Réttur - 01.07.1982, Síða 41
Óhugnanleg morð.
1950 var bein fjárfesting Bandaríkja-
manna í El Salvador 19.4 milljónir dollara
en árið 1967 var sú tala orðin 45 milljónir.
Iðnaður og verslun tóku „fjörkipp“ með-
an erlendur fjárfestingarnar gerðu ríkið
háðara Bandaríkjamönnum. Aðföng iðn-
aðar voru ríkinu dýr auk þess sem inn-
flutningur annarskonar jókst meðan út-
flutningur jókst ekki að sama skapi. Reynt
var að lappa uppá ótraust efnahagskerfið
með efnahagsbandalagi Mið-Ameríku-
ríkja sem gerði illt verra. Nágrannaríkið
Honduras var í þessu bandalagi og kom
enn verr út úr þessari samvinnu, en þar
var markaðurinn yfirfullur af vörum frá
E1 Salvador um leið og hráefni voru flutt
frá Honduras inn í E1 Salvador til full-
vinnslu. Fjandskapur efldist með ná-
grannaríkjunum sem endaði í stríði „fót-
boltastríðinu“ sem svo var nefnt (til að
villa um fyrir fólki?) eftir fótboltaleik
þjóðanna.
í júlímánuði 1969 réðst her E1 Salvador
inn í Honduras — fimm þúsund manns
féllu í stríðinu. Afleiðingar stríðsins urðu
m.a. þær að fjölmargir bændur og land-
búnaðarverkamenn af E1 Salvadorískum
uppruna, sem sest höfðu að í Hondúras
flýðu „heim“ aftur og markaður fyrir
iðnvarning í Hondúras lokaðist gjörsam-
lega. Samtímis lokaði Hondúras leiðinni
til Nicaragua, sem hafði verið markaðs-
svæði E1 Salvador.
Frá 1960 til 1977 jókst hlutur iðnaðar í
þjóðarframleiðslu úr 15% í 20% og iðn-
verkafólki fjölgaði verulega. í Mið-Amer-
íku er nú iðnvæðing lengst komin í E1
Salvador. En landið er eftir sem áður enn
í viðjum vanþróunar, hungurs og fátækt-
ar. Meðalhitaeininganeysla í E1 Salvador
er sú lægsta í Rómönsku Ameríku, 75%
barna undir fímm ára aldri þjást af næring-
arskorti, barnadauði er 45% af dauðsföll-
um, heilbrigðisþjónusta er í lágmarki,
einn læknir á hverja 3700 íbúa, ólæsi er
mikið í landinu, húsnæðisskortur al-
mennur og fjöldi íbúa býr í pappa-
kassakofum, atvinnuleysi er mjög mik-
ið og aðeins 16% eru taldir hafa at-
vinnu allt árið. Og þessa harmatölu
mætti mikið lengja.
Árið 1971 skipulögðu ýmis fjöldasam-
tök mótmælaaðgerðir vegna hörmulegs
þjóðfélagsástands, sem fór stigversnandi.
Herforingjastjórn Milinas hershöfðingja
kæfði mótþróa með mikilli hörku og
169