Tíminn - 27.08.1996, Blaðsíða 4

Tíminn - 27.08.1996, Blaðsíða 4
4 Þri&judagur 27. ágúst 1996 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Gu&mundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1. 105 Reykjavík Sími: 56B1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmi&ja hf. Mána&aráskrift 1700 kr. m/vsk. Ver& í lausasölu 150 kr. m/vsk. Jafnvægi eba afgangur Þingflokkar stjórnarflokkanna funduðu um fjár- lagagerðina um helgina og voru þar samþykktar útlínur fjárlagafrumvarpsins til frekari útfærslu í ríkisstjórn. Þótt einstök atriði frumvarpsins verði ekki birt fyrr en með frumvarpinu í byrjun októ- ber, eru þó nokkrar meginlínur ljósar. í fyrsta lagi er ætlunin að afgreiða fjárlög fyrir árið 1997 hallalaus, en slíkt markmið hefur ekki verið sett um árabil. í öðru lagi er ákveðið að ekki verði breytt reglum um lífeyristryggingar til frek- ari skerðingar né lögð á þjónustugjöld. Hins vegar er ætlunin að halda áfram viðleitni til sparnaðar í heilbrigðiskerfinu og þá í sjúkrahúsarekstrinum. Þrátt fyrir það er ljóst að framlög til heilbrigðis- og tryggingamála hækka á milli ára. Það er mikilvægt markmið að afgreiða hallalaus fjárlög, en sitt sýnist hverjum um það markmið. Forsvarsmenn atvinnulífsins hafa talið að ekki sé nógu langt gengið og tekjuaukning ríkissjóðs vegna hagvaxtaraukningar sé það mikil að hún gefi tilefni til þess að reka hann með afgangi. í sama streng tekur forstjóri Þjóðhagsstofnunar, en tekur þó fram að það séu aðeins tvö OECD-ríki sem reka ríkissjóð hallalausan, en það séu Noregur og Lúxemborg. Norðmenn munu reyndar reka rík- issjóð með mjög verulegum hagnaði, enda eru þeir stórveldi efnahagslega miðað við stærð þjóðfélags- ins. Forsvarsmenn launþega hafa hins vegar talað í þá veru sem formaður Verkamannasambands ís- lands gerði í fjölmiðlum um helgina, að hallalaus fjárlög mættu ekki verða trúaratriði. Rekstur ríkissjóðs hefur ekkert með trúmál að gera. í þeim málum blasa við áþreifanlegar stað- reyndir, sem eru þær að hallarekstur þarf að fjár- magna með lánum, nákvæmlega eins og hjá heim- ilum og fyrirtækjum. Svo hefur verið gert á liðnum árum með þeim afleiðingum að skuldir eru miklar og vaxtagreiðslur af þeim eru, eftir að grunnskól- inn var fluttur til sveitarfélaganna, annar stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs næst á eftir heilbrigðis- og tryggingamálum, og hefur slegið út útgjöld til menntamála og opinberar framkvæmdir. Ef skuld- setningin fær að halda áfram og vextirnir halda þar með áfram að hækka, þá er borin von að hægt sé að halda uppi þeirri velferð sem nú er. Þetta er áþreifanleg staðreynd en ekki trúarbrögð. Þótt æskilegt hefði verið að reka ríkissjóð með afgangi í uppsveiflu, verður að hafa í huga að ver- ið er að ná niður halla upp á fjóra milljarða. Ef lengra hefði verið gengið, hefði það þýtt að ganga hefði þurft að velferðarkerfinu og notendum þess á sama tíma og rofar til efnahagslega. Slíkt er hvorki raunhæft né æskilegt markmið. Meginmálið er að setja raunhæf markmið í ríkis- fjármálum og reyna síðan að standa við þau. Markmiðið um hallalaus fjárlög 1997 á að sameina þetta tvennt. Það fer bil beggja á milli sjónarmiða verkalýðshreyfingar og vinnuveitenda. Pólitískt vægi húsvarba Sveitarstjórnarpólitíkin getur á stundum tekib áhugaverbar sveiflur og í rauninni furöulegt hvab stjórnmálafræðingar hafa lítib gert af því að skrifa fræðigreinar um þennan anga stjórnmálanna. Samsteypustj órnakenningar stj órnmálafræðinnar miða — ab því Garra hefur verib sagt — fyrst og fremst við pólitík á landsvísu og fræðingarnir hafa sett sig í miklar stellingar við að útskýra og búa til skýringarmódel sem byggja fyrst og fremst á þingstyrk annars vegar og svo hugmyndafræði