Réttur - 01.04.1980, Blaðsíða 61
ERLEND
VÍÐSJÁ
Lát Liu-Sjaó-Sís.
í 4. hefti ,,Réttar“ 1979 var skýrt ýtar-
legai'rá líli Líu-Sjaó-Sís,eins besta komm-
únista Kína, og hvernig meðferð hann
hafði sætt af hálfu ofstækisklíkunnar.
Nú staðfesta börn hans, sem einnig
lengu að kenna á ofsóknunum, að hann
hafi dáið 12. nóvember 1969 í fangelsi
í Kaifeng í mið-Kína, 71 árs að aldri.
Kona hans, Wang Guangmei, var einnig
dæmd til dauða, en dómurinn ekki fram-
kvæmdur. Og nú skipar hún heiðurssess
í almenningsálitinu í Kína og kemur síð-
an í febrúar 1979, opinberlega fram. En
Líu er nú talinn með fremstu mönnum
flokksins við hlið Mao, Chou-En-lai og
Chu Te.
Það verður víst seint séður og viður-
kenndur allur sá skaði, sem ofstækið hef-
ur valdið kommúnismanum — og aldrei
bætt það tjón.
Afghanistan.
í viðbót við það ,sem sagt var frá í
síðasta „Rétti“ urn fyrirhugað valdarán
aftmhaldsafla þar, hefur eftirfarandi
komið fram:
Leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA,
hafði undirbúið valdarán í Kabul í sam-
ráði við Amin, er hafði látið drepa eða
drepið Taraki, formann flokksins og
forseta landsins, þann 8. október, en
reynt að halda morðinu leyndu. Hins
vegar var nú af hálfu þessara valdaráns-
manna tekið til við að ryðja úr vegi bestu
og tryggustu flokksmönnum og hafði
bróðir Amins, Abdullah, forustu um jrau
morð. Er talið að meir en 600 góðir
flokksfélagar hafi verið myrtir á tæpum
jirem mánuðum eftir morðið á Taraki.
Einn af erindrekum Amins átti fund í
septemberlok með Gulbekair Hiktmart,
leiðtoga Islam-flokksins í Afghanistan og
fór sá fundur fram í Peshawer í Pakistan
með mikilli leynd.
Fyrirætlun CIA var að komið yrði upp
afturhaldsstjórn, er hlýðin yrði Banda-
ríkjunum, eftir 29. des. og fór sendiboði
Amins til Róm, París og Karachi 22.-24.
desember til að gefa skýrslu til umboðs-
manna CIA þar um undirbúning valda-
ránsins, — sem ekki tókst. Hins vegar
var allt undirbúið, m. a. s. verkaskipting
í valdaránsstjórninni. Átti Amin að vera
forseti, Gulbekdin Hiktmart forsætisráð-
herra o. s. frv.
Það heppnast ekki alltaf allar fyrirætl-
anir CIA, en það skortir aldrei hræsnina
eftir á, ef þær mistakast.
Sífellt kemur fram ýmislegt nýtt um
hvað gerst hefur.
„Times“, hið fræga Lundúnablað, rit-
ar 28. des.: „Þrátt fyrir hinn sérstaklega
skjóta fréttaburð þarum, þá er engin
sönnun fyrir því að Sovétríkin hafi fram-
125