö sama tímabil í
fyrra og er hagnaöurinn um 291
milljón en var 844 milljónir
króna á sama tíma í fyrra.
Segir í frétt frá félaginu aö eink-
Um sex þúsund manns biöu þess
ab hylla nýja húsbændur á
Bessastöbum í veburblíbunni á
Austurvelli í gœrdag, þau Ólaf
Ragnar Grímsson og Gubrúnu
Katrínu Þorbergsdóttur. Fram fór
klukkutíma löng hátíbleg athöfn
í Dómkirkjunni og í Alþingishús-
inu ab vibstöddum á þribja
hundrab bobsgestum. Á mynd-
inni eru forsetahjónin á svölum
Alþingishússins. Forsetinn bab
vibstadda og þá sem á horfbu í
sjónvarpinu ab minnast fóstur-
jarbarinnar meb ferföldu húrra-
hrópi. Tíminn var á stabnum og
lýsir því sem fyrir augu bar á bls.
11, 12, 13 og 14.
Tímamynd: GS
um megi skýra veltuaukninguna
meö auknum umsvifum félagsins í
flutningaþjónustu innanlands,
meiri áætlanaflutningum til og frá
íslandi en á sama tíma í fyrra og
vaxandi erlendri starfsemi.
Á fyrstu sex mánuðum ársins
voru heildarflutningar með skipum
Eimskips 569 þúsund tonn. -ohr
Eimskipafélag íslands á beinu brautinni:
Veltuaukning og hagnaöur