hins vegar. Allra flottustu kenning- arnar stilla þessu hins vegar saman og reyna að finna einhverja sam- nefnara sem borið geta uppi al- mennar kenningar um hvað fær menn til ab vinna saman í stjórnmálum. Garri hefur orð fróðra manna fyrir því að afar sjaldgæft sé að fræðikenningar um samsteypustjórnir útskýri nokkurn skapaðan hlut í raunveruleikanum. Það mun þó vera umtalað að einn helsti fræðimaður Islendinga á sviði samsteypustjórna hafi fyrir löngu gert sér grein fyrir mikilvægi sveitarstjórn- armála varöandi samstarf stjórnmálaflokkanna. Þetta er enginn annar en sjálhir forseti lýðveldis- ins og stjórnmálafræðingurinn Ólafur Ragnar Grímsson sem skrifaði um það fyrir aldarfjórð- ungi að á íslandi væri margra hæða samsteypu- stjórnakerfi og var þá m.a. að vísa til mikilvægis bandalaga í sveitarstjórnum og ættar- og fjöl- skyldutengslum hvers konar. Hvab meö húsveröi, Ólafur? Satt að segja er það skoðun Garra að með þessu hafi Ólafur Ragnar bjargað heiðri fræöimanna á þessu sviði, en gallinn er bara sá að hvorki hann né aðrir stjórnmálafræðingar hafa þróað þessar kenningar að nokkru marki. Afleiðingin er m.a. sú að stjórnmálafræðin sem fræðigrein getur sára- lítið gert til að útskýra sveitarstjórnarpólitík á ís- landi. Þannig munu t.d. ekki vera tiltækar neinar raunhæfar kenningar sem útskýra mikilvægi þess fyrir stjórnmálaöfl að hafa lögsögu yfir embætti húsvarða í grunnskólum. Ólafur Ragnar minnist hvergi á húsverði í sinni fræðilegu úttekt á margra hæða samsteypustjórnakerfinu á íslandi og hlýtur þab að draga stórlega úr gildi hinnar fræðilegu greiningar sem hann setur þar fram. Sannleikur- inn er nefnilega sá að staöa húsvarðar við grann- skóla í sveitarfélagi er afar mikilvægur orsakavald- ur í íslenskum sveitarstjórnarstjórnmálum, eins og dæmin sanna. Garri man í fljótu bragði eftir erfiðum málum í Hafnarfiröi, þar sem einn aðal krataforinginn í bænum þurfti að bera þann kross aö hafa hyglað skyldmenni sínu og flokksgæðingi með ab fá hann ráðinn sem húsvörö í grunnskóla. í Borgarfirði risu fyrir allnokkra erfið pólitísk mál út af húsvarða- rábningum og menn geta í raun rakið sig hringinn í kringum landið og séb að húsvarðastarf í grunnskóla er víða þýðingarmikill átakapunktur í stjórnmálum. Valdaaöstaöa húsvaröar Skýringarnar á því era auövitaö margar og í raun augljósar. Húsverðir era valdamenn í sínu umdæmi, þeir ráða talsveröu um hvernig málum er fyrir komib í þeim húsum sem þeir gæta. Hús- verðir era að veralegu leyti sjálfs sín herrar og ráða verk- og vinnulagi sínu sjálfir. Og síðast en ekki síst þá hafa húsverðir um þab val hvort þeir vinna úti eða inni. Þeir geta þannig valið sér að vera í útivinnu þegar veðrið er gott, en þeir geta stundað innivinnu þegar veðrib er slæmt. Þeim, sem gera sér grein fyrir því hversu tak- mörkuð stjórnmálafræðin er til útskýringar á samsteypustjórnamyndunum I sveitarstjórnar- pólitíkinni, kemur því ekki á óvart að heyra ab staða húsvarðar var einmitt það sem splundraöi góðu og tryggu eins flokks meirihlutasamstarfi í Hveragerði um helgina. Knútur Braun, áður for- seti bæjarstjórnar, lenti þá upp á kant við félaga sína um ráðningu á húsverði í grannskólann. Sú húsvarðarráðning hefur síðan orðib til þess að gamli meirihluti sjálfstæðismanna féll og mynd- aður hefur verið nýr meirihluti um ráðningu ann- ars húsvarðar en þess sem Knútur ætlaði ab ráða. Knútur, sem sat í forsæti bæjarstjórnar fyrir helgi, er nú — eins og húsvarðarefni hans — úti í kuld- anum, aleinn í minnihluta. Garri GARRI Pítan og skagfirskar rúgkökur Einu sinni sem oftar var fólk á ferö til að njóta íslands. Ferða- langarnir sem hér er sagt frá komu í sjávarpláss eftir langan og strangan áfanga og hugs- uðu nú gott