Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2006, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2006 15 Sýning Tuma Magnússonar og pólsku listakonunnar Aleksöndru Signer í Listasafni ASÍ sam- anstendur af myndböndum, skjá- verkum og innsetningum. Fyrir utan verk úr safneign sem sýnd eru í Arinstofu má sjá tvö verk eftir Signer á neðri hæð safnsins. Annað þeirra, Record, sýnir aftan á unga stúlku sem tekur upp af jörð- inni gamlar vínylhljómplötur og kastar þeim eins og frisbídiskum í kuldalegu húsasundi. Meðan plöt- urnar fljúga í loftinu heyrist hljóð eins og þegar hljóðupptaka er spiluð á yfirhraða. Verkið virðist bæði áleitið og agressíft uppgjör við bæði skráningu og form fortíðarinnar. Í Gryfju er innsetning þar sem mörg vasaljós hanga úr lofti og áhorfand- inn getur varpað áteiknaðri mynd á veggina eða látið myndirnar dansa á gólfinu. Leikurinn er einfaldur en hugmyndafræðilega rýr þótt sjón- arspilið ásamt líkamsupplifuninni inni í verkinu geti verið skemmtileg. Uppi í Ásmundarsal eru þrjú verk eftir Signer og óhætt að segja þau áhugaverðustu á sýningunni. Mynd- bandsupptaka af deyjandi leik- fangahundi er svo ótrúlega áhrifarík að ekki er annað hægt en að spyrja sjálfan sig spurninga um hvernig til- finningaupplifun og samsömun okk- ar við hreinan tilbúning á sér stað. Hvernig er hægt að horfa á og finna til (gegn vilja sínum) með batter- íshundi mistakast afturábakstökk sem liggur titrandi, geltandi, með spastíska taugakippi þar til batteríið skýst úr brjósti hans og allt er búið? Annað verk sýnir náttborð með tveimur stafrænum myndarömmum sem spila óvæntar en hliðstæðar myndaseríur. Þriðja verk hennar í þessum sal samanstendur af tveimur litlum sjónvarpsskjám, sem er stillt upp eins og myndavélum á þrífótum, þétt á móti hvor öðrum. Tvær sjón- varpsstöðvar frá sitthvoru landinu tala viðstöðulaust og þarf einbeit- ingu til að heyra eða sjá það sem hvor um sig er að segja. Verkið er einfalt og beinskeytt þar sem fag- urfræðileg framsetning þess heldur merkingunni uppi. Hvers konar vægi hafa tilreiddar skoðanir þess- ara fréttamiðla sem hvort heldur blaðra sínum sértæka sannleika upp í hvor annan eða éta hlutina upp hvor eftir öðrum án afláts? Tumi Magnússon á tvö verk á sýn- ingunni sem bæði eru í mörgum hlutum og dreifast milli verka Sig- ner. Stærra verkið er myndbands- verk sem ber titilinn Sjónarrand- arráp. Fjórum myndböndum sem sýna íslenskt landslag tekið upp á óreglulegri hreyfingu er varpað á fjóra veggi í Ásmundarsal í horn- réttri afstöðu hvert til annars. Eng- ar upplýsingar eru gefnar um verkið á sýningunni en í viðtali við Morg- unblaðið kemur fram að þetta eru myndbandsupptökur sem eru tekn- ar upp samtímis úr fjórum áttum í gegn um bílglugga. Í bíl sér maður landslagið fyrir framan og þegar maður lítur til hliðar nær maður að tengja þá sjónupplifun við hina fyrri þrátt fyrir að þar virðist jafnvel um allt annað landslag að ræða. Hug- myndin er áhugaverð en upplifunin ekki að sama skapi því of langt er á milli verka til að hægt sé að skynja það sem fjórar útgáfur af samstæðri upplifun. Á meðan hægt er að ein- beita sér, skoða og upplifa verk Sig- ner án neikvæðrar truflunar frá verkum Tuma þá líður sjónar- randaverk Tuma fyrir að dreifast á milli verka Signer og