Réttur - 01.10.1987, Side 10
Eitraður sjór
eldspúandi skrímsli
Er þetta framtíðin?
Það er ný yfirstétt tekin við í Bandaríkjunum, sem býður hinum gömlu
olíukóngum og slíkum byrginn: Vopnaframleiðendur Kaliforníu, sem gert hafa
Vesturríkin að höfuðstöðvum þessa voldugasta auðvaldsríkis jarðar. Og um leið
hefur nú sú tæknibreyting orðið á að kjarnorkustöðvarnar á landi verða meir og
meir teknar niður, eldflaugarnar eyðilagðar o.s.frv. Orsökin er að hinar landföstu
kjarnorkustöðvar voru alltof handhæg skotmörk og því ónothæfar, — nema til
gagnkvæms sjálfsmorðs og útrýmingar mannkyns.
En gróðalöngunin í sambandi við
manndráp er ekki þarmeð horfin.
Bandarísku vopnakóngarnir hafa ekki
gefist upp við drápsiðjuna. Nú hafa þeir
ákveðið að margfalda kjarnorku-kafbáta-
flota sinn. Segja að Rússar eigi svo marga
kafbáta. Og hver verður afleiðingin af
þessu neðansjávarkapphlaupi um útrým-
ingu mannkyns, ef þessir auðmenn fá að
ráöa?
Framtíðin?
Ef hafið, fyrst og fremst hér á norður-
slóðum, verður fyllt af kjarnorku-kafbát-
um munu afleiðingarnar verða sífelldir
árekstrar með tiiheyrandi eitrun sjávar,
— þegar best lætur og gerspillingu alls lífs
í sjónum og á þeim stöðvum, sem skotin
frá bátunum ná til, ef til stríðs kemur.
Við Islendingar vitum þá hvað okkar
bíður: Fiskadrápið verður ekki lengur til
að útvega fæðu handa mönnunum, eitrun
og dauöi bíða fiskanna í sjónum,
skömmtun og „kvóti" verða óþörf. Kan-
inn mun sjá um útrýmingu fæöunnar, sem
Islendingar lifa á að framleiða — og það
mun verða kallaö „vernd" Islands af
amerískum þrælum.
Manndrápslýðurinn hefur þegar sett
upp hér á landi Awacs-flugvélarnar, er
stjórna skulu eitruðu eldflaugunum úr
kafbátum er sigla neðansjávar.
„Verndarinn“ mun þá gera ísland
óbyggilegt íslendingum, en því öruggara
sem drápsmiðstöð fyrir Kanann.
Og krafan um að Kaninn fari burt með
eitur sitt og drápstól af íslandi, mun örugg-
lega þagna, er íslendingar verða reknir
burt af landi sínu, — máske einhverjum
„öruggum“ boðið að setjast aö í Vestur-
heimi?
Awacs-flugvélarnar eru þegar stað-
settar hér — og í Tyrklandi, annars í cngu
Nató-landi í Evrópu. Og aðgerðirnar á
Suðurnesjum verða brátt faldar svo fyrir
Islendingum að engir þeirra, nema þjón-
arnir, fylgist með hvað þar gerist.
Eigum við íslendingar að bíða eftir því
að þetta gerist?
186