Réttur - 01.04.1980, Blaðsíða 5
Tilgangurinn með þessum ægilega víg-
búnaði og með stórfelldum fyrirætlunum
um að auka hann, er að halda f. o. f.
sem mestum hluta „þriðja heimsins"
(þ. e. Suður-Ameríku, Afríku, þorra Asíu-
ríkja) undir arðránskló sinni. Um Vestur-
Evrópu verður rætt í annari grein síð-
ar. En það sem gerir hættuna svo geig-
vænlega nú — auk þess sem Bandaríkin
undirbúa í Vestur-Evrópu — er að ýmsar
þessara fornu nýlendna eða hálfnýlendna
eru að brjótast undan kúgun vestræna
auðvaldsins — og leiðtogar auðvaldsins
virðast ærast við það.
Nærtækasta dæmið er Iran:
íran var að áliti Carters „eyja stað-
festunnar í órólegustu landsvæðum
heims“, „sökum framúrskarandi forustu-
liæfileika keisarans" o. s. frv. Lesið ræðu
Carters fyrir Iranskeisara, lialdna á garnl-
árskvöld 1977 í Teheran, til að tjá keis-
anum ,,ást“ og „aðdáun“ þjóðarinnar.
(Hluti liennar birtnr í „Neistum“ Réttar
1979, bls. 136). Og nú kasta Bandaríkja-
menn þessum „þjóðaiieiðtoga, sem þeir
eiga meiri þakkarskuld að gjalda“ en
nokkrum öðrum, eins og hræi frá sér af
ótta við hvað ofstækismenn Múhameðs-
trúar kunni að gera. Og lenda síðan í
misheppnuðum innrásum eins og í apríl-
lok — og segjast undirbúa nýjar — er
kveikt gæti í öllu þessu eldfima olíu-
svæði.
Carter virðist vera annar ofstækismað-
urinn til (eins og Komeni), — skynsöm-
ustu borgaralegu stjórnmálamenn, amer-
ískir og evrópskir, óttast glópskuna, er
hann kunni að grípa til með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum.
Það er táknrænt um hættuna, sem
skynsamari borgaralegir stjórnmálamenn
sjá, er Cyrus Vance, utanríkisráðherra
segir af sér af því hann er andvígur íran-
ævintýri Carters. Hann virðist heldur
ekki hafa verið hafður með á leynifundi
í „Camp David“ í nóvember 1979, jrar
sem Carter, Mondale varaforseti og
Broiun hermálaráðherra, Brezinski og
Turner, yfirmaður CIA, lögðu á ráðin
með æðstu herforingjunum um hvemig
taka skyldi völdin í Iran — og Carter
kvað það nauðsynlegt innan sex mánaða.
Klaufaskapurinn, ofstopinn og valda-
frekjan virðast haldast í hendur hjá þess-
um ofstækismönum. Og þeir ráða ægi-
legustu vígvélum heims:
Kjarnorkuforði Bandaríkjanna er næg-
ur til að drepa hvert mannsbarn á jörð-
inni.
I viðbót við 5 flotadeildir með 530 her-
skipum og þar af 12 sérstökum árásar-
flugvélamóðurskipum — er 6. flotadeild-
in nú undirbúin fyrir Indlandshaf. Og
svo á að bæta við 90 fullkomnustu kaf-
bátum og 600 ofansjávarherskipum er til
séu 1983.
Bandaríkin einsetja sér að drottna á
öllum heimshöfum — og svo eru til
ginningarfífl, jafnvel í ríkisstjóm Islands,
sem halda að allt þetta sé gert til varnar,
vafalaust eins og níðingsverk bandarísku
blóðhundanna í Víetnam í sjö ár!
Bandaríkin kaupa sér að vinum verstu
einvalda heims og byrgja þá að vopnum.
Tökum dæmið af hinum siðlausa, forríka
einvaldskonungi Saudi-Arabíu, — þess er
O 1 I A
brenna lét prinsessu fyrir ástarævintýrf
og bannaði stórveldum „lýðræðisríkj-
anna“ að sýna kvikmynd af þessu morði
— og þessi ræfilsríki hlýttu eins og hund-
ar — og gelta um leið um lýðræðið hjá
sér.
Bandaríkin ákváðu að selja þessum
morðfursta 60 herflugvélar og annan her-
69