Tíminn - 25.05.1989, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 25. maí 1989
MINNING
Ivar Helgason
Fæddur 31. maí 1922
Dáinn 15. maí 1989.
Vinum fækkar eftir því sem tíminn
líður á lífsgöngunni og söknuður
verður því sárari og tómleikinn
meiri, þar sem vináttan og tryggðin
hafa bundist traustum böndum.
Þetta fann ég vel þegar andláts-
fregn góðs vinar míns, ívars Helga-
sonarbarst mértil eyrna 15. maísl.
Ivar hefði orðið 67 ára þann 31.
maí nk. hefði hann iifað. Við ívar
höfðum þekkst um áratuga skeið,
líklegast um hálfa öld eða svo, fyrst
sem drengir að leik við Vesturgöt-
una, síðar aftur sem ungir menn á
stríðsárunum, þegar fólk fór að sjá
pening. Þá hittumst við gjarnan á
konsertum, sem fóru fáir framhjá
okkur, einnig vorum við tíðir gestir
í hljóðfæraverslunum bæjarins. Við
vorum „diskofilar" eins og svo marg-
ir aðrir á þessum árum. Já, við
söfnuðum hljómplötum okkur til
mikillar gleði og ánægju, með ís-
lenskum og erlendum stórsöngvur-
um. Við sóttum söngtíma hjá mestu
og bestu stórsöngvurum þjóðarinn-
ar, okkur til mikils fróðleiks, gleði
og ánægju. Það var móðins þá, að
kynna sér sem best þessa göfugu list,
sem maður býr að alla æfi.
Pétur Á. Jónsson óperusöngvari
var sérstakur uppáhalds vinur okkar
og kennari, hann fræddi okkur um
óperulistina, svo vel að við vorum
enn að fá okkur óperu, við og við,
ennfremur var gott að fræðast af
Pétri um alla frægustu söngvara 2.
og 3. áratugarins, hann vissi allt um
þá enda söng hann með þeim
flestum. Seinna kom Sigurður Skag-
field, Vinzenzo Demetz og fl. ívar
hafði einnig sótt söngtfma til Bene-
dikts Elfars er var kunnur á fyrri
árum.
Viðkynningin við þess litríku og
ólíku listamenn urðu seinna óþrjót-
andi og ánægjulegar upprifjanir og
umræðuefni við ýmis tækifæri eins
og þegar discofilar koma saman í
Gramminu. Mikil músík umlék ívar
alla tíð, enda maðurinn stórmúsík-
alskur, og vel að sér í söng og músfk
yfirleitt. Hann hafði ágæta bariton
rödd sem hann kunni mjög vel á, og
söng oft opinberlega við hin ólíkustu
tækifæri. Söngtónlistin var ívari
kærust, það má segja að hann hafi
haft aristokratískan menningar-
smekk í músík ef maður mætti lýsa
þessu svona.
ívar var mjög fær og eftirsóttur
kórmaður vegna hæfni og öryggis,
hann söng með Þjóðleikhúskórnum
í yfir 30 ár og söng oft sólóhlutverk
og var með í velflestum óperum sem
hér hafa verið sýndar. ívar var
rafvirki að mennt, og lærði þá iðn
hjá Sigurði Bjarnasyni rafvirkja-
meistara og starfaði við iðnina í
allnokkur ár hér í bæ. Seinna fluttist
hann og fjölskyldan til Patreksfjarð-
ar, þar sem ívar var stöðvarstjóri í 4
ár, en fluttist aftur hingað suður og
hóf störf hjá Pósti og síma, þar sem
hann starfaði til dauðadags, og um
nokkurra ára skeið sem fulltrúi.
fvar Helgason var um margt
óvenjulegur maður, og hann átti sér
óvenju mörg og óh'k áhugamál önn-
ur en diskofil. Það var með ólíkind-
um hve vel fjölmenntaður og gagn-
menntaður hann var og að mestu
sjálfsmenntaður. Hann var ágætur
málamaður, t.d. hafði vald á
Norðurlandamálum, ensku, þýsku
og eitthvað í ítölsku.
