Tíminn - 30.08.1986, Síða 3
Laugardagur 30. ágúst 1986
Tíminn 3
Vest-norræna þingmannaráöiö:
Talsverðardeilurum
afstöðu til kjarnorku-
vopnalausra svæða
- Samþykkt að mótmæla byggingu kjarnorkuvers í Dounreay
Frá Svcini Hclgasyni, frcttaritara Tímans
á Selfossi.
Ekki náðist full samstaða um af-
stöðu til kjarnorkuvopnalausra
svæða á fundi Vest-norræna þing-
mannaráðsins sem lauk á Selfossi í
gær. Urðu miklar umræður um málið
en loks var samþykkt með þorra
atkvæða tillaga frá grænlensku
sendinefndinni þar sent skorað er á
stjórnir Islands, Grænlands og Fær-
eyja að tryggja það að á hin vest-
norrænu svæði verði ekki staðsett
kjarnorkuvopn hvorki á friðar né
stríðstímum.
Brcytingartillaga frá Eiði Guðna-
syni var felld en í henni segir að
kanna skuli hvort unnt sé að ná
samstöðu um að gera Norður-Evr-
ópu og Grænland að kjarnorku-
vopnalausu svæði. Er tillaga Eiðs í
anda samþykktar sem Alþingi gerði
um þetta mál í fyrra.
I umræðum um málið hélt græn-
lenska sendinefndin fast við sitt svo
og Eiður Guðnason. Varaði hann
við því að ef ekki næðist samstaða
gæti það haft alvarlegar afleiðingar
fyrir samstarf þjóðanna. Eiður taldi
einnig að tillaga Grænlendinganna
hefði komið of seint fram og lagði til
að skipaður yrði vinnuhópur til að
koma með málamiðlunartillögur fyr-
ir næsta fund ráðsins. Grænlending-
ar sögðu hinsvegar að málefnið væri
ekki nýtt af nálinni og lögðu greinilcga
mikla éherslu á þá tillögu sem sam-
þykkt var. Fleiri tóku ti! máls en
samkontulag náðist ekki og því var
gengið til atkvæðagreiðslu sem lykt-
aði eins og fyrr var greint frá.
Kjarnorkuna bar einnig á góma í
annarri tillögu sem Færeyingar lögðu
fram og samþykkt var á þinginu. Þar
er mótmælt byggingu kjarnorkuvers
í Dounray á Skotlandi og því að
úrgangur frá verinu sé losaður í
Stormbanka. í greinargerð tillög-
unnar er m.a. vísað til afleiðinga
kjarnorkuslyssins í Chernobyl og
sagði Páll Pétursson forseti ráðsins
að afstaða þess í málinu væri mjög
mikilvæg.
Af öðrum málum sem afgreidd
voru á þinginu má nefna tillögu frá
Eiði Guðnasyni um að hleypt verði
af stað upplýsingaherferð í Banda-
ríkjunum og Vestur-Evrópu um
mikilvægi auðlinda hafsins fyrir hin-
ar vest-norrænu þjóðir. Þá var einnig
samþykkt önnur tillaga frá Eiði scm
fjallar um aukið samstarf þjóðanna
í sjónvarpsmálum. Sagði flutnings-
maðurinn að þar kæmi til greina að
skipta á efni, starfsfólki og jafnvcl
sameiginleg innkaup. Loks má geta
tillögu um þátt kvenna í störfum
ráðsins, sem flutt var af Sigríði
Dúnu Kristmundsdóttur.
Á blaðamannafundi sem boðað
var til sagði Páll Pétursson að sam-
starf þjóðanna hefði þcgar skilað
nokkrum árangri síðan það hófst í
fyrra. Síðan tóku til máls varaforset-
ar þingsins, þeir Hans Jakob Devers
frá Færeyjum og Preben Lange frá
Grænlandi og lýstu þeir báðir ánægj u
með störf þess.
Þingfulltrúar gerðu meira en að
ræða tillögur fram og aftur. Þeir fóru
meðal annars í skoðunarferðir í
Mjólkurbú Flóamanna og Búrfells-
virkjun og snæddu hádcgisverð í
boði bæjarstjórnar Selfoss. Rómuðu
þeir alla aðstöðu í Hótel Selfoss þar
sem þingið var haldið.
Næsti fundur Norræna þing-
mannaráðsins verður haldinn í Þórs-
höfn í Færeyjum að ári.
Securitas sf.:
VILL OPINBERA RANN-
SOKN A ORYGGIS
ÞJÓNUSTU VARA
- og átelur harölega opinbera viöurkenningu sem Vari fékk frá
dómsmálaráðuneytinu í sumar
Securitas sf. hefur sent Jóni
Helgasyni dóntsmálaráðherra bréf
þar sem harðlega er gagnrýnd
viðurkenning sú sem opinberlega
var veitt öryggisþjónustunni Vara
nú fyrir skömrnu.
