Réttur - 01.01.1943, Page 35
RÉTTUR
39
ismans og leppa hans. Sú reynsla er alldapurleg. Þegar Bandamenn
hernámu nýlendur Frakka í Vestur- og Norðurafríku í lok síðasta
árs tóku þeir upp hina nánustu samvinnu við embættismenn Vichy-
stjórnarinnar, sem frá upphafi hefur verið handbendi Hitlers. Dar-
lan aðmíráll, einn hinn illræmdasti meðlimur Vichystjórnarinn-
ar var gerður að landstjóra í Alsír. Þrátt fyrir hernámið lutu
frönsku nýlendurnar í Afríku nýlenduráði Vichystjórnarinnar.
Darlan bannaði stríðsupplýsingaskrifstofu Bandaríkjanna að út-
varpa til Frakklands, og enska útvarpið neitaði að birta mótmæli
de Gaulles hershöfðingja, svo að hann varð að láta útvarpa yfir-
lýsingu sinni frá borginni Brazzaville í Miðafríku, sem er í höndum
frjálsra Frakka. Völd Darlans urðu að vísu ekki langvinn, en þó
var haldið uppteknum hætti um stjórnarfar í Afríkunýlendum
Frakklands. Giraud hershöfðingi, eftirmaður Darlans, skipaði Pey-
routon, yfirlýstan fasista og eina óhugnanlegustu persónuna úr
klíku franskra þjóðníðinga, landstjóra í Alsír. Þar morar nú allt
landið í pólitískum rottum, sem flýja hið sökkvandi far fasismans
og ætla að hreiðra um sig í þeim löndum, sem falla í hendur Banda-
mönnum.
En í sama mund og fráfallnir fasistar búast um undir verndar-
væng Bandamannaherjanna rotna pólitískir fangar Vichystjórnar-
innar þúsundum saman í fangabúðum Norðurafríku, hinir hraustu
hermenn alþjóðasveitarinnar, sem börðust á Spáni sem sjálfboða-
liðar fyrir málstað lýðræðisins og hins evrópska frelsis. Raunar
virðist nokkuð hafa breytzt til batnaðar um skipan mála í Norður-
afríku upp á síðkastið. Áhrif frjálsra Frakka og annarra lýðræðis-
sinna hafa farið í vöxt. En viðburðirnir í Norðurafríku sýna samt
greinilega, hvílíkar hættur eru búnar málstað lýðræðisins í þeim
löndum, sem herir Bandamanna leggja undir sig, ef lýðræðissinn-
ar hafa ekki vakandi auga með aðgerðum herstjórnarinnar.
Það er auðsætt, að viðburðirnir í nýlendum Frakka munu endur-
taka sig í enn ríkara mæli, þegar innrásarherir Bandamanna taka
að leggja undir sig meginlandið. Þá munu þúsundir fasista og naz-
tsta taka trú „lýðræðisins“ og hjóða sigurvegurunum þjónustu sína.
Þá verður reynt að halda í skefjum hinum lýðræðissinnuðu öflum,