Tíminn - 30.08.1986, Side 2
2 Tíminn
Laugardagur 30. ágúst 1986
Unga fólkið - 18-24 ára - virðist
hafa nær alveg sömu skoðanir og
þeir sem eldri eru, samkvæmt
þjóðmálakönnun sem Félagsvís-
indastofnun gerði fyrir SUF í júlí-
mánuöi s.l. Farvarleitaðálitsfólks
á atriðum eins og jöfnun búsetu-
skilyrðay sjúklingaskatti,
greiðslu skólagjalda, erlendri eign-
araðild á fyrirtækjum hérlendis,
stjórnmálaflokkum og stofnunum
og fyrirtækjum. í engu þessara
atriða voru skoðanir þeirra ungu
að ráði frábrugðnar skoðunum alls
hópsins. Miklu meiri skoðana-
mundur kom hins vegar fram milli
karla og kvenna um ýmis atriði.
Röðun á lista
skiptir litlu?
Fyrir stjórnmálaflokkana hlýtur
að vera athyglisvert að 57% yngstu
kjósendanna segja það litlu sem
engu máli skipta við val þeirra á
flokki hve margir frambjóðend-
anna eru undir 36 ára aldri. f>að
hlutfall var hins vegar um 66%
meðal allra þátttakenda. Fjöldi
kvenna á listunum skiptir sömu-
leiðis litlu sem engu máli fyrir 73%
kjósenda, jafnt meðal þeirra
yngstu og eldri. Það hlutfall meðal
kvenna var hins vegar 65%. En
þótt meirihlutinn láti þessi atriði
ekki hafa áhrif á val þeirra á
stjórnmálaflokkum er þó mikill
meirihluti bæði ungra og eldri og af
báðum kynjum sem telur of fáar
konur og ungt fólk sitja á Alþingi
nú.
Flestir með jöfnun
búsetuskilyrða
Mikill meirihluti kjósenda er
frekar eða alveg sammála því að
stuðla beri að sem jöfnustum bú-
setuskilyrðum um allt land, jafnvel
þótt það kosti aukin þjóðarútgjöld.
Þarna var yngsti hópurinn m.a.s.
heldur ákveðnari, eða 78% miðað
við 71% alls hópsins .
Aðeins um fjórðungur er fremur
eða alveg sammála því að sjúkling-
ar verði sjálfir látnir greiða meira
af kostnaði við heilbrigðisþjón-
ustu, þó svo almennar skattalækk-
anir kæmu á móti. Hlutfallið í
yngsta hópnum var 28%.
Yfir helmingur (56%) alls hóps-
ins var andvígur því að foreldrar
greiði skólagjöld, þó svo almennar
skattalækkanir kæmu á móti.
Þarna voru þeir yngri heldur linari,
eða 49% á móti.
Á móti erlendri
eign fyrirtækja
Afstaða til sjúklingaskatts og
skólagjalda var hins vegar ábcrandi
önnur meðal stuðningsmanna Sjálf-
stæðisflokksins og hinna flokk-
anna.
Afstaða bæði þeirra yngstu og
allra skiptist nokkuð jafnt með og
á móti því að landshlutasamtök og
héruð sjái fremur en ríkið um
skóla og heilbrigðisþjónustu.
Helmings- eða meirihlutaeign út-
lendinga á fyrirtækjum á Islandi
nýtur aðeins um 20% stuðnings
bæði ungra og gamalla (þó um
30% meðal krata og sjálfstæðis-
manna).
Velvild til
bændasamtakanna
Aðeins um 16% allra hafa nei-
kvætt viðhorf til bændasamtakanna
og aðeins um 8% þeirra yngstu.
Jákvætt viðhorf höfðu 50-53% allra
(aðvísu aðeinsum49% kratanna).
Viðhorf til Samvinnuhreyfingar-
innar skiptist nokkuð jafnt í
jákvætt, hlutlaust og neikvætt. Já-
kvætt viðhorf til ASÍ, skipt eftir
stjórmálaflokkum, var mest 68%
hjá Alþb. og minnst 46% hjá
Bandalagi jafnaðarmanna - nei-
kvætt mest 31% hjá Kvennalista
og minnst 9% hjá Framsókn. Já-
kvætt viðhorf til samtaka atvinnu-
rekenda var mest 59% hjá sjálf-
stæðismönnum en minnst 30% hjá
Alþb., Bandalaginu og Kvenna-
lista.
Hverjir eru
tækifærissinnar?