til glóöarinnar að njóta landsins gæða og kýla vömbina. Á staðnum var einn greibastaður og á löngum mat- seðli einn réttur, píta. Fjöl- breytnin fólst í mismunandi bragðtegundum majonessins. Þegar glorsoltiö ferðafólkið 'spurði hvort ekki væri vegur að hleypa upp á soöningu eða hvort eitthvað væri eftir af kjötsúpunni síðan í gær eða hangikjötinu frá sunnudeginum var svarið: Svo- leiðis mat bjóðum vib ekki upp á hér. Allir fyrir sunnan borða pítu og allir kaupa hana hér. í út- löndum er píta í öll mál. Öllum sem borða píturn- ar okkar finnast þær góðar. Sultargemlingarnir okkar borðubu þarna pítu í fyrsta og síðasta sinn. í pítubænum era gerðir út smábátar sem sækja gjöful og fjölbreytt heimamið. Baklandið var ann- álað fyrir væna saubi og hangikjöt sem ber af öðra ljúfmeti. En ekki þótti kurteisi að bjóða ferðafólki upp á svo sveitalegan kost. Árangursrík fitubrennsla Þjónusta við ferðamenn er vaxtarbroddurinn í athafnalífinu. Á þennan brodd steytti maður nokkram sinnum um helgina. Staölaðir skyndi- bitastabir meö ennþá staðlaðri matseðli fylgja hverri bensínstöð og klósetti sem þjónusta þá sem aka hringveginn. Hvort sú næring sem seld er á þessum stöðum — sem eru svo nákvæmlega eins að þeir gætu verið fundnir upp hjá ES og gefnir út í 1000 síðna bindum — er gób eba vond er smekksatriði. Hitt er næsta víst að næstum ekkert af því sem þarna er matarkyns hefur nokkra sinni leitað inn á lista Manneldisráðs um æskilega nær- ingu. Á einum skyndibitastað varð viðstaöan hátt á aöra klukkustund, þar sem ekki tókst að brasa í skyndi eins og efni stóbu til. En þykkar voru sös- urnar og hitaríkar og ekkert til sparað ab útvega fitubrennslustöðvum hráefni þegar þær fara í gang með haustinu. Þær era þegar farnar að auglýsa árangursrík fitu- brennslunámskeib. Staball brotinn Á einum af mörgum skyndibita- stöðum hringvegarins er reglan um staðalinn brotinn. Verslun er fyrir innan braspottana og þangað lagði sérvitringurinn sem hér böl- sótast leið sína. Og viti menn. Þarna var svolítið afsprengi nægtahorns héraðsins falið í hill- um innan um vettlinga og garð- yrkjuáhöld. Þab tók ekki nema brot af þeim tíma sem skyndibit- inn er brasaður að finna staðgóða máltíö, sem kostaði næstum því ekki neitt. Áleggið úr kjötvinnslunni, ostarnir úr mjólkur- búinu og tómatarnir úr næsta nágrenni vora þama eftir allt saman. Og vænn hlaði af rúgkök- unum hennar Stínu í Skagafirði kostaði innan við hundraðkall. Og hvílíkar kökur, ofurlítið klesstar með léttu branabragði eins og baksturinn hafi far- ið fram yfir eldi. Svona leitaði þróuð matarmenn- ing inn fyrir skyndibitann eftir allt saman. En hún var vel falin. Mörgum þykja pylsur, brasað kjöt og brasaðar kartöflur meb staðgóðum kokkteilsósum öðram kosti betri og er þeim þjónað afbragðsvel af þeim sem tekið hafa ab sér vaxtarbrodd atvinnulífsins, sem er auðvitab ferðamannabransinn. En það má líka hugsa um alla þá sem heldur vilja annars konar fæðu og mundu staldra við ef í boði væri algengur matur sem heimamenn í hverju héraði leggja sér að jafnaði til munns. Það má nefnilega alveg eins þéna vel á að selja slátur og velling, saltfisk með heimabökubu rúgbrauði og kjötsúpuna sem hún amma bjó til öllum kerl- ingum betur, eins og alþjóðlegt raslfæði, sem er alls staðar eins. Og rúgkökurnar hennar Stínu í Skagafirði gefa Big Mac og allri þeirri kólesterólfamilíu ekkert eft- ir, ef aðeins einhver legði sig eftir að selja þær, eða markaðssetja á nútímamáli. Ef með þeim fengist hangikjöt frá Hólsfjöllum og silungur frá Geiteyj- arströnd, væri farið ab nálgast heimsmetið í mat- gerðarlistinni. Þá fyrst væri hægt aö tala um ferba- mannaþjónustu í alvöru. OÓ Á víbavangi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.