Réttur


Réttur - 01.10.1987, Blaðsíða 44

Réttur - 01.10.1987, Blaðsíða 44
málið er ekki til, en þeir þarna — Gléb gaf til kynna við hverja hann ætti með flóknum handahreyfingum — þeir dansa og berja bumbur... Ha? En ef vilji er fyrir hendi... Gléb endurtók með áherslu: ef vil-ji er fyrir hendi, þá er hægt að láta sem þeir séu ekki til. Annars gæti... Nú jæja! Enn ein spurning: hvernig líst þér á að tunglið sé líka handaverk mannsandans? Nú hafa vísindamenn komið fram með þá kenningu að tunglið sé á gerfibraut og að skynsemi gæddar verur kunni að fyrir- finnast innan í því. Kandídatinn starði rannsakandi á Gléb. — Hvar eru útreikningar ykkar á eðli- legum brautum himintunglanna? Og hvernig er yfirleitt hægt að nýta geimvís- indin einsog þau leggja sig? Karlarnir hlustuðu á Gléb af athygli. — Gerum ráð fyrir að mannkynið fari æ oftar í heimsóknir til þessa nágranna okkar í geimnum, ef svo mætti að orði komast, og þá verðum við líka að gera ráð fyrir því að einn góðan veðurdag standist hinar skynsemi gæddu vecur ekki mátið og skríði út til fundar við okkur. Erum við í stakk búnir til að skilja hverjir aðra? — Hvern ertu að spyrja? — Ykkur, hugsuðina. — En þú, ert þú nógu vel í stakk búinn? — Við erum ekki hugsuöir, við erum í öðrum launaflokki en þið. En ef þið hafið áhuga get ég útskýrt fyrir ykkur hugsana- gang okkar hér í dreifbýlinu. Gerum nú ráð fyrir að skynsemi gædd vera hafi skriðið upp á yfirborð tunglsins... Hvað mundir þú ráðleggja mér að gera? Gelta einsog hundur? Gala einsog hani? Karlarnir hlógu, óku sér í sætunum og héldu síðan áfram að góna á Gléb. — Við þurtum semsé að skilja hvor annan. Er það ekki? Og hvernig förum við að því? Gléb gerði hlé á máli sínu og spurningin hékk í þögninni. — Ég mundi teikna í sandinn kort af sólkerfinu okkar og sýna honum sísona, að ég sé frá jörð- inni. Að þótt ég sé með hjálm hafi ég líka höfuð og sé skynsemi gædd vera. Pessu til staðfestingar má sýna honum á kortinu hvaðan hann sé, benda á tunglið og því- næst á hann sjálfan. Er þetta ekki rökrétt? Þannig komumst við að raun um að við erum nágrannar. En það er líka allt og sumt! Síðan þarf ég að geta útskýrt fyrir honum eftir hvaða lögmálum ég hef þróast, hvernig ég var áður en ég komst á núverandi þróunarstig... — Nú já, nú já... Kandídatinn leit þýðingarmiklu augnaráði á konu sína. Það hefði hann ekki átt að gera, því eftir þessu augnaráði var tekið. Gléb hækkaði flugið... í hvert sinn sem Gléb ræddi málin við frægðarmenn þorpsins kom fyrr eða síðar áð þessu, að hann hækkaði flugið. Líklega beið hann alltaf eftir slíku augnabliki og fagnaði því. — Ertu að koma konunni þinni til að hlæja? spurði Gléb. Hann var rólegur á yfirborðinu, en reiðin sauð í honum, und- ir niðri. Gott og vel... En hvernig væri að læra fyrst að Iesa blöðin, þó ekki væri annað? Ha? Hvað finnst þér? Það er sagt að jafnvel kandídatar geti haft gott af því... — Nei, heyriði nú!! — Já, við höfum heyrt nóg! Okkur hefur veist sú ánægja, satt að segja. Og því vil ég leyfa mér að benda þér á, félagi kandídat, að fræðimennska er ekki jakka- föt, sem maður kaupir sér og klæðist í eitt skipti fyrir öll. Jafnvel jakkaföt þarf að hrcinsa af og til. Og úrþví fræðimennska er ekki jakkaföt — um það getum við 220

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.