Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. maí 2006 | 15 Leiklist Við mælum með því að leikhúsáhugafólkfari að sjá uppfærslu Leikfélags Ak- ureyrar á Litlu hryllingsbúðinni sem gengið hefur fyrir norðan en verður frumsýnd í Ís- lensku óperunni í dag. María Kristjánsdóttir, gagnrýnandi Morgunblaðsins, gaf sýningunni góða dóma í mars og sagði meðal annars: „Ég er ekki sérstakur aðdáandi söngleikja og heldur ekki af kópíum af amerískum menning- arheimi á íslensku leiksviði sem þessi sýning auðvitað að hluta til er. En sá kraftur, gleði og metnaður að vinna verk sitt vel sem nú ljómar af Leikfélagi Akureyrar undir stjórn Magn- úsar Geirs er sannarlega aðdáunarverður.“ Kvikmyndir Að þessu sinni mælum við með spennu-myndinni Mission: Impossible III. Í dómi Heiðu Jóhannsdóttur segir meðal annars: „Myndin er vel skipuð leikurum, jafnt í aðal- sem aukahlutverkum. Philip Seymour Hoff- mann stelur þar senunni í hlutverki vopnasal- ans Owen Davian, en fas leikarans eitt og sér fær mannvonskuna til þess að lýsa af óþokk- anum. Tom Cruise er góður að vanda og fær áhorfandann til þess að trúa því að ekkert sé þessari hetju ómögulegt. Það er vel hægt að mæla með Aðgerð: Ómöguleg III sem góðri afþreyingu og frambærilegum sumarsmelli.“ Myndlist Á Listasafni Íslands hefur á síðustu miss-erum borið töluvert á tilraunum til að setja safnið – og stundum safneignina – betur í samhengi við samtímann. Þessar tilraunir mátti m.a. merkja í tveimur nýlegum yfirlits- sýningum á myndlist ungra Íslendinga og á sýningu á bandarískri samtímalist á Listahátíð í fyrravor. Þessi þróun í safnstarfinu er mik- ilvæg; söfn samtímans eru ekki lengur geymslustofnanir þar sem reglulega er dustað rykið af sýningargripunum og þeir viðraðir – söfn eru staðir þar sem ný sýn á menninguna er mótuð og almenningi er gefinn kostur á að skoða samtíma sinn í afhjúpandi og greinandi samhengi. Útspilið þetta vor í upphafi Listahátíðar er yfirlitssýning á verkum tveggja vel þekktra ís- lenskra samtímalistamanna; þeirra Birgis Andréssonar og Steingríms Eyfjörð. Lesbókin mælir þessa vikuna með þessum viðburði á sviði myndlistar – ljóst er að allir sem þekkja til þeirra Birgis og Steingríms munu fá tæki- færi til að berja lykilverk augum. Og þeir sem ekki hafa kynnst þeim ættu að geta aflað sér yfirsýnar yfir hugmyndafræðilegar hræringar síðustu ára í gegnum framlag áhugavert fram- lag þeirra beggja. Tónlist Motion-tríóið frá Kraká er hingað komið áListahátíð í Reykjavík og heldur tvenna tónleika í Nasa við Austurvöll, í kvöld og ann- að kvöld. Samkvæmt skemmtilegu viðtali Árna Matthíassonar við forsprakka tríósins í vikunni ætti hér að vera um líflega og fjöl- breytta tónleika að ræða. Næstu þrír sunnudagsmorgnar á Listahátíð verða síðan helgaðir Schumann, en þá munu fimm píanóleikarar flytja verk hans í tónlistar- húsinu Ými, auk þess sem Halldór Hauksson fjallar um samband Roberts við konu sína, Clöru, með brotum úr dagbókarfærslum og bréfum. Tónleikarnir hefjast kl. 11 og draga eflaust upp áhugaverða mynd af tónskáldinu. Dagbókarbrot Sylvia Plath: Letters Home 1950–1963. Úr bréfi til móður hennar, 10. maí 1956. Hugsaðu þér að vera í þessu andrúmslofti[Smiths-háskólans] 2.000 ungra, aðlað- andi stúlkna, án þess að taka þátt í samkvæm- islífinu! Ég myndi reyndar ekki vilja taka þátt í samkvæmislífinu eins og ég hef kynnst því. Ég þrái bara heimilið mitt og manninn minn eina. Mér finnst samt vera mikill heiður að boði þeirra [að kenna við skólann] og ef okkur Ted vantar pening þá gæti hann kannski feng- ið vinnu við Amherst-skólann í ár og við gæt- um skrifað og kennt og eignast heimili, ein- hvern tímann. Það er þess vert að leiða hugann að því. Lesbók mælir með… Í GALLERÍI + á Akureyri má nú sjá samsýningu þeirra Sólveigar Aðalsteinsdóttur og Þóru Sigurð- ardóttur. Verkin eru að hluta til unnin á staðnum og fela í sér könn- un á rými í ýmsum skilningi. Þegar inn er komið, í miðrými gallerísins – sem er í hráum kjallara – blasa vinstra megin við smáar teikningar eftir Sólveigu á mislitum hvítum eða fölgulum pappír. Þær sýna t.d. rafmagnsinnstungu og lagnir í lofti í næsta herbergi. Í horninu skáhallt á móti eru útlínuteikningar Sólveigar