Tíminn - 25.05.1989, Qupperneq 3
Fimmtudagur 25. maí 1989
Tíminn 3
Horfur á nægri atvinnu á Austfjörðum út árið. Menn tóku mið af þeim kvóta sem úthlutað var:
Vissu að hverju þeir
gengu í upphafi árs
Undanfarið hefur verið mikið rætt um horfur í atvinnu-
málum á landinu og því verið haldið fram að með haustinu
fari að bera á víðtæku atvinnuleysi í sjávarplássum, vegna
skerðingar veiðikvótans. í samtölum við aðila í útgerð og
fiskvinnslu á Austfjörðum, kemur fram að atvinnuástand
hefur verið mjög gott það sem af er árinu og síður en svo
útlit fyrir að með haustinu komi til atvinnuleysis, enda hafi
menn tekið mið af þeim kvóta sem þeim var úthlutaður
fyrir árið.
Hermann Hansson kaupfélags-
stjóri á Höfn sagði í samtali við
Tímann að atvinna væri með
venjubundnum hætti og engar at-
vinnuleysisblikur á lofti. „Vetrar-
vertíð er nýlokið og allir höfðu nóg
að gera. Humarvertíð er að byrja
og við gerum ráð fyrir þvf að hér
verði næg verkefni í sumar, en
búist er við að eitthvað færra verði
af aðkomufólki en áður,“ sagði
Hermann. Á Höfn er síldin uppi-
staðan á haustin og sagði Hermann
að ef sú starfsemi yrði með eðlileg-
um hætti, sem hann átti von á, yrði
næg atvinna á haustmánuðum.
Flestir bátar á Höfn eru langt
komnir með bolfiskkvótann, sem
er ekkert frábrugðið því sem verið
hefur. Venjan er sú að bátarnir
taka meginhlutann af bolfiskkvót-
anum á vetrarvertíð, síðan er
eitthvað af honum tekið með hum-
arveiðunum á sumrin, en svo er
það síldin á haustin. „Menn vita
alveg að hverju þeir ganga í kvóta-
málum og eiga að geta stýrt sínum
málum í samræmi við það. Menn
fengu að vita í janúar hvaða kvóta
þeir hefðu fyrir næstu tólf mánuði,
það er því ekkert sem ætti að koma
á óvart í þeim efnum. Ég held að
menn hafi almennt gert það hér á
Austfjörðum," sagði Hermann.
Hann sagði að auðvitað vildu menn
alltaf fá meiri kvóta, en hann væri
hins vegar alveg í samræmi við þær
reglur sem voru settar.
„Ástandið er ekkert öðruvísi en
við gátum búist við. Það hafa verið
miklir rekstrarerfiðleikar hjá sjáv-
arútvegsfyrirtækjum að undan-
fömu, eins og víðast hvar á landinu
og menn eru ekkert búnir að jafna
sig eftir það, þó við gerum ráð fyrir
því að staðan sé betri nú en í
fyrra,“ sagði Hermann.
Pétur Olgeirsson framkvæmda-
stjóri Tanga hf. á Vopnafirði, té'
í sama strengi og Hermann með ;
næg atvinna hefði verið það sem .
væri árinu og yrði svo alveg fra
til jóla, auk þess sem þeir tækju ii
skólakrakka í sumar sem fv
Hann sagði að vissulega hefðu (
þegið meiri kvóta, „en við lát
þann kvóta duga sem við hö' ■>
fengið, eins og við höfum a
gert,“ sagði Pétur. Smábátarnir
hafa komið með mikinn afla að
landi á haustin og skapað því mikla
vinnu auk þess sem um 10 til 11
þúsund tunnur hafa verið saltaðar
af síld undanfarin haust.
Finnbogi Jónsson framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar hf. í Nes-
kaupstað sagði að mikið hefði
verið að gera hjá þeim í allan vetur
og enn næg vinna. „Ég á von á því
að hér verði þokkalegt atvinnu-
ástand fram að áramótum. Við
stýrum okkar skipum þannig að
við miðum við að eiga afla út árið,“
sagði Finnbogi. Hann sagði að
hægur vandi hefði verið að veiða
kvótann á skemmri tíma, en skipin
væru stoppuð milli túra og miðað
væri við jafna dreifingu á aflanum
yfir árið, sem komið væri með að
landi. Síldarvinnslan gerir út þrjá
togara og tvö loðnuskip. Tveir
togaranna eru á sóknarmarki, en
einn á aflamarki og sagði hann að
þau væru búin með tæplega helm-
ing kvótans.
