Réttur - 01.10.1987, Page 24
Já Dagsbrún fékk oft menn til erinda-
flutnings. Þorsteinn Erlingsson var einn
af þeim fyrstu, Guðmundur Finnbogason
kom oft. Hann var greiðugur að flytja er-
indi. Jónas frá Hriflu flutti oft erindi og
lét ýmislegt til sín taka. Bjarni frá Vogi
o.fl. fluttu erindi á Dagsbrúnarfundum.
Þið fóruð snemma að skipta ykkur af póli-
tík? Já, 1916 fengum við 3 af 5 í bæjar-
stjórninni, allt var það Dagsbrún að
þakka. Hún var aðalaflið í öllu slíku. Fað
voru skemmtilegir dagar.
F*að var gamli Heimastjórnarflokkur-
inn sem við börðumst gegn. Þegar verka-
lýðsfélögin voru að myndast voru það
gamlir Sjálfstæðisflokksmenn sem var
kjarninn í þeim. Og Kjartan hélt áfram:
Að hugsa sér — eins og þetta liggur þó
opið fyrir — hve skilningurinn á nauðsyn
pólitískra afskipta hefur vaxið seint: og
þó er þetta undirstöðuatriði, ef maður
ætlar sér ekki að láta taka allar kaup-
hækkanir af sér aftur með tollum og
sköttum. Það er ekki nóg að hafa þetta
eða þetta mörgum aurum meira um tím-
ann, ef verkalýðurinn ræður engu um
stjórnarfarið í landinu. Hið vinnandi fólk
þarf og á að hafa völdin í landinu.
200