Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Blaðsíða 1
Laugardagur 13.5. | 2006
[ ]Gráa svæðið | Svæðið þar sem engar formúlur þrífast og frelsið er algjört | 8Barnahermenn | Slökkt á síðustu mannlegu eigindunum og ekkert verður óhugsandi | 10Philip Roth | Enn ein skáldsagan um ástalíf eldri karla | 11
Lesbók Morgunblaðsins
U
m þessar mundir kemur
út diskurinn Häxan
sem hefur að geyma
tónlist eftir Barða Jó-
hannsson. Nú eru það
ekki tíðindi í sjálfu sér
að Barði Jóhannsson sé
að gefa út tónlist, fáir
hafa verið duglegri en hann á því sviði und-
anfarin ár hvort sem hann hefur verið að gefa
út plötur með Bang Gang eða í samvinnu við
aðra listamenn. Þessi plata sker sig þó úr að
mörgu leyti, enda er á henni kvikmyndatónlist
eftir Barða sem búlgarska sinfóníuhljómsveitin
flytur undir hans stjórn en að auki er þetta
fyrsta platan sem Barði gefur út undir eigin
nafni.
Tónlistin á disknum var samin við kvikmynd-
ina frægu/alræmdu Häxan eftir danska kvik-
myndagerðarmanninn Benjamin Christensen.
Häxan er þögul mynd og var frumsýnd 1922, en
þótti svo ógurleg á sínum tíma að hún var bönn-
uð víðast.
Verk í sjö þáttum
Það bar við vorið 2004 að sett voru á sérstök
skemmtikvöld í París þar sem gamlar þöglar
myndir væru sýndar annan hvern mánuð og
leikin undir ný tónlist samin sérstaklega fyrir
hverja mynd. Aðstandendur þessara kvölda
leituðu til Barða Jóhannssonar um að semja
tónlist við kvikmyndina Häxan og hann setti
saman verk í sjö þáttum, því myndin er í 4
Allt er
yfir-
stígan-
legt
Barði Jóhannsson sendir frá sér um þessar
mundir sinfónískt tónverk sem hann samdi
fyrir þögla kvikmynd. Hann sagði blaða-
manni að hann óttaðist ekkert.
Eftir Árna Matthíasson | arnim@mbl.is