Finnbogi sagði að niðurskurður
á kvótanum hefði vissulega komið
illa við þá. „Almennt var 10%
niðurskurður í þorski en þetta kom
þannig út að sóknarmarksskipin
urðu fyrir enn meiri skerðingu eða
allt að 15%. Þetta þýðir hjá okkur
um 700 tonna minni þorskafla á
þessu ári, miðað við síðasta ár. Það
vegur auðvitað mjög þungt og
verður örugglega erfitt þegar kem-
ur fram á árið, en síldin vegur það
eitthvað upp,“ sagði Finnbogi.
Adolf Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Fiskvinnslunnar hf.
á Seyðisfirði og formaður atvinnu-
málanefndar á staðnum sagði að
mikið meira en næg vinna hefði
verið það sem af væri árinu, því
nánast hefði verið unnið í vinnsl-
unni alla laugardaga að auki.
„Maður veit ekki hvað framtíðin
ber með sér, því kvótinn er farinn
að minnka,“ sagði Adolf. Hann
sagði að ekkert hefði þýtt að reyna
að stýra þvf eitthvað hversu mikið
kæmi á land, keyra yrði frystihúsið
á fullum afköstum. Adolf sagði að
ef litið væri til haustsins, þá yrði
allt í fullum gangi frá um miðjum
september og fram að áramótum,
vegna sfldarvinnslu. „Það er spum-
ing hvort og hvað við teygjum
kvótann, og hvort smábátamir
veiði eins vel og í fyrra, ef svo færi
þá væri engu að kvíða,“ sagði
Adolf. -ABÓ
Hvorki VSÍ né Félag stórkaupmanna enn samþykkt lyfjafræöingasamninginn:
Hver verða maílaun
hjá lyfjafræðingum?
Eftir hvaða kjarasamningi verða lyfjafræðingum greidd laun nú
um mánaðamótin, sem óðum nálgast? Samkvæmt upplýsingum
Þórarins V. Þórarinssonar, framkvæmdastjóra hefur samningur
lyfjafræðinga - um 10 til 15 þús.kr. kauphækkun á mánuði frá 1.
maí - enn ekki verið samþykktur af VSÍ, sem m.a. hefur
Apótekarafélag íslands innan sinna vébanda. Félag íslenskra
stórkaupmanna hefur heldur ekki samþykkt samninginn fyrir sitt
leyti.
Án samþykkis þessara tveggja
heildarsamtaka mun hvorki
apótekurum né lyfjaheildsölum bera
nokkur skylda til að greiða laun
samkvæmt hinum nýja launataxta -
þótt vitanlega sé hins vegar öllum
heimilt að yfirborga starfsfólki sínu
ef þeir vilja.
Kjarasamningur þessi er afar at-
hygliverður m.a. vegna þess hvernig
prósentur reiknast þar. í samningn-
um segir að laun skuli hækka um 2%
frá 1. maí. í ljósi þess má merkilegt
kalla að frá launatöflu 82 (frá 15.
febr.) til launatöflu 83 (frá 1. maí)
hækka mánaðarlaun í 1. launaflokki
úr 72.367 kr. upp í 76.715 kr. Það
segja reiknivélar Tímans 6% hækk-
un hversu oft sem reynt er. Og sama
verður uppi á teningnum þegar borin
er saman hækkun 8. launaflokks úr
116.206 kr. upp í 123.188 kr. -
niðurstaðan reynist aftur 6%
hækkun.