virkar fyrir bragðið nánast sem myndfylling- arefni í sýningunni. Annað verkið sem Tumi sýnir eru ljósmyndir í raunstærð af rafmagnsrofum, inn- stungum eða lofttúðum sem líka er dreift um sýningarrýmið. Öfugt við myndbandsverkið þá er auðvelt að sjást yfir þetta þar sem það virkar bókstaflega sem hluti rýmisins ef at- hyglisgáfan er ekki virk. Við nánari skoðun er ekki frá því að hér sé um að ræða útlenda takka, t.d. banda- rísk innstunga eða austur-evrópskur rofi. Menningarmismunur birtist oft í smávægilegustu hlutum og áhorf- andann gæti grunað að markmið og merking verksins væri sértækt, flókið eða skilyrt heildarsamhenginu á sýningunni. Augljóst er að verk Signer eru pólitísk í víðum skilningi þess orðs þar sem spurningar um menningar- og tilfinningalega stýr- ingu, vald miðla og framsetningu á „sannleika“ eru í forgrunni. Í því samhengi liggur beinast við að skoða náttúrumyndir Tuma með augum ferðamannsins sem sér landslagið á hreyfingu og rafmagnsvísanir út- lendu takkanna sem pólitíska ádeilu á virkjunargleði Íslendinga. Ef svo er, sem þarf ekki að vera, þá hittir verkið ekki í mark. Verk Tuma voru miklu áhugaverðari í hugmynda- fræðilegri útlistun á þeim sem fram kom í áðurnefndu viðtali í Morg- unblaðinu en í reynd á sýningunni sjálfri. Sýningin í heild er þó áhuga- verð og fersk á íslenskum myndlist- arvettvangi þar sem uppfylling- aratriði hennar hafa ákveðið vægi til að styðja og þétta upplifunina svo ekki sé talað um, við að leggja til hina nauðsynlegu óskiljanlegu þætti sem teljast aðall samtímalistarinnar. Stafrænt og rafvænt Þóra Þórisdóttir MYNDLIST Listasafn ASÍ Freyjugötu 41 Verk úr safneign Sýningarnar standa til 10. september Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13–17 Aleksandra Signer og Tumi Magnússon Aleksandra Signer „Verkið er einfalt og beinskeytt þar sem fagurfræðileg framsetning þess heldur merkingunni uppi.“ Eftir Bergþóru Jónsdóttur | begga@mbl.is GRÚSKARINN Að uglasata, var gott og gilt sagnorð hjá krökkunum í borginni á sjöundaáratug síðustu aldar, og haft um þann verknað að velja hver ætti að ver- ’ann. En hvað skyldi hann hafa verið kallaður gjörningurinn sem fylgdi þess- ari þulu, sem höfð var um sama verknað í Súðavík á árunum kringum fyrri heimsstyrjöld? Lesist hratt og ákveðið, en um leið skýrt og skilmerkilega: Akka, bakka, búkka, rakka, sonn, fonn, fíli, fonn, ísa, bísa, TOPP! LESARINN Tímaritið Economistliggur alltaf á nátt- borðinu. Það veitir góðar upplýsingar um það sem er að gerast á líðandi stund. Reyfarinn sem ég er að lesa núna er Krosstré eftir Jón Hall Stefánsson. Ljómandi skrifuð og skemmtileg. Þá gríp ég af og til í Sögu bisk- upsstólanna, sem er mikill hvalreki fyrir áhugamenn um Íslandssögu. Áhuga- verðasta lesningin að und- anförnu hefur þó verið handrit að ævisögu Ólafíu Jóhannsdóttur, sem ég er svo heppinn að fá að lesa á undan öðrum, því að höf- undurinn er Sigríður Dúna, eiginkona mín, en sú bók kemur út í haust og á án efa eftir að vekja athygli. Sig- ríður Dúna er reyndar lestrarhesturinn á heim- ilinu og það er hægt að fletta upp í henni þegar kemur að bókmenntum. Friðrik Sophusson Morgunblaðið/Ásdís Friðrik Sophusson „Sigríður Dúna er reyndar lestrarhest- urinn á heimilinu.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.