Hann stundaði alla tíð ættfræði og
var fær í þeirri grein. ívar safnaði
einnig gömlum póstkortum og átti
sérstætt og merkilegt safn af þeim og
tók þátt í sýningum um þetta efni
sem vöktu athygli. Hann var einnig
áhugamaður um flug og flugvélar,
og vissi allt um það efni, hann fór á
allar flugsýningar og fylgdist vel með
í flugmálum almennt, bæði fyrr og
síðar.
ívar átti stórt og fjölbreytt bóka-
safn sem hann var stoltur af, enda
bókamaður mikill og víðlesinn og
eitt er víst að það sat, það sem hann
las.
fvar átti örugglega fjölbreyttasta
plötu- og segulbandasafn í einkaeign
hérlendis, og meðal þeirra er að
finna margar þær sjaldgæfustu plötur
sem íslenskir söngvarar hafa sungið
á. Svo átti hann Caruso komplett,
eins og það er kallað, þegar ekkert
vantar inní. Við sem eftir erum,
getum glaðst af því að þegar bestu
söngvarar þjóðarinnar fara að heyr-
ast á plötum hér aftur, eftir frá 30 til
60 ára bið, getum við þakkað ívari
Helgasyni það öðrum fremur, því
hann hefur oftast lagt aðalplöturnar
til, þegar eitthvað gott kemur út svo
sjaldan sem það skeður. fvar gerði
það af virðingu fyrir listamönnun-
um, sem hann þekkti suma svo vel
og af þjónustulund við þjóð sína.
fvar var mikill fjölskyldumaður
og ættrækinn. Fjölskyldan var fvari
mjög kær, hún var honum allt.
Eiginkona fvars frú Lilja Ingimund-
ardóttir frá Tálknafirði, hefur staðið
við hlið manns sfns af mikium mynd-
arskap og dugnaði alla tíð og ekki
minnst þegar ívar gekkst undir mik-
inn uppskurð á Guys Hospital í
London fyrir nokkrum árum, en það
var mikil reynsla fyrir þau bæði.
ívar og Lilja áttu þrjú börn, Helgi
giftur Jónínu Steingrímsdóttur, þau
eiga þrjú börn. Rannveig gift Otta
Kristinssyni, þau eiga fjögur börn.
Guðbjörg hárgreiðslumær, ógift á
eitt barn.
Það var æfiniega gott að koma á
menningarlegt heimili fvars og Lilju,
þau höfðu einkar gott lag á því að
láta mann finna að maður var vel-
kominn, alltaf með léttu vinsamlegu
viðmóti og frábærri gestrisni. Öll
framkoma ívars einkenndist af hóg-
værð og heiðarleika og hann var
einn þeirra manna sem mat og virti
trúnað og skyldurækni.
ívari átti einkabróður, Sigurð
Guðlaug sem hefur átt við mikla
erfiðleika og sjúkdóma að stríða,
hann var honum innan handar eins
vel og hann gat og missti aldrei
sjónar á honum.
Með fvari Helgasyni er góður
maður genginn - hreinn og beinn í
öllum samskiptum, yfirborðs-
mennska var honum framandi. Ég
er forsjóninni þakklátur fyrir að
hafa fengið að eiga fvar Helgason að
trúnaðarvini, öll þessi ár, og þegið
hollráð af honum þegar mikið lá við.
Við Maddý sendum frú Lilju og
fjölskyldunni allri okkar dýpstu sam-
úðarkveðju, um leið og við kveðjum
þennan góða vin og heiðursmann
sem mátti ekki vamm sitt vita.
Maríus Blomsterberg.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Ingibjörg Elíasdóttir,
Heimalandi, Grindavík
sem lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur þann 18. maí, verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju, laugardaginn 27. maí n.k. kl. 13.00
El ías Guðmundsson Eva Oddgeirsdóttir
Guðjón Guðmundsson Sveinfriður Ragnarsdóttir
og barnabörn
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á af-
mælis- og eða minningargrein-
um í blaðinu, er bent á, að þær
þurfa að berast a.m.k. tveim
dögum fyrir birtingardag.
Þær þurfa að vera vélritaðar.
LEKUR ER HEDDID
BLOKKIN? SPRUNGIÐ?
Viðgeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir - rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum - járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin - Sími 84110
lllllillllllli DAGBÓK
Óiafur Proppé, nýkjörinn formaður
LHS, ásamt fulltrúum hjálparsveitanna á
15. landsþingi LHS.
Kaffileikhúsið í Bíókjallaranum
sýnir:
Sögu úr dýragarðinum
Kaffileikhúsið sýnir „Sögu úr dýragarð-
inum“ eftir Edward Albee í Bíókjallaran-
um, þ.e. Café Rosenberg (í Kvosinni) á
þriðjudags-, fimmtudags- og sunnudags-
kvöldum kl. 22. Sýningar standa út maí.
Leikendur eru tveir, Haraldur Krist-
jánsson og Daníel Ingi Pétursson. Leik-
stjóri er Árni Blandon.
Húsið er opnað kl. 21 og veitingar eru
á staðnum.
Landsþing LHS:
Ákveðnar krófur gerðar um
búnað, þjálfun og getu
hjálparsveitanna
Á 15. landsþingiLandssambands hjálp-
arsveita skáta voru samþykktar tillögur
að skipun hjálparsveitanna í flokka eftir
aldri þeirra, búnaði, þjálfun og getu.
Flokkunin er miðuð við að hún virki
hvetjandi og einnig eiga stjómendur
björgunaraðgerða að sjá með skjótum
hætti styrk viðkomandi hjálparsveitar.
Hingað til hefur ekki verið til í landinu
ákveðin skilgreining yfir björgunarsveitir
önnur en sú, að það sé hópur manna sem
ákveður að kalla sig björgunarsveit. Með
samþykkt Landsþings hjálparsveitanna,
19.-20. maí 1989, hefur þessu verið
breytt.
A þinginu var Ólafur Proppé kjörinn
nýr formaður LHS og tók hann við af
Tryggva Páli Friðrikssyni, sem nú gegnir
starfi félagsmálastjóra LHS. Auk Ólafs
eru í stjórn LHS þeir Arnfinnur Jónsson,
Páll Árnason, Ögmundur Knútsson og
Bjarni Axelsson.
Ingibjörg Marteinsdóttir og Þorgeir
Andrésson syngja einsöng í Upprisuórat-
oriu Carls Philipps Emanuels Bach, auk
Michaels Jóns Clarke.
Passíukórinn á Akureyri o.fl.:
Frumflytja Upprisuóratoríu
C.Ph. Emanuels Bach á íslandi
Passíukórinn á Akureyri, félagar úr
Kammersveit Akureyrar og einsöngvar-
amir Ingibjörg Marteinsdóttir (sópran),
Þorgeir Andrésson (tenór) og Michael
Jón Clarke (bassi) flytja Upprisuóratoríu
Carls Philipps Emanuels Bach á tónleik-
um í Iþróttaskemmunni á Akureyri
sunnudaginn 28. maí kl. 17. Þetta er
frumflutningur á íslandi á þessu verki.
Stjómandi er Roar Kvam.
Þessi óratoría er önnur tveggja óratoría
C.Ph. Emanuels Bachs, en hann var einn
af sonum snillingsins Johanns Sebastians
Bach. C.Ph. Emanuel (1714-1788) hafði
tónlistina í blóðinu og naut aldrei hand-
leiðslu tóniistarkennara. Hann var hvað
þekktastur fyrir fjölda píanóverka sem
hann samdi og af mörgum er hann talinn
faðir nútíma pianóleikara.
Þetta em þriðju tónleikar Passíukórs-
ins á starfsárinu. Einsöngvarar með kórn-
um að þessu sinni em þrtr. Michael Jón
Clarke er kennari í fiðluleik við Tónlistar-
skólann á Akureyri og stjómandi Karla-
kórsins Geysis. Hann hefur oft áður
sungið með Passíukórnum, síðast söng
hann einsöng með kómum í lögum The-
odorakis á Sal Menntaskólans í apríl sl.
Hinir tveir einsöngvaramir hafa ekki
áður sungið með Passíukómum.