af fjöllunum við Eyjafjörðinn. Þær eru varfærnislegar unnar, kannski um of, og draga fram einstaka þætti án þess að trufla andrúmsloft stað- arins. Þar er um nokkurs konar vísi að myndum eða hugsun að ræða sem eru við það að leysast upp, líkt og tímabundin nærvera listamanns- ins. Á öðrum vegg, í sama herbergi, sýnir Þóra teikningar sem eru unn- ar á þann hátt að rúðustikaður pappír hefur verið lagður ofan á steypt gólfið og blýanturinn numið allar sprungur og misfellur þess. Úr verða verk sem hafa jarðfræðilegar tilvísanir líkt og loftmyndir af landslagi. Myndir Sólveigar og Þóru vitna þannig um innra og ytra rými staðarins en mætti einnig heimfæra á huglægt rými. Í suðurrými gallerísins sýnir Sól- veig 4 ljósmyndir úr verkinu „Hús“ sem sýna innviði húsa: veggi, loft, gólf eða glugga. A.m.k. tvær mynd- anna eru á hvolfi og minna þannig á afstæði sjónarhornsins. Glugga- myndirnar tengjast glugga hins nið- urgrafna gallerísherbergis og þar sjást því moldarlög, gluggar á ljós- myndunum vísa hins vegar út í opið rými. Innrömmuð moldarlögin ýta undir lífræna þætti á ljósmynd- unum þar sem við sjáum húsnæði í hrörnun; ófrágengna steypufleti, málningu flagna og rykvefi hlaðast upp. Sólveig hefur næma sýn á smáatriði og nær að draga fram sérstæða fegurð umhverfisins auk þess að miðla sterkri tilfinningu fyr- ir framrás tímans. Í norðurrýminu sýnir Þóra 6 ljós- myndir og texta sem skrifaður hef- ur verið með blýanti beint á vegg- inn. Sumar ljósmyndanna sýna torkennileg, snærisreyrð form. Aðr- ar fela í sér óhlutbundinn leik línu, lits og ljóss sem kallast á við mynst- ur í gólfi herbergisins, og gólfteikn- ingarnar í miðrýminu. Þessar myndir gætu verið af hári sem flýt- ur á vatni og skírskota þannig til forgengileikans og tímans. Textinn hefur verið skrifaður ákaflega vand- lega á vegginn inn í stikaðar línur líkt og grunnskólanemendur eru látnir gera í skrift. Þar er um að ræða byggingarfræðilegar lýsingar á húsi sem þakið hefur verið skelja- sandi og minnir á að efnivið húsa má rekja til náttúrunnar og hins líf- ræna. Þá tilfinningu áréttar Þóra í lokaorðum textans og sprengir þar óvænt af sér öll rúmfræðileg höft. Segja mætti að Sólveig og Þóra fjalli þannig hvor með sínum hætti um samspil og átök geómetrískra og lífrænna forma, mannvirkja og náttúru. Sýningin felur í sér höft, umgjarðir og lokuð rými annars vegar en hljóðlát nálgun listamann- anna minnir um margt á innhverfa og staðbundna íhugun. Hins vegar má þar greina leit út á við; hugleið- ingar í stærra samhengi um til- veruna. Könnun á/í rými MYNDLIST Gallerí + Sólveig Aðalsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Til 14. maí 2006. Samsýning Mannvirki og náttúra „Segja mætti að Sólveig og Þóra fjalli þannig hvor með sínum hætti um samspil og átök geómetrískra og lífrænna forma, mannvirkja og náttúru.“ Anna Jóa Lesarinn Kazuo Ishiguro: Slepptu mér aldrei (Never let me go), Bjartur 2005. Þessi nýjasta saga Ishiguros situr í mér,sérkennileg og áleitin. Eins og við var að búast er hún geysilega vel byggð, upplýs- ingum er laumað til lesanda smám saman og þar með seytlar inn í huga manns sannleikurinn um hinn raun- verulega upp- runa persón- anna. Þótt sagan sé á vissan hátt framtíðarhroll- vekja um ungt fólk sem á sér enga framtíð og þannig óend- anlega sorgleg, þá býr hún yfir þeim sérstæðu töfrum sem ein- kenna bækur Ishiguros. Hann skrifar ein- staklega áreynslulausan stíl, sem er samt merkingarþrunginn, í senn einfaldur og djúpur. Sagan geymir vissulega brýn sið- ferðileg álitamál um einræktun og vísindi, en hún felur líka í sér miklu almennari skír- skotun um líf okkar allra í skugga dauðans, um gildi tilfinninga og mikilvægi vinátt- unnar. Elísa Björg Þorsteinsdóttir hefur þýtt söguna af mikilli prýði og ég tek ofan fyrir útgefandanum að færa okkur þessa umtöl- uðu og spánnýju bók á íslensku svo fljótt. Páll Valsson Páll Valsson Mission Impossible 3 Tom Cruise er kominn aftur í hlutverki sérsveitarmannsins Ethan Hunt sem þarf að glíma við erfiðasta andstæðing sinn hingað til, vopnasalann Owen Davian (Philip Seymour Hoff- man) sem virðist vera algjörlega samviskulaus.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.