í bréfinu er rakin nauðsyn þess
að öryggisfyrirtæki á borð við Vara
og Securitas þurfi að sýna traust
sitt og ráðdeild í hvívetna til þess
að öryggi viðskiptavina þeirra sé
sem best borgið. í framhaldi af því
er óskað opinberrar rannsóknar á
starfsemi Securitas sf. og öryggis-
þjónustunnar Vara. Sérstaklega er
farið frant á að 8 atriði verði
rannsökuð í starfsemi Vara þar er
fyrst talið innbrot sem framið var í
aðalstöðvar Vara sl. vetur og hvar
vakthafandi vörður var þegar inn-
brotið átti sér stað, en þá var
búnaði fyrir hundruð þúsunda
stolið. Óskað er rannsóknar á
hvort marg dæntdur eiturlyfjasali
og neytandi sé við störf eða hafi
verið við störf hjá öryggisþjónust-
unni Vara og hafi þar með lykla-
völd að bönkum, fyrirtækjum og
einkaheimilum. Spurt er í bréfinu.
hvort það samræmist lagareglum
og siðgæðiskröfum að afbrotasér-
fræðingur lögreglunnar í Reykja-
vík auglýsi fyrir Vara og einnig
hvert samband ráðgjafar hans og
viðskipta ríkisfyrirtækja sé við ör-
yggisþjónustuna, svo og viðskipta
einkafyrirtækja. Óskað er rann-
sóknar á því hvort Vari ltafi byggt
fjarskipta- og neyðarþjónustu sína
á smygluðum fjarskiptabúnaði og
verið sviftur fjarskiptaleyfi af þcim
sökum og hvort lögreglan í Reykja-
vík sé notuð í þjónustuútköll Vara
en fyrirtækið taki síðan óskipt
þjónustugjöld fyrir þau útköll. Þar
er minnt á það að lögreglan sé
kostuð af skattborgurum en ekki
viðskiptavinum Vara. Óskað er
rannsóknar á því hvort skrif Helg-
arpóstsins í apríl í vor um Vara eigi
við rök að styðjast en þar kemur
m.a. fram að auglýst þjónusta
fyrirtækisins eigi ekki við rök að
styðjast og auðvelt sé að trufla
boðleiðir rafeindabúnaðar fyrir-
tækisins frá stjórnstöð til fyrirtækja
sem vöktuð eru. Að síðustu er
óskað rannsóknar á því hvort ör-
yggismiðstöð Vara standist kröfur
Brunamálastofnunar unt flutning
og móttöku eldvarnarboða m.t.t.
þess hvort stöðin getur tekið við
boðum frá fleiri en einum stað í
einu.
Hjalti Zophaníasson deildar-
stjóri í Dómsmálaráðuneytinu
sagði að áður en Vara var veitt
opinber viðurkenning á starfsemi
sinni, hefði lögrcglan í Reykjavík
látið fara fram rannsókn á starf-
semi fyrirtækisins með tilliti til
fjölda öryggisþátta. Það hefði verið
gert nt.a. vegna þess að öryggisfyr-
irtæki eru ný fyrirbæri á íslandi og
þar sem ekki væri búið að semja
reglugerð eða lög sem ná yfir slíka
starfsemi þá hcfði verið farið eftir
reynslu frá Norðurlöndunum. Þau
lönd hafa fylgst með öryggisfyrir-
tækjum sínum og veitt þeim viður-
kenningu sem staðist hafa öryggis-
kröfur. Það hefði verið gert vegna
þess að alls konar labbakútar hefðu
ætlað sér að starfrækja öryggis-
þjónustufyrirtæki, sem ættu ekkert
erindi í slíkan rekstur. Hjalti sagði
að í bígerð væri að semja lagafrum-
varp um öryggisþjónustufyrirtæki
en það hefði dregist fram að þessu.
ABS
Guðjón B. Ólafsson.
Erlendur Einarsson.
Forstjóraskipti á mánudag:
Erlendur Einarsson
lætur af starfinu
- og Guðjón B. Ólafsson tekur við
Nú á mánudag verða forstjóra-
skipti hjá Sambandi ísl. samvinnu-
félaga. Þá lætur Erlendur Einars-
son af því starfi. en við tekur
Guðjón B. Ólafsson.
