Réttur - 01.04.1980, Blaðsíða 54
tveir ráðherrar, formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis og fv. formaður íslensk-
ameríska félagsins.
Um mánaðamótin maí-júní árið 1973
varð Island fyrir þeirri hremmingu, að
tveir oddvitar Atlantshafsbandalagsins,
Nixon Bandaríkjaforseti og Pompidou
Frakklandsforseti, áttu fund á Kjarvals-
stöðum til að reyna að útkljá deilumál
sín. Samtök herstöðvaandstæðinga höfðu
í frammi ýmis mótmæli gegn því að land
okkar væri gert að vettvangi þessara
stríðsfáka. Hámarki náðu þau með fjöl-
mennri mótmælagöngu 31. maí frá Von-
arstræti framhjá sendiráðum stórveld-
anna og umhverfis Klambratún. Gang-
an endaði með fundi við Sjómannaskól-
ann. Vöktu þessar aðgerðir mikla athygli
hinna fjölmörgu erlendu fréttamanna,
sem hér voru staddir í tilefni fundarins.
Æskulýðssamband íslands stóð einnig að
göngunni.
VL og Þjóðhátíðin
Þegar kom fram á þjóðhátíðarárið
1974, tóku hjartans vinir hersetunnar að
óttast, að einhver áfangi kynni að nást
varðandi ákvæði stjórnarsáttmálans um
brottför hersins. 14 þeirra mynduðu sam-
tökin Varið land í janúar og hleyptu af
stað undirskriftasöfnun til að skora á
stjómvöld að hætta við öll slík áform.
Var nú, öfugt við söfnun hernámsand-
stæðinga 1961, unnt að beita öllu kerfi
og hræðslutökum Sjálfstæðisflokksins, at-
vinnurekenda og annarra hernámssinna
til að knýja menn til undirskriftar. Samt
fengust ekki undirskriftir nema 2/5 at-
kvæðisbærra kjósenda eða minna en
Sjálfstæðisflokkurinn einn fékk við kosn-
ingarnar í júní. Því að ríkisstjórnin
sprakk um vorið vegna ágreinings um
efnahagsmál einsog venja er til.
Herstöðvaandstæðingar snerust hart
gegn þessari herstöðvabeiðni Vl.-inga og
skrifuðu margir meiningu sína hispurs-
laust um athæfi þeirra.
12 VL-inganna sviiruðu þessum skrif-
um með því að kæra fjölda manns lyrir
meiðyrði með miklum fjárkröfum. Hóf-
ust nú umfangsmestu málaferli vegna
ritfrelsis í sögu þjóðarinnar og voru
kveðnir upp dómar í undirrétti og hæsta-
rétti.
Haustið 1977 var stofnaður Málfrelsis-
sjóður, sem hefur það markmið að styrkja
menn og verja gegn fjárhagslegum of-
sóknum fyrir að láta skoðun sína í ljós
á prenti.
Sumarið 1974 var haldin þjóðhátíð á
Þingvöllum til að minnast 11 alda af-
mælis Islandsbyggðar. Tugþúsundir
manna voru þar saman komnar. Nokkr-
um herstöðvaandstæðingum fannst
ástæða til að minna þjóðhátíðargesti á,
að þeir byggju enn í hersetnu landi.
Reistu þeir upp kröfuspjöld á vestari
barmi Almannagjár. Lögreglan brá skjótt
við, handtók mótmælendur og flutti til
yfirheyrslu í Reykjavík. Nokkrir þeirra
kærðu þessa meðferð, og þótt merkilegt
kunni að þykja, hafa þeir fengið dæmd-
ar táknrænar skaðabætur fyrir nauðung-
arflutninginn.
Síðustu ár
Keflavíkurganga var farin vorið 1976
í fyrsta sinn í 8 ár. Aldrei hafa jafnmargir
gengið alla leiðina eða 7—800 manns.
Hernaðarumsvif NATO-ríkisins Biæt-
lands á íslandsmiðum vegna 200 míln-
anna munu háfa átt sinn þátt í því.
118