Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.03.2009, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 30.03.2009, Qupperneq 8
8 30. mars 2009 MÁNUDAGUR 1. Hvað heitir seðlabankastjór- inn? 2. Í hvaða kaupstað á Vest- fjörðum hefur veitingamaður endurheimt pókerborð frá lögreglunni? 3. Hvaða íbúi í Ölfusi varð eitt hundrað ára í síðustu viku? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 22 STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson, nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, segir skattahækkanir ekki lausn á efnahagsvanda þjóðarinnar. Kosn- ingabaráttan framundan snúist um hvernig þeim verði hjálpað sem standi illa. Aðrir flokkar hafi reynt að slá eign sinni á hugtakið velferð en hafi í því sambandi iðulega verið efst í huga að auka útgjöld ríkisins. Hjól atvinnulífsins verði að komast á hreyfingu en það gerist ekki með því að seilast sífellt dýpra í vasa fyrirtækjanna. Bjarni ræddi um glatað traust Sjálfstæðisflokksins og sagði það sameiginlegt verkefni fundar- manna og annarra sjálfstæðis- manna að endurheimta traustið sem flokkurinn hefði alltaf notið meðal landsmanna. Hann kvaðst stoltur af hispurs- lausum umræðum á landsfundin- um; Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið í rækilega naflaskoðun. Hún hefði ekki verið sársaukalaus, ágreiningur væri uppi um mál en ekkert væri gert til að fela ágrein- ing. Styrkur flokksins gerði þetta kleift og við umræðurnar nú stæði flokkurinn enn sterkari. Í stjórnmálaályktun landsfund- arins segir að ríkisútgjöld verði að dragast saman og nýta þurfi fjármuni hins opinbera eins vel og frekast er unnt um leið og standa þurfi sérstakan vörð um hag öryrkja, eldri borgara og fjöl- skyldna. Til að tryggja að til verði allt að tuttugu þúsund ný störf þurfi meðal annars að afnema hið fyrsta höft á gjaldeyrisviðskipti, hafna öllum nýjum sköttum og skapa sátt um nýtingu auðlinda. Hefja beri þegar uppbyggingu orkufrekra atvinnu- greina svo sem gagnavera, álvera og annarra hátæknifyrirtækja. Þá beri að stefna að því að í boði verði óverðtryggð lán og veitt- ir möguleikar á að breyta verð- tryggðum lánum í óverðtryggð þegar verðbólga og vextir leyfi. Hugmyndum núverandi ríkis- stjórnar um há- og millitekjuskatt er hafnað en stefna beri að því að stýrivextir verði 5-6 prósent undir árslok. Í stjórnmálaályktun sinni ítrek- ar Sjálfstæðisflokkurinn það mat sitt að við núverandi aðstæður sé hagsmunum þjóðarinnar best borg- ið utan Evrópusambandsins. bjorn@frettabladid.is Skattahækkanir óráð í endurreisnarstarfinu Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins segir hreinskiptnar umræður á landsfundi hafa styrkt flokkinn. Sameiginlegt verkefni sjálfstæðismanna sé að endur- heimta það traust sem flokkurinn hafi jafnan notið meðal landsmanna. FORMANNSSKIPTI Geir H. Haarde afhenti Bjarna Benediktssyni lyklavöldin að Valhöll um leið og hann óskaði arftaka sínum til hamingju með kjörið á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins í Laugardalshöll síðdegis í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL Geir Haarde, frá- farandi formaður Sjálfstæð- isflokksins, sagði í ræðu á landsfundi flokksins í gær að ummæli Davíðs Oddssonar í garð Endurreisnarnefndar flokksins og formanns hennar væri ómak- leg og óverðskulduð. Davíð Oddsson sagði í ræðu sinni á fundinum á laugardag að skýrsla Endurreisnarnefndarinn- ar væri hrákasmíð og hann sæi eftir þeim trjágróðri sem notaður var í að prenta skýrsluna. Einnig sagði hann skjóta skökku við að sá sem ætti að semja siðareglur fyrir Sjálfstæðisflokkinn væri sami maður og var ráðinn fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins af Jóni Ásgeiri, Hreiðari Má og Hannesi Smárasyni. Þar átti Davíð við Vilhjálm Egilsson, formann nefndarinnar. - kg Geir um ummæli Davíðs: Ómakleg og óverðskulduð GEIR HAARDE Hann sagði Davíð hafa vegið með ómaklegum hætti að Endur- reisnarnefnd flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Fíkniefni á Akureyri Þrjú fíkniefnamál komu upp hjá lögreglunni á Akureyri á föstudag. Meðal annars var lagt hald á tæp þrjátíu grömm af amfetamíni, nokkuð af sterum og níu kannabisplöntur. Öll málin teljast upplýst. LÖGREGLUFRÉTTIR KÓLUMBÍA, AP Kólumbískur maður er sakaður um að hafa haldið dóttur sinni fanginni og eignast með henni ellefu börn. Réttar- höld standa nú yfir honum og hefur málið vakið mikinn óhug í Kólumbíu. Þykir því svipa mjög til máls austurríska níðingsins Josephs Fritzl. Maðurinn, sem er 59 ára, heit- ir Arcedio Alvarez og hefur hann þegar fengið viðurnefnið „Skrímslið frá Mariquita“. Hann er sagður hafa misnotað dóttur sína, sem nú er á fertugsaldri, síðan hún var níu ára gömul. Maðurinn neitar því að hafa nauðgað henni og framið sifja- spell, enda sé hún ættleidd. Að sögn dótturinnar var hún fimm ára þegar móðir henn- ar féll frá. Eftir það bjó hún ein með Alvarez. Konan segist alla tíð hafa litið á hann sem föður sinn. - fb „Skrímslið frá Mariquita“: Átti börn með dóttur sinni VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.