Ingibjörg Marteinsdóttir, lauk ein-
söngvaraprófi frá Söngskólanum í
Reykjavík árið 1986 þar sem Þuríður
Pálsdóttir var aðalkennari hennar. Ing-
ibjörg söng hlutverk Adinu í Ástar-
drykknum í uppfærslu Söngskólans og nú
nýverið í hlutverki Cherubinos í Brúð-
kaupi Fígarós, einnig í uppfærslu Söng-
skólans. Þá söng hún hlutverk Tebaldos í
Don Carlos í konsertuppfærslu Sinfóníu-
hljómsveitar Islands. Á sl. vetri söng
Ingibjörg hlutverk í Ævintýrum Hoffm-
ans í uppfærslu Þjóðleikhússins. Ing-
ibjörg hefur haldið sjálfstæða tónleika og
sungið fyrir útvarp og sjónvarp og komið
fram sem einsöngvari með fjölda ís-
lenskra kóra.
Þorgeir Andrésson stundaði nám í
Söngskólanum i Reykjavík og lauk þaðan
8. stigs prófi árið 1985. Hann naut þar
handleiðslu m.a. Garðars Cortes og
Guðrúnar A. Kristinsdóttur. Þorgeirsöng
hlutverk Nemorinos í Ástardrykknum í
uppfærslu Söngskólans 1986 og hlutverk
Nathanel í Ævintýmm Hoffmans í upp-
færslu Þjóðleikhússins á sl. vetri. Hann
var ráðinn söngvari í kór Ríkisóperunnar
í Hamborg 1986-1987 og í kór Tónlistar-
hátíðar Richards Wagner Bayreuth 1987.
Þá hefur Þorgeir haldið einsöngstónleika,
sungið fyrir útvarp og með fjölda ís-
lenskra kóra.
ÚTIVIST
Helgarferðir 26.-28. maí
1. Þórsmörk-Goðaland. Nú eru Þórs-
merkurferðir að hefjast af fullum krafti.
Góð gisting í Útivistarskálunum Básum.
Fararstjóri Hákon J. Hákonarson.
2. Skagafjörður-Drangey. Gist að Fagra-
nesi. Bátsferð í Drangey. Fylgst með
bjargsigi og eggjatöku. Einstök ferð.
Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni
Grófmni 1, símar: 14606 og 23732.
Útivist, ferðafélag
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfur. Hittumst að Nóatúni
17 nk. laugardag kl. 10. Opið hús í
Goðheimum, Sigtúni 3, í dag, fimmtudag.
Kl. 14: Frjáís spilamennska. KI. 19.30:
Félagsvist. Kl. 21: Dans.
Opið hús í Tónabæ nk. laugardag, 27.
maí. Kl. 13.30: Frjálst, spil og tafl. Kl. 15:
Bingó. 12 umferðir. Kl. 20: Lokaskemmt-
un, dans og góð skemmtiatriði, m.a.
koma fram Árni Sighvatsson, Kór Átt-
hagafélags Strandamanna ásamt Gils-
bræðrum.
Heriólfur h.f.
SUMARAÆTLUN 1989
Frá Frá
Vestm: Þorl.höfn:
Alla daga, nema laugar- og mánud . 07.30 12.30
Laugardaga og mánudaga 10.00 14.00
Aukaferðir: Föstudaga og sunnudaga 17.00 21.00
auk þess á fimmtud. í júní/júlí 17.00 21.00
Kristinn Nicolai í Gallerí Borg
Kristinn Nicolai opnar sýningu á verk-
um sínum í Gallerí Borg Pósthússtræti 9,
25. maí kl. 17.
Nicolai er fertugur að aldri. Hann var
við myndlistarnám hjá Adolf von Spitze í
Nurnberg 1971-1975, en hefur um langt
árabil verið búsettur í Part's og haldið þar
fjölda einkasýninga. Hann hefur einnig
haldið einkasýningar í Tókýó, Madrid og
Los Angeles, en aðeins sýnt einu sinni hér
heima, að Kjarvalsstöðum 1978. Hann
hefur þar að auki tekið þátt í mörgum
samsýningum erlendis, bæði í Bandaríkj-
unum og Evrópu. Á sýningu Kristins
Nicolai nú eru ný olíuverk og eru þau öll
til sölu.
Sýningin er opin virka daga kl. 10-18 og
um helgar kl. 14-18. Henni lýkur 6. júní.