Réttur


Réttur - 01.10.1987, Qupperneq 22

Réttur - 01.10.1987, Qupperneq 22
hvolfdi eitt sinn öllum farminum úr sér. Þá náðu margir í kol. Eitt sinn slæddum við kolastykki sem vóg 120 pund. Við höfðum ekkert spil í bátnum og það var erfitt að innbyrða það. — Og þú varst alltaf í Dagsbrún? — Já, konan vildi helst að ég væri í Dagsbrún. Vinnan var þannig að erfitt var að taka þátt í félagsstörfunum, en eft- ir stríðið fór ég að fylgjast meira með, fá meiri tíma. Sigurður var spurður hvort hann myndi Ólafs Friðrikssonar slaginn. — Hvort ég man. Það hefur aldrei verið annað eins tilstand í bænum. Stjórnvöldin voru búin að fylla hús með sjúkrabörum fyrir þá sem ætlað var að særast kynnu í aðförinni að Ólafi. Það var búist við að drepa menn. En það gerði vatnsbáts- skömmin að ég gat ekki verið í aðalslagn- um, því svo var sá sem með mér var á bátnum enginn félagsmaður. En ég var þó tvisvar á vaktinni hjá Ólafi. Lengra var samtalið ekki í stofu Sig- urðar Guðmundssonar, í stofunni hans á Njarðargötu 61 þar sem allt bar vitni um smekkvísi og dugnað húsmóðurinnar. Hannes Stephensen og Jón Bjarnason kvöddu hjónin í húsinu með þökkum fyr- ir góðar viðtökur, Sigurður var einn með- al þeirra stofnenda Dagsbrúnar sem sæmdir voru heiðursmerki Dagsbrúnar. Hannes M. Stephensen og Jón Bjarna- son gengu á fund Kjartans Ólafssonar múrara og hann segir þeim frá stofnun Dagsbrúnar og kemur víða við í sögu fé- lagsins á þess fyrstu árum. Kjartan Ólafs- son var fæddur 12. febrúar 1880 að Dísar- stöðum í Flóa, hann segir frá af miklu fjöri og áhuga: — Þegar ég var rúmlega tvítugur vann ég við ræsið í götunni skammt frá húsinu hans. Þá sat hann alltaf um okkur, bless- aður, hann Þorsteinn Erlingsson, og ræddi við okkur í kaffitímanum. Við höfðum í okkar hópi mann sem var víða heima, Einar Guðmundsson í Skál- holti, bróður Guðmundar í Nesi. Það var gaman að hlusta á þá Þorstein og Einar. Þrátt fyrir meiningarfestu Þorsteins var málflutningur hans lipur, engar þrætur. Það var alltaf skemmtilegt hjá honum. Hann hafði stúderað verkamannamálefni erlendis, horft þar á kröfugöngur og alls- konar fyrirgang. Þegar hann var að tala við okkur um nauðsyn samtaka var hann búinn að vera á Seyðisfirði og stofna þar félag. — Nei hann skipti sér Iítið af póli- tík. En það duldist engum hverjum hann fylgdi að málum. Maður finnur andann í kvæðum hans. Kjartan Ólafsson var fyrsti ritari Dags- brúnar og í stjórn félagsins í 8 ár. Maður undrast þrótt hans, fjör og áhuga, hann er hár og beinvaxinn og kempulegur á velli. Hann stendur á miðju gólfi þeg'ar hann byrjar að spjalla við okkur, — segir Jón. Það leynir sér ekki að það er gamall hug- sjónamaður sem er að tala. — Við fáum að vita að hann hefur róið í Grindavík þegar hann var 16 ára. Fékk þá 900 í hlut og herti aflann sjálfur. Fór síðan í vinnumennsku að Syðri-Brú í Grímsneshreppi, var þar vinnumaður og lausamaður í 3 ár. Kom til Reykjavíkur árið 1903. Réðist þá til vinnu við Fagra- dalsbrautina. — Um vinnuna hér í bæn- um segir hann: — Á veturna var aðalvinnan hér við ís á Tjörninni og inni í íshúsunum við að hlaða upp ísnum. Þá voru tvö íshús, Norðdals og Geirs, það var í Grjótaþorp- inu. Það var vikuvinna fyrir þá sem kom- ust í ísinn. Ég var alltaf í ísnum. Var í miklu áliti hjá Davíð í Stuðlakoti, verk- stjóra Nordals. Kjartan segist hafa verið í 198

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.