Tíminn - 25.05.1989, Qupperneq 20

Tíminn - 25.05.1989, Qupperneq 20
Atjan man. binding RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822 ^o'BILAsr0 PÓSTFAX ÞRÖSTIIR TÍM AISIS 685060 687691 y VANIR MENN Tíniinn FIMMTUDAGUR 25. MAl 1989 Spá Þjóðhagsstofnunar í nýjasta „Ágripi af þjóðarbúskapnum“ er ekki full bjartsýni: 6-7% iakari kaupmáttur í ár og 21 % verðbólga Þjóðhagsstofnun telur að kaupmáttur atvinnutekna og ráð- stöfunartekna verði um 6-7% lakari á hvern mann í ár en hann var í fyrra. Þrátt fyrir þessa rýrnun hafi nýliðnir kjarasamningar haft það í för með sér að kauphækkanir hafi teygt á fjárlagagatinu um tvo milljarða króna miðað við árið 1989 og aukið útgjöld ríkisins sem því nemur. Atvinnuhorfur eru óljósar að mati Þjóðhagsstofnunar og fullyrðir hún í spá sinni, „Ágripi af þjóðarbúskapnum“, að atvinnuleysi verði um 1,5% af vinnuafli að meðaltali á þessu ári. Þetta gæti þýtt um 2000 færri atvinnutækifæri Þetta er meðal þess sem stofnunin spáir fyrir þetta ár. En efnahagsleg afkoma þjóðarinnar er vitaskuld mest áberandi. í spánni kemur fram að verðbólga er áætluð um 21% frá ársbyrjun til ársloka 1989 og hafi verðbólgustigið fest í sessi á bilinu 15-20%. í þessum útreikningum kemur fram að gert er ráð fyrir áframhaldandi sigi eða lækkun ís- lensku krónunnar út þetta ár um 6-12%. Gert er ráð fyrir áframhald- andi lækkun raunvaxta. Viðskipta- halli er áætlaður um 10 milljarðar og er það svipað hlutfall af landsfram- leiðslu og síðastliðin tvö ár. Verðum að auka framleiðsluna Þjóðhagsstofnun stígur fram í tveimur áherslupunktum og fullyrðir að eitt brýnasta verkefni framundan sé að auka framleiðsluna. „Við erum að benda á að hagvöxturinn hefur verið hægur og því útlit fyrir að lífskjörin hér á landi muni hægt og sígandi dragast afturúr öðrum í ár en í fyrra. þjóðum," sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Hann sagði að ekki væri æskilegt að kalla fram einhverjar „flugeldasýningar" og efnahagspakka frá hendi ríkis- stjórnarinnar. „Það þarf að þoka þessum málum í rétta átt og auka landsframleiðsluna og bæta skilyrði atvinnuveganna smátt og smátt, en umfram allt í rétta átt,“ sagði Þórður. Síðari áherslupunktur Þjóðhags- stofnunar þar sem hún stígur fram með áskorun varðandi stjórnun landsins, er sá að atvinnuvegum, ekki síst útflutnings- og samkeppnis- greinum, verði gefin betri skilyrði til að ávaxta eigið fé fyrirtækjanna. „Fyrirtækjunum verður að vera kleyft að skila hagnaði, því eigið fé fyrirtækja er yfirleitt of lítið hér á landi,“ sagði Þórður. 10 milljarða viðskiptahalli Þrátt fyrir samdrátt í landsfram- leiðslu og minnkandi þjóðartekjur gerir Þjóðhagsstofnun ekki ráð fyrir Frá kynningarfundi Þjóðhagsstofnunar í gær. Þórður Friðjónsson, forstjóri, er annar frá vinstri. Tímamynd Árni Bjarna meiri halla á viðskiptum við útlönd en síðustu tvö ár, eða um 3,5% af landsframleiðslu. Það þýðir um 10 milljarða viðskiptahalla í ár. Stærðir eins og tvöföldun álversins í Staums- vík, sem nú er mikið rætt um, eru dæmi um möguleika á aukinni lands- framleiðslu. Aukning í framleiðslu af þeirri stærðargráðu gæti breytt þjóðhagsspá verulega og yki t.d. landsframleiðslu um 3-5%. Það sem helst hefur breyst frá síðustu spá Þjóðhagsstofnunar, en hún var birt í febrúar sl., er meiri samdráttur í tekjum þjóðarinnar. Þá var gert ráð fyrir 13,5% verðbólgu árið 1989, en núna 21% verðbólgu. Þá hefur komið betur í ljós að viðskiptahalli við útlönd verður um 10 milljarðar króna þrátt fyrir að svo virðist sem eyðsla og almenn þensla fari minnkandi. Inni í þessum mikla viðskiptahalla eru innkaup á dýrum hlutum eins og í flokki flugvéla og skipa er nema um sjö milljörðum. Fjárfestingar ekki minni síðan 1950 í samanburði við eldri spár, kemur og í ljós að hlutfall fjárfestinga miðað við landsframleiðslu hefur ekki verið lægra síðan í kreppunni árið 1950. Það er nú áætlað um 18% af