Réttur - 01.10.1969, Side 26
V. I. LENIN
VANDAMÁL ÞJÓÐERNANNA
EÐA
„SJÁLFSTJÓRNARÁÆTLUNIN”
INNGANGUR:
HINSTU
HUGLEIÐINGAR
LENINS
Eftir að Lenín veiktist 1922 reyndi hann
þrátt fyrir sjúkdóm sinn að vera á verði
gegn því, að félagar hans brytu í bág við
hugsjónastefnu kommúnismans, ekki
hvað síst er snerti framferði þeirra og af-
stöðu til hinna ýmsu smáþjóða og þjóð-
ernisminnihluta hins forna keisararíkis.
Eitt af merkilegustu skjölunum, sem Len-
ín lét skrifa niður eftir sér í þeim tilgangi,
er grein sú, er hér birtist, rituð 30. og
31. des.. 1922. Grein þessi birtist í fyrsta
sinn opinberlega 1956.
Áður hefur verið vitnað í þessa grein
hér í ,,Rétti“ í sambandi við innrásina í
Tékkóslóvakíu. Birtist greinin nú hér í
heild, svo menn geti kynnt sér hana alla.
Fyrir smáþjóðir eins og okkur Islendinga,
sem öldum saman höfum barizt fyrir
sjálfsákvörðunarrétti vorum, og sérstak-
lega fyrir okkur íslenzka sósíalista, sem
álítum að einmitt sósíalisminn tryggi þann
rétt bezt af öllum stefnum, er sú skoðun,
sem Lenín túlkar hér, staðfesting á kenn-
ingu okkar um hugsjónir sósíalismans og
kommúnismans og hörð fordæming á
þeim sem brjóta gegn þeirri hugsjón i
'ærki. Það er margt líkt með því sem Len-
ín er að gagnrýna viðvíkjandi framferði
172