Spurðir hvort stjórnmálaflokkar
séu tækifærissinnaðir nefndi um
þriðjungur allra einhvern flokk-
anna. Hins vegar svöruðu 26%
þeirra yngstu því alfarið neitandi
en 18% alls hópsins. í þessu efni
skiptast skoðanir mjög eftir
stjórmálaflokkum. Þannig taldi um
helmingur framsóknarmanna sem
nefndi einhvern flokk að Alþýðu-
flokkurinn væri tækifærissinnaður
og svipað hlutfall í Bandalagi jafn-
aðarmanna taldi Sjálfstæðisflokk-
inn tækifærissinnaðan. Kratar,
sjálfstæðismenn og Kvennalista-
fólk telur tækifærismennskuna hins
vegar helst að finna í Framsóknar-
flokknum.
Ekkert gamaldags
Um 40% yngstu kjósendanna
höfnuðu því alfarið að stjórnmála-
flokkarnir væru gamaldags og að-
eins færri í öllum hópnum. Rösk-
lega þriðjungur svaraði hins vegar
játandi og voru það þá fyrst og
fremst Framsókn og Sjálfstæðis-
flokkur sem tilnefndir voru -HEI
Verölagsgrundvöllur landbúnaðarvara:
HÆKKUN 1. SEPTEMBER
ER BRÁDABIRGDAHÆKKUN
Endurskoðaður verðlagsgrund-
völlur landbúnaðarvara er væntan-
legur í lok september. Nýtt verðlags-
ár byrjar hins vegar 1. septcmber og
verðákvörðun búvara þá verður því
að vera til bráðabirgða þar til bú-
vöruverð verður ákveðið endanlcga
samkvæmt nýja verðlagsgrundvell-
inum. Hækkun 1. septcmbcr veröur
2,86% til bráðabirgða.
Ýms rök virðast hníga í þá átt, að
kindakjöt komi til með að hækka
meira heldur en mjólkin, en það
mun cndanlega koma í Ijós þegar
hinn nýi verölagsgrundvöllur liggur
fyrir.
Núgildandi verðlagsgrundvöllur
cr frá árinu 1980 og gildir fyrir
blönduð bú. Síðastliðið ár hefur
vcrið aflað upplýsinga um sauðfjár-
bú og kúabú og hinn nýi verðlags-
grundvöllur verður tvískiptur, ann-
ars vegar fyrir sauðfjárbú og hins
vegar fyrir kúabú. Þau gögn sem
notuð cru til grundvallar nú, eru
búreikningar Búreikningastofu
landbúnaðarins og einnig var unnið
sérstakt úrtak úr framtölum 424
lögbýla fyrir árið 1984. Þetta úrtak
var tekið úr búmarksskrám Fram-
leiðsluráðs og miðað var við að í
úrtak kæmi 7. hver bóndi sem hefði
búmark umfram 250ærgildi. -ABS
Staðarsel í Breiðholti, fegursta gata í Reykjavík 1986. (Tímamynd-Sverrir)
Reykjavík:
STADARSELER
FEGURSTA GATAN
Staðarsel í Breiðholti var valin
fegursta gatan í ár af Umhverfis-
málaráði og fær gatan að hafa
merki fegrunarnefndar næstu 10
ár.
Fjölbýlishúsin að Miðleiti 5-7 og
Flyðrugranda 2-10 og 12-20 fengu
viðurkenningu fyrir snyrtilegt útlit
og fyrirtækin Póstur og sími við
Ármúla, Hitaveita Reykjavíkur
við Grensásveg, Kristján Siggeirs-
son hf. Hesthálsi, Smith og Nor-
land hf., Nóatúni, ísól hf. Skip-
holti. Tollvörugeymslan hf. Héð-
insgötu, Daníel Ólafsson & co
Vatnagörðum, Kyndill Smiðs-
höfða og Vatnsveita Reykjavíkur
Breiðhöfða fengu öll viðurkenn-
ingu fyrir snyrtilegt umhverfi.
Starfsnám Verslunarskóla íslands:
Engar forkröfur
í sérhæft nám
- á sviöi bókhalds- og skrifstofustarfa
Verslunarskóli Islands býður nú
í haust upp á tvær brautir
starfsnáms, skrifstofubraut og bók-
haldsbraut og fer kennslan fram á
kvöldin frá kl. 17.30 til 22.00 frá og
með miðjum september. Brautirn-
ar eru samsettar af 8 námskeiðum
hvor og hægt er að Ijúka námi á
einu námsári eða þremur misser-
um. Engar forkröfur eru gerðar og
eru brautirþessar þvíopnaröllum.
Á bókhaldsbraut er kenndur
verslunarreikningur, rekstrarhag-
fræði, bókfærsa I, II og III, tölvu-
bókhald, kostnaðarbókhald og
tölvukennsla. Á skrifstofubraut er
kennd vélritun I og II, bókfærsla 1,
verslunarreikningur, íslenska, rit-
vinnsla, viðskiptaenska og skjala-
varsla.
