Réttur - 01.07.1982, Side 38
Óskar Guðmundsson:
E1 Salvador
— Þjóð undir kerfísbundinni ógnarstjórn —
Löndin fímm í Mið-Ameríku Nicaragua, Costa Rica, Honduras, Guatemala
og EI Salvador hafa nokkrum sinnum reynt að mynda ríkjabandalag en öll eru
þau tiltölulega lítil að víðfeðmi. I kjölfar sjálfstæðisbaráttu suður-amerískra þjóða
gegn spænskum og portúgölskum nýlenduherrum í byrjun nítjándu aldar, þegar
Napoleonsstyrjaldir stóðu í Evrópu, var þannig myndað hið skammvinna
bandalag „Hinna sameinuðu héraða Mið-Ameríku“ 1823. Allar slíkar tilraunir
mistókust, síðast ODECA, um efnahags- og utanríkismál, sem stofnað var 1951
en rann út í sandinn þegar Guatemala reyndi að framkvæma róttækar
þjóðfélagsbreytingar, og Bandaríkjamenn svöruðu með að skipuleggja innrás í
landið.
E1 Salvador er lítið land að flatarmáli,
eða sem samsvarar fimmta hluta íslands.
Ibúar eru taldir vera tæpar fimm milljónir,
þar af eru á milli fjögur og sjö hundruð
þúsund manns á flótta innan lands og
utan. Þetta er þéttbýlasta landið í Mið-
Ameríku og í höfuðborginni San Salvador
búa um ein milljón manns. Um tvö
hundruð manns búa á ferkílómetra.
Meirihluti þjóðarinnar er af blönduðum
uppruna spánverja og indíána og aðal-
tungumál er spænska. Landið er mjög
frjósamt en afurðir eru ekki miðaðar við
þarfir þjóðarinnar heldur heimsmarkað.
Pví er aðallega ræktað kaffi sem er helsta
útflutningsvaran (tekur til 2/3 alls útflutn-
ings). En meðal annarrar ræktunarfram-
leiðslu má nefna baðmull og sykur. Þetta
frjósamasta land Mið-Ameríku verður að
flytja inn allar helstu fæðutegundir.
Stórjarðeigendur klófesta
jarðeignirnar
Um 1880 urðu mikil umskipti í landinu.
Fram að þeim tíma var hluti landsins í
sameign smábænda sem erjuðu jörðina
sér til lífsviðurværis auk þess sem þeir
unnu fyrir landeigendur að einhverju
leyti. Á þessum tíma varð kaffi æ eftir-
sóknarverðari vara í Evrópu og Banda-
ríkjunum. Yoldugir jarðeigendur þrýstu
á stjórnvöld um að taka upp jarðir smá-
166