Erlendur Einarsson tók við starfi
framkvæmdastjóra Samvinnu-
trygginga nákvæmlega þennan
dag, 1. septembcr. fyrir réttum 40
árum, en þá tók hið nýstofnaða
tryggingafélag samvinnumanna
formlega til starfa. í ársbyrjun
1955 tók hann svo við starfi for-
stjóra Sambandsins af Vilhjálmi
Þór. Forstjórastarfinu hefur hann
gegnt samfellt síðan.
Guðjón B. Ólafsson hefur starf-
að samfellt hjá Sambandinu og
fyrirtækjum þess frá 1954. Hann
var framkvæmdastjóri Lundúna-
skrifstofu þess 1964-68, fram-
kvæmdastjóri Sjávarafurðadeildar
1968-75, en frá 1975 hefur hann
verið framkvæmdastjóri sölufyrir-
tækisins Iceland Seafood Corpor-
ation í Bandaríkjunum. ésig
Ræðismenn Islands
funda í Reykjavík
Þriðji fundur ræðismanha fs-
lands verður haldinn í Reykjavík
dagana 31. ágúst - 4. september,
en fsland hefur 185 ræðismenn í
162 borgum og rúmlega 50 löndum
víðs vegar um heiminn. Nær
undantekningarlaust eru þetta
ólaunaðir kjörræðismenn.
Á fund ræðismannanna í
Reykjavík, sem haldinn verður á
Hótel Loftleiðum, munu koma um
127 ræðismenn ásamt mökuin og
öðru fylgdarliði, og er búist við að
heildartala gesta verði í kringum
260 manns. Á fréttamannafundi í
utanríkisráðuneytinu í gær, þar
scm dagskrá ræðismannafundarins
var kynnt kom l'ram að þetta er í
þriðja sinn sem ræðismönnum ís-
lands er boðið til fundar af þessu
tagi, áður voru fundir árin 1971 og
1977. Ingvi S. Ingvason ráðuneytis-
stjóri sagði að heldur hefði dregist
að halda þennan fund, þau níu ár
sem liðin væru frá síðasta lundi
væru e.t.v. full langur tími ntiðað
við gildi og nauðsyn þcssara funda.
Sigríður Snævarr sendiráðunaut-
ur sagði að á fundum sem þcssum
gæfist ráðuncytinu einstakt tæki-
færi til þess að kynna fyrir ræðis-
mönnunum það sem væri að gerast
á fslandi. nokkuð scm væri erfitt
að gera frá degi til dags fyrir þetta
stóran og dreifðan hóp.
Á dagskrá fundarins eru fyrir-
lestrar utanríkisráðherra og emb-
ættismanna, auk þess sem fulltrúar
úr atvinnulífinu muni flytja erindi.
í lok fundarins á miðvikudag verða
síðan pallborösumræður.
Ekki mun þó allur tími ræðis-
mannanna fara í stífar fundarsetur
og munu þeir nt.a. fara í mótttöku
á Bessastöðum hjá forscta íslands
Vígdísi Finnbogadóttur og á
þriðjudeginum vcröur farið í dags-
ferð um Suður og Suðvesturland.
Flestir gestanna munu síðan
halda heimlciðis á fimmtudag, en
einhverjir þeirra munu þó verða
áfram til að skoða landið betur eða
að sinna viðskiptasamböndum,
enda margir ræðismannanna jafn-
framt umboðsmenn fyrir íslenskan
varning í heimalöndum sínum.BG
Arinbjörn Kolbeinsson forniaður Keykjavíkurdcildar RKÍ afhcndir Rúnari
Bjarnasyni slökkviliðsstjóra nýja neyðarbílinn. (Tfmamynd-Sverrir)
Reykjavíkurdeild Rauðakrossins:
Gefur nýjan neyðarbíl
Reykjavíkurdcild Rauða krossins
afhenti Slökkviliði Reykjavíkur nýj-
an neyðarbíl í gær af gerðinni Ford
Econoline, og er hann svipaður að
gerð og neyðarbíllinn sem fyrir var.
Bíllinn er útbúinn sem slysadeild á
hjólum og öll tæki til cndurlífgunar
og aðstoðar eru í bílnum. Heildar-
verð hans er um 2,3 milljóniren ekki
eru greidd aðflutningsgjöld eða sölu-
skattur af sjúkrabílum.
Neyðarbíll er á slysadeild frá
klukkan 8-23.30 og er þá mannaður
tveim sjúkraflutningamönnum frá
slökkvistöð, lækni og hjúkrunar-
konu. Á nóttunni er bíllinn á
slökkvistöð og mannaður þrem
sjúkratlutningamönnum, þar af
tvcim sem lokið hafa sérstöku nánt-
skeiði.
Hægt er að hringja allan sólar-
hringinn í síma 11100 til að óska
aðstoðar bílsins og er öllum heimilt
að hringja ef slys eða bráðaveikindi
ber að höndum.