Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.2006, Blaðsíða 1
Laugardagur 22.7. | 2006 | 28. tölublað | 81. árgangur
[ ]Kalda stríðið | Öllu var snúið á haus og rökum hafnað með slagorðum og orðaleppum | 3Rúnir | Ann ek svá konu manns, at mér þykkir kaldr eldr | 6Sterkar stelpur | Ég hef stappað niður fótunum og öskrað mikið um mína daga | 10
Lesbók Morgunblaðsins
Handan tjaldsins
Íslenski leikhópurinn Vesturport hefur heillað hugi
og hjörtu lærðra sem leikra leikhúsunnenda Lund-
úna. Loftfimleikablendin uppsetning hópsins á leik-
riti Buchners, Woyzeck, er lofsungin af stórsveit
breskra gagnrýnenda, án þess að nokkurs staðar
beri á kórvillu, og er Vesturporti hvarvetna hrósað
sem einu frumlegasta og áhugaverðasta leikhúsafli
Evrópu í dag. Magnús Björn Ólafsson hitti þá Gísla
Örn Garðarsson, leikstjóra Woyzeck, og Ingvar E.
Sigurðsson, aðalleikara, í Lundúnum og forvitn-
aðist um líf íslensks flökkuleikhóps./4