landsframleiðslu, en hefur verið nálægt 25-30% af landsframleiðslu. Eðlilegt hlutfall er talið vera á bilinu 20-25% og er því ljóst að mati Þjóðhagsstofnunar að ískyggilega mikil umskipti hafa orðið í þessum efnum. Telja þeir í spá sinni að haldist fjárfestingarhlutfallið svona lágt, megi búast við því að á löngum tíma geti það þýtt enn frekari sam- drátt í framleiðslugetu atvinnuvega landsins og verðmætasköpun. Ekki er þó lagt mat á það í skýrslunni hvort hið háa hlutfall fjárfestinga nýliðinna ára hafi allt orðið til þess að leggja grunninn að aukinni fram- leiðni atvinnuveganna. Má í þessu sambandi nefna að inni í þessu háa fjárfestingarhlutfalli síðustu ára eru fjárfestingar eins og Flugstöð Leifs Eiríkssonar, bygging Seðlabanka íslands, bygging Blönduvirkjunar, og aðrar fjárfestingar sem lúta annað hvort ekki að auknum þjóðartekjum framtíðarinnar eða eru ekki enn farnar að skila sér í aukinni lands- framleiðslu. KB Ný reglugerð varðandi útflutning á óunnum afla: Ný reglugerð varðandi útflutn- lelur það nauðsynlegt að skipu- lendis scndi samdægurs skýrslu til ing á óunnum afla tekur gildi 10. leggja virkara eftirlit með útflutn- Fiskifélags íslands um sölu afla júní nk. Reglugerðin kemur í kjöl- ingi á óunnum afla. erlendis, þar scm tilgreint er far þess að á undanförnum árum Meginatriði reglugerðarinnar endanlegt magn hverrar fiskiteg- hefur útflutningur á óunnum afla eru þau að sigli fiskiskip með eigin undar og söluverð. færst mjög i vöxt, m.a. vegna afla til sölu á eriendan rnarkað, Vanhöld á skýrsluskilum leiða breyttrar flutningstækni. skal skipstjóri straxer skipið hættir tii tafarlausrar sviptingar á veiði- í tilkynningu frá sjávarútvegs- . veiðum, senda veiðieftirliti sjávar- leyfi þess fiskiskips sern vciddi ráðuneytinu segir að þar scm þessi útvegsráðuneytisins upplýsingar. aflann auk frekari viðurlaga. afli sé að jafnaði ekki veginn á Sé aflanum lestað um borð í flutn- Það er skoðun ráðuneytisins að íslandi, hafi skapast ósamræmi ingstæki hér á landi skal útflytjandi þetta fyrirkomulag muni tryggja milli þeirra sem flytja afla sinn út aflans skiia inn upplýsingum til meira jafnræði milli þeirra sem og þeirra sem selja afla sinn til vciðieftirlitssjávarútvegsráðuneyt- s'elja alla sinn til framleiðslu innan- framleiðslu innanlands. Þrátt fyrir isins. Þá eiga skipstjóri veíðiskips lands og þeirra sem selja afla sinn að ráðuneytið hafi sent eftirlits- sem landar afla erlendis og útflytj- , óunninn á erlendan markað og menn utan til að fylgjast með andi óunnins afla að tryggja að nákvæmari upplýsingar um sölur uppskipun og sölu á óunnum afla umboðsmenn eða kaupandi er- erlendis. -ABÓ Fékk á sig hnút og lagðist á hliðina Þorri, um fimm tonna plastbátur, fylltist af sjó og lagðist á hliðina, þegar hann fékk á sig hnút skammt frá innsiglingunni við Sandgerði um klukkan hálftólf í fyrrakvöld. Einn maður var um borð og tókst honum að keyra bátinn upp og rétta hann við. Björgunarbáturinn Sæbjörg frá Sandgerði fór til móts við Þorra, og fylgdi honum til hafnar. Ferðin gekk vel og var komið að bryggju um fimmtán mínútum eftir miðnætti. Manninn sakaði ekki, en mestur hluti af afla dagsins og lausir hlutir á dekki bátsins fóru í hafið. -ABÓ 1800 UNGLINGAR SÓTTU UM VINNU Á síðasta fundi borgarráðs upp- lýsti borgarverkfræðingur að alls hefðu 1800 umsóknir borist um störf við unglingavinnuna að þessu sinni, en áætlað hefði verið að 750 ungling- um yrði veitt vinna. Hugmyndir atvinnumálanefndar voru þær að bætt yrði við um 250 störfum í unglingavinnunni, sem þýddi aukafjárveitingu upp á 50 til 55 milljónir, til þessa eina liðar. Þetta þýðir að kostnaðurinn við hvert starf í unglingavinnunni er um 200 þúsund krónur. Búast má við að tekin verði ákvörðun um hversu margir verði í unglingavinnunni á þessu sumri á næsta fundi borgarráðs. -ABÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.