Þar til viðbótar bætist síðan nýr
launaflokkur við á launatöflu 83, án
þess að þess sé að nokkru getið í
kjarasamningnum - né heldur þess
að allir lyfjafræðingar færast upp um
einn launaflokk með hinum nýja
samningi. Það þýðir í raun að 8.
launaflokkur hækkar úr 116.206 kr.
upp í 131.811 krónur á mánuði. Það
er hækkun um rúmlega 13,4% yfir
línuna, en í krónum talið fra 9.718
kr. upp í 15.605 kr. eftir mismunandi
launaflokkum lyfjafræðinga, þ.e.
með menntunargráðu cand. pharm.
Hvort 1,5% hækkun 1. sept., 1%
hækkun 1. nóv. og 2% hækkun 1.
janúar 1990 skulu reiknast eins ríf-
lega og 2% hækkunin nú fyrsta maí
kemur ekki fram í samningnum. En
þó svo verði ekki verður ekki betur
séð en að launahækkanir verði
a.m.k. 18,6% á samningstímanum.
Þar við bætast svo sérstök orlofsupp-
bót (6.500 kr.) og desemberuppbót
(9.000 kr.) fyrir fullt starf. - HEI
Úthlutun úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1989:
6,5 millj. úthlutað
Tólfta úthlutun úr Þjóðhátíðar-
sjóði fyrir árið 1989 fór fram fyrir
nokkru. Markmið sjóðsins er að
veita styrki til stofnana og annarra
aðila sem vinna að vernd menning-
ararfs íslendinga.
Fjórðungur af árlegu ráðstöf-
unarfé sjóðsins, sem nú nam sex og
hálfri milljón, rennur til Friðlýsing-
arsjóðs til náttúruverndar á vegum
Náttúruverndarráðs. Annar fjórð-
ungur, ein milljón 625 þúsund,
rennur til varðveislu fornminja á
vegum Þjóðminjasafnsins. Að
öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins
ráðstöfunarfé hverju sinni í sam-
ræmi við megintilgang hans og
koma þar einnig til álita viðbótar-
styrkir til fyrrgreindra aðila.
Alls bárust 42 umsóknir um
styrki að upphæð tuttugu milljónir
króna en umsóknarfrestur rann út
24. febrúar síðastliðinn. Helming-
ur fjárins, þrjár milljónir og 250
þúsund, skiptust milli 21 aðila.
Hæsti styrkurinn rann til Listasafns
íslands. En Listasafnið hlaut 265
þúsund til kaupa á lágþrýstiborði
til viðgerða á safnmunum. Nátt-
úruverndarráð fékk 260 þúsund til
að gera úttekt á friðlýstum svæðum
á Náttúruminjaskrá, 255 þúsund
runnu til kaupa á barrokkhljóðfær-
um til að nota á tónleikum í
Skálholtskirkju, 205 þúsund voru
veitt bæði Húsfriðunarnefnd ísa-
fjarðar og stofnun Sigurðar
Nordal, til viðgerða og aðrir styrkir
voru nokkru lægri.
Formaður stjórnar Þjóðhátíðar
sjóðs er Magnús Torfi Ólafsson
fyrrverandi blaðafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar, varaformaður er
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
og aðrir stjórnarmeðlimir eru
Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri,
Eysteinn Jónsson fyrrverandi ráð-
herra, Gils Guðmundsson fyrrver-
andi ráðherra og ritari sjóðsstjórn-
ar er Sveinbjörn Hafliðason lög-
fræðingur. jkb
Kflóin fjögur sem fundust á konunni. Tfmamynd: Ami Bjarna
Handtekin með rúm 4 kíló af hassi:
Þriggja vikna
gæsluvarðhald
Rúmlega fjögur kíló af hassi fund-
ust í fórum konu við komuna til
landsins á laugardagskvöld. Það var
við hefðbundna tollleit tollgæslunn-
ar á Keflavíkurflugvelli sem hassið
fannst. Konan sem er rétt um þrítugt
var að koma frá Kaupmannahöfn,
og hefur hún verið úrskurðuð í
gæsluvarðhald til 12. júní nk. Hún
hefur margsinnis komið við sögu
fíkniefnadeildar lögreglunnar.
Rannsókn málsins er á frumstigi.
Þetta er mesta magn sem lagt
hefur verið hald á hér á landi síðan
1987, en þá var lagt hald á um 11 kíló
af hassi sem falið hafði verið í
málningardósum. - ABÓ