Að sögn Helga Baldurssonar
forstöðumanns starfsnámsins er
nám þetta sérstaklega ætlað þeim
sem annað hvort vilja skipta um
vinnu eða taka að sér ábyrgöar-
meiri störf á vinnustað. Einnig
kemur það sér vel fyrir þá sem hafa
sjálfstæðan atvinnurekstur sem er
að vaxa og í stað þess að þurfa að
ráða starfskrafta með sérþekkingu
á sviði bókhalds og viðskipta geta
menn aflað sér þekkingar sjálfir á
skömmum tíma sem nægir til þess
að ráða við vaxandi rekstur fyrir-
tækisins.
Kennsla á brautum þessum er
aðallega fjármögnuð meö náms-
gjöldum, en hver kennslustund
kostar að meðaltali um 100 kr.
Hvert námskeið er á bilinu 40-60
kennslustundir. Helgi sagði að
starfsmannafélög ríkisstofnana,
Reykjavíkurborgar og Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur hefði
styrkt starfsfólk sitt á svipuð nám-
skeið sem skólinn hefði boðið upp
á en nú væri búið að draga þau
námskeið saman í heilsteyptar
brautir. Kennarar á námskeiðum
þessum eru kennarar Verslunar-
skólans auk stundakennara.
-ABS
Sólheimaleikar ’86
- fjölskyldu- og íþróttahátíð
Fréttaljósmyndir í Listasafni ASÍ
Frcttaljósmyndasýningin World
Press Photo ’86 verður opnuð í
Listasafni ASÍ. Grcnsásvegi 16 í
dag klukkan 14.00. Eru þarna
sýndar 180 ljósniyndir sem hlutu
verðlaun í ár í alþjóðlegri sam-
keppni fréttaljósmyndara, en 5000
myndir bárust í samkeppnina eftir
900 Ijósmyndara frá 50 löndum.
Fréttaljósmynd ársins var valin
„Þjáningar Omairu Sanchez”úr
samnefndum myndaflokki en
myndin var tekin í bænuni Armero
í Kolombíu eftir gos í eldfjallinu
Nevando del Ruiz. Myndasyrpan í
heild hlaut einnig 1. verðlaun í
sínum flokki og hörmungarnar í
Armero setja raunar mikinn svip á
sýninguna í heild.
Sérstök verðlaun voru veitt í ár
kennd við Franz Liszt í tilefni af
175 ára afmæli og 100 ára dánaraf-
mæli tónskáldsins.
Sýningin verður opin daglega til
14. september virka daga kl. 16-20
og um hclgar frá 14-22. Á sunnu-
dögum verður sérstök dagskrá í
sambandi við sýninguna sem hcfst
kl. 16. Þannig mun Guðmundur
Sigvaldason jarðfræðingur halda
erindi um náttúruhamfarirnar í
Kolumbíu ogsýnaskyggnursunnu-
daginn 31. ágúst. Sunnudaginn 7.
ágúst mun Bernharður Guðmunds-
son fréttafulltrúi þjóðkirkjunnar
tala um aðstæður í Afríku, verð-
mætamat og viðhorf og ábyrgð
annarra þjóða, og sunnudaginn 14.
september mun Halldór Haralds-
son píanóleikari halda tónleika þar
sem verk eftir Liszt verða á efnis-
skránni.
Þessi mynd var valin fréttamynd ársins. Hún sýnir 12 ára gamla stúlku sem var föst í leðju upp að hálsi eftir náttúruhamfarirnar í Armero.
Sólheimaleikarnir 1986 verða
haldnir að Sólheimum í Grímsnesi
nú um helgina 29.-31. ágúst. Þetta er
fjölskyldu- og íþróttahátíð fyrir fatl-
aða og aðstandendur þeirra. Keppt
verður í helstu keppnisgreinum fatl-
aðra, svo sem sundi, boccia og
borðtennis. Einnig verður keppt í
göngu og að henni lokinni verður
dansleikur í nýja íþróttahúsinu í
Sólheimum þar sem Stuðmenn leika
fyrir dansi.
Margt flcira verður gert til
skemmtunar, dæmi um það er flug-
eldasýning, þrautabraut, safarí,
knattspyrna og lúðrasveitir spila.
Sætaferðir verða alla dagana frá
Umferðarmiðstöðinni en matsala og
gisting er á staðnum. en allar upplýs-
ingar um Sólheimaleikana er liægt að
fá í Sólheimum í síma 99-6430.