Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Blaðsíða 1
Laugardagur 2. 9. 2006 81. árg. lesbók HVER DRAP DAGBLÖÐIN? „FÓLK VILL FREKAR LESA SÉR TIL UM HVERNIG HÆGT SÉ AÐ VERÐA RÍKARI OG HVAÐ ÞAÐ EIGI AÐ GERA Í KVÖLD.“ Áttu íbúð sem þú notar lítið sem ekki neitt og er hentug til að hugsa í? » 11 B úlgarski píanóleik- arinn Vesselin Stan- ev heldur opn- unartónleika TÍBRÁR í Salnum í Kópavogi fimmtu- dagskvöldið 7. september nk. Á efn- isskránni eru verk eftir Domenico Scarlatti, Robert Schumann, Alex- ander Skrjabín og Franz Liszt. Koma Stanevs til Íslands ætti að gleðja alla unnendur píanóleiks, því að hann er framúrskarandi virtúó- sapíanisti af rússneska skólanum og hefur undanfarin ár hlotið sífellt meiri athygli fyrir leik sinn og túlk- un. Stanev fæddist í Varna í Búlg- aríu árið 1964 og hóf píanónám þar 10 ára gamall. Hann nam við Tónlist- arakademíuna í Sofiu um tveggja ára skeið en hélt þá til Moskvu, þar sem hann lærði við Tsjajkovskíj- tónlistarháskólann hjá hinum fræga píanóvirtúós Dmitri Bashkirov. Hann lauk námi við skólann 1988 en sótti einkatíma í tvö ár til viðbótar hjá Alexis Weissenberg í París. Með- an á náminu stóð tók Stanev þátt í Tsjajkovskíj-píanókeppninni og vann til sérstakra verðlauna fyrir flutning á verkum tónskáldsins. Þá vann hann til verðlauna í Marguerite Long-keppninni 1986. Árið 1991 vakti Stanev fyrst at- hygli heimspressunnar með flutningi sínum á tónlistarhátíð í Vínarborg og hefur síðan leikið í mörgum helstu tónleikasölum Evrópu, m.a. Wig- more Hall í Lundúnum, óperuhúsinu í Frankfurt, Gewandhaus í Leipzig og Salle Gaveau í París. Frá árinu 2000 hefur hann haldið tónleika í Rakmaninoff-salnum í Moskvu á hverju ári við stormandi undirtektir viðstaddra. Stanev hefur hljóðritað sex hljómdiska fyrir búlgarska út- gáfufyrirtækið Gega, með tónlist eft- ir Brahms, Chopin og Schumann. Hann skrifaði nýverið undir útgáfu- samning við Sony Classical og er diskur með píanóverkum Skrjabíns væntanlegur á markað á næstunni. Gagnrýnendur hafa sagt leik Stanevs standast samanburð við Vladimir Sofronitskí og Svjatoslav Richter og er þá mikið sagt enda eru þeir síðarnefndu einhverjir mestu risar rússnesku píanóhefðarinnar fyrr og síðar. Harold Schoenberg, gagnrýnandi New York Times, sagði Stanev vera „virtúós í anda Horo- witz. Leikur hans er kraftmikill og tæknin takmarkalaus“. Schoenberg sagði einnig að flutningi Stanevs á Gaspard de la nuit eftir Maurice Ravel mætti „jafna við mestu meist- ara hljómborðsins, m.a. Mörtu Ar- gerich“. Gagnrýnandi Musical Op- inion sagði um Wigmore Hall-tónleika Stanevs að „fram- úrskarandi túlkun“ hans hefði verið útfærð af „sterkum persónuleika, næmi fyrir smáatriðum og tilfinn- ingu fyrir innra samhengi verkanna“ sem heyrist sjaldan á tónleikapöllum Lundúna. Hljómdiskar Stanevs sanna að hér fer kraftmikill virtúós sem leikur með orku og skapofsa þegar þess þarf með. Skalar og brotnir hljómar í prelúdíum Chopins glitra eins og perlur á bandi, og í hinum þrælerfiðu Paganini-tilbrigðum Brahms fer hann hreinlega í loftköstum eftir hljómborðinu endilöngu. Þetta er áhættupíanismi eins og hann gerist bestur, enda engin furða að gagn- rýnandi ítalska dagblaðsins Corriere della Sera hafi kallað Stanev „loft- fimleikamann án nets“ eftir flutning hans á Ungverskum rapsódíum nr. 11 og 12 eftir Liszt, sem verða ein- mitt á efnisskránni í Salnum nk. fimmtudagskvöld. En spilamennska Stanevs er ekki eingöngu tæknisýn- ing heldur býr hann yfir hlýjum tóni og er gæddur skáldlegri æð, eins og má t.d. heyra í flutningi hans á ljúf- sárum fantasíum Johannesar Brahms. Gagnrýnendur virðast þó sam- mála um að leikur Stanevs sé laus við alla sýndarmennsku. Í viðtölum kemur hann fyrir sem hógvær lista- maður sem starfar að hugðarefnum sínum í kyrrð og ró. Stanev er lestr- arhestur og hefur gaman af útivist og fjallgöngum, en annars kveðst hann hvergi njóta sín betur en fyrir framan flygilinn. „Ég er mikill róm- antíker í mér,“ sagði Stanev í viðtali við rússneskt dagblað í fyrravetur. „Mér finnst við lifa of hratt í nútím- anum. Við flýjum tilfinningar okkar og erum yfirbuguð af streitu. Lík- lega hefði það farið mér betur að vera uppi á 19. öldinni!“ Búlgarskt píanóljón Eftir Árna Heimi Ingólfsson arniheimir@lhi.is Höfundur er kennari í tónlistar- fræðum við Listaháskóla Íslands.Stanev Er hann betri en Richter? Morgunblaðið/Eyþór Ragnheiður Gröndal Stóra breikið kom með Ást. » 4 B andaríski leikstjórinn Oliver Stone hefur sakað kvikmynda- iðnaðinn í Hollywood um að gefa hug- myndum um stríðs- brölt Bandaríkjanna jákvæðan byr undir báða vængi. Stone er staddur í Feneyjum um þessar mundir vegna sýninga á nýjustu mynd hans, World Trade Center, á árlegri kvik- myndahátíð þar í borg. Í ræðu sem hann hélt af því tilefni tók Stone myndirnar Pearl Harbor og Black Hawk Down sérstaklega fyrir sem dæmi um myndir sem „dýrkuðu stríðsrekstur“ og bætti því við að of- beldi væri „menningarlegt vanda- mál“ í heimalandi sínu. Stone sagði að seint á tíunda ára- tugnum hefðu stríðsmyndir tekið við að lofsyngja stríð á nýjan leik, ólíkt t.d. Víetnam-myndum hans sjálfs, Platoon og Born on the Fourth of July. Hann sagði þó jafnframt að World Trade Center bæri með sér anda vonar ólíkt dökkum myndum hans um Víetnam. „Afleiðingar 11. september eru mun verri en dagurinn sjálfur,“ bætti Stone við gagnrýninn. „Ein- hver spurði mig hvort það væri of snemmt að sýna þessa mynd. Ég held að að mörgu leyti sé það of seint. Við þurfum að vakna.“ Stone gagnrýnir Hollywood Beittur Oliver Stone fer hörðum orðum um Hollywood-stríðsmyndir. Segir myndir úr draumasmiðjunni geta af sér ranghug- myndir um stríð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.