Réttur - 01.07.1982, Side 8
Gerður G. Óskarsdóttir:
Dulda námsskráin
Stéttarleg og kynferðisleg mismunun í skólum
1.0 Inngangur.
2.0 Úr niðurstöðum rannsókna Sigurjóns
Björnssonar og félaga.
2.1 Menntun — stétt — kyn
2.3 Greindarvísitala og einkunnir
2.4 Uppeldislegar aðstæður og stétt
3.0 Aðstöðumunur nemenda
3.1 Mismunun eftir stétt
3.1.1 Dæmi: „Vandræðaungling-
arnir“
3.2 Námsárangur
3.3 Kynbundin mismunun
4.0 Vísir að niðurstöðu
4.1 Hvað er til ráða?
4.2 Hvernig er góður skóli?
5.0 Lokaorð
1.0
Inngangur
Hugtakið dulda námsskráin (enska:
The Hidden Curriculum) er notað yfir
ýmiss konar markmið eða gildismat sem
skólinn hefur að leiðarljósi án þess um sé
rætt í opinberum námsskrám. Þar koma
fjölmargir þættir til greina. Segja má að
allt sem við höfum fyrir nemendum okkar
í skóla með viðhorfum okkar, talsmáta og
framkomu tilheyri duldu námsskránni,
einnig val okkar á þekkingu eða umfjöll-
unarefni sem gert er að námsefni. Við
veljum eitt en höfnum öðru og opinberum
þar með ákveðið gildismat. Staðsetning
skóla, skipulag og niðurröðun náms-
brauta, t.d. á framhaldsskólastigi, endur-
speglar ákveðin viðhorf. Val á kennurum,
starfsaðstaða þeirra og kjör byggjast einn-
ig á ákveðnu gildismati. Húsnæði skóla,
innbú og fyrirkomulag húsbúnaðar gegnir
sínu hlutverki sem aðrir þættir. Að ekki
sé talað um vinnuaðferðir skóla og mat á
vinnu nemenda. Allt þetta tilheyrir duldu
námsskránni og miklu fleira. Hér er í raun
um að ræða alla hugmyndafræðina að
baki skólastarfinu.
Til nánari útskýringar verða hér nefnd
nokkur dæmi. Nemandi kemur í skóla og
sér fyrir sér hvítmálaða byggingu, engin
gluggatjöld, ekkert skraut eða blóm, eng-
in leikföng. Hann eða hún er e.t.v. að
velta fyrir sér hvað sé skólaganga og
menntun. Áhrifin eru undirstrikun á skörp-
um skilum á milli heimilishlýju og leikja
eða daglegs lífs annars vegar og menntun-
ar og skóla hins vegar. Niðurröðun ein-
staklingsborða í röðum í skólastofu sýnir
að skólinn metur einstaklingsvinnu meira
en hópvinnu. Stundataflan með yfir 20
lesgreinatíma, alla fyrir hádegi, en hand-
menntir í tvo tíma á viku eftir hádegi niðri
í kjallara eða í öðru húsi gerir greinarmun
á gildi huglægs og verklegs náms.
136