Réttur - 01.10.1969, Blaðsíða 36
á annað þúsund miljónum króna. Fyrir þá
upphæð hefði mátt greiða út í hönd 10 full-
komna skuttogara eða 900—1.000 fullbúnar
íbúðir. — Þetta eru glæpir viðreisnarinnar.
En til þess að tryggja að atvinnulausir verði
ekki hungurmorða voru greiddar á árinu um
120 milj. kr. í atvinnuleysisbætur.
KAUPHÆKKANIR
Eftir því sem leið á árið 1969 varð mönn-
um ljósari nauðsyn þess að stórhækka kaup
hér á landi og tvinna um leið saman stjórn-
málabaráttuna og hagsmunabaráttuna. Þjóð-
viljinn bauð nýja árið velkomið með for-
ustugrein undir fyrirsögninni „Baráttuár":
„A þessum áramótum er sú heitstrenging
öllum öðrum mikilvægari að samtök launa-
fólks hefji markvissa sókn að því tvíþætta
verkefni að tryggja fullt atvinnuöryggi og
verulega kauphækkun."
FLOKKSRÁÐSFUNDUR
AB
Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins var
að þessu sinni haldinn á Akureyri og tókst
sá fundur hið bezta að flestu leyti. Umræður
urðu góðar og málefnalegar og staðfestu að
innan Alþýðubandalagsins er eindregin sam-
staða um stefnumál flokksins. A þessum
fundi var því slegið föstu í einróma samþykkt
að Alþýðubandalagið væri algerlega andvígt
aðild að Fríverzlunarbandalagi Evrópu og
hélt flokkurinn uppi því merki meðan helztu
átökin voru um það mál.
Það bar annað helzt til tíðinda á flokks-
ráðstefnunni að endurnýjun varð veruleg í
miðstjórn, þriðjungur miðstjórnarmanna
hafði ekki átt sæti í henni áður. Töldu ýmsir
flokksmenn að þessu hafi valdið kosninga-
aðferðin „punktakerfið" og endurnýjunar-
reglurnar. Þó töldu ýmsir að „punktakerfið"
væri ranglátt og gæti hreinlega verið ólýð-
ræðislegt og bæri að fara aðrar leiðir til þess
að tryggja vald flokksmanna.
Ræða Brynjólfs Bjarnasonar á flokksráðs-
fundinum vakti mikla athygli þar og munu
áheyrendur lengi minnast ræðunnar, en hún
var birt í Þjóðviljanum eftir fundinn.
VERKALÝÐSFÉLÖGIN
Eftir samningana í maí kom nokkur lægð
í starfsemi verkalýðsfélaganna, þó var eftir
að Ijúka samningum fyrir ýmsa aðila og
gekk það nokkuð fram á sumarið. I þessum
samningum náðust mun meiri kjarabætur
en almennt hafði verið reiknað með. Fengu
prentarar allverulegar launabætur eftir stutt
verkfall í lok ágústmánaðar. Þá fengu vél-
stjórar hjá Landsvirkjun allgóða útkomu eftir
verkfallshótun. Ber allt að þeim brunni að
launafólk muni nú krefjast verulegra launa-
hækkana, enda hafa stjórnarvöld keppzt við
að færa fram staðhæfingar um betra efna-
hagsástand, sem launafólk á auðvitað að nota
sér ekki síður en þann þrýsting sem unnt er
að skapa í sambandi við kosningarnar í vor.
Verkamannasambandsþing var haldið á
veturnóttum. Var Eðvarð Sigurðsson endur-
kjörinn formaður þess. Þá héldu stjórnir
Málm- og skipasmíðasambandsins og Sam-
bands byggingarmanna ársfundi sína á haust-
inu.
Verkalýðsfélögin vinna nú að því að laga
skipulag sitt og starfshætti að nýjum lögum
ASI. A þetta einkum við um sérstök svæða-
sambönd og er þegar stofnað Alþýðusamband
Suðurlands og nokkuð hefur verið unnið að
breytingu á skipulagi Fulltrúaráðs verkalýðs-
182