Réttur - 01.01.1943, Síða 54
58
RÉTTUR
myndi ekki hafa annað í för með sér en nýjar launadeilur þar sem
verkalýðssamtökin ættu vísan sigur. Grunnkaupið myndi verða
hækkað að sama skapi. Og reynslan hefur sýnt, að kaupþvingunar-
lög eru óframkvæmanleg.
Ennþá eru óskir yfirstéttarinnar og fulltrúa hennar í ríkisstjórn
og Alþingi hinar sömu og óður. En nú eru þeir ekki lengur þess
umkomnir að hrinda þeim í framkvæmd. Það er mikils um vert
að vinnandi stéttirnar geri sér vel ljóst, hvert vald þær hafa í hönd-
um, eftir sigra ársins 1942, og hvað þær eiga í vændum, ef þær glata
þessu valdi. Valdajafnvægi milli stétta stendur aldrei lengi. Bezta
vörnin er sókn. Og ef alþýðan vill tryggja þá sigra, sem þegar hafa
unnizt, verður hún að búast til nýrrar sóknar.
Alþingi mun hafna tillögum stjórnarinnar. Hvað gerist þá? Og
hvaða ráðstafanir er líklegt að þingið geri?
SAMSTARFSNEFND „VINSTRI“ FLOKKANNA
Um leið og núverandi ríkisstjórn tók við sendi Sósíalistaflokk-
urinn hinum flokkunum eftirfarandi bréf:
Bréjið til Alþýðuflokksins:
„Með skírskotun til samþykktar flokksþings Alþýðuflokksins, sem
birt er í Alþýðublaðinu 25. nóv. 1942, og þess sem fram hefur
komið í 8 manna nefndinni, fer Sósíalistaflokkurinn þess á leit við
yöur, að þér hafið samstarf við hann um að hrinda í framkvæmd
eftirfarandi málum, sem flokkarnir virðast vera sammála um:
1. Flokkarnir undirbúi og flytji sameiginlega frumvörp um eftir-
farandi mál, á Alþingi:
a) Afnám tolla á nauðsynjavörum.
b) Þingið komi á fót og skipi sjálft stofnun, er hafi yfirstjórn
alls innflutnings og útflutnings, í því skyni að hagnýta sem
bezt skipakostinn og stuðla að verðlækkun á innfluttum
vörum.
c) Opinbert verðlagseftirlit með víðtæku valdi til þess að lækka