Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók ! Morguninn eftir að ég gisti í fyrsta sinn í nýrri íbúð í miðbæ Reykjavíkur lýstu fyrirsagnir dagblaða því yfir að tugþús- undir hefðu misst heimili sín í Líbanon. Hálfum öðrum mánuði fyrr hafði ég kvatt vini eftir vet- ursetu í Amsterdam. Þeirra á meðal var líbanskur bekkjarfélagi minn. Ég var að flytja í nýja íbúð og ljúka við lokaritgerðina mína, hann var að gera sér stutta ferð heim til Beirút en stefndi svo á að snúa aftur til Amsterdam til að hefja doktorsnám í kvikmyndafræði. Þegar ég frétti fyrst af sprengjuárás- unum á Beirút gripu þær mig á annan hátt en þær stríðsfréttir sem ég hef áður lesið. Ég þykist vera upplýstur ofbeldis- andstæðingur, gekk í Amnesty Int- ernational og mæti á hernaðarmótmæli, hef reynt að fylgjast með gangi heims- mála og bölvað og grátið yfir ástandi heimsins. En aldrei fyrr hafði ég upplifað að eiga vin sem býr í sjálfri hringiðunni. Hugur minn leitaði strax til hans og með hverri frétt sem birtist, eftir því sem eyðileggingin jókst og heilu hverfin og þorpin voru jöfnuð við jörðu, varð mér æ oftar hugsað til vinar míns; hvernig heimsmyndin hlyti að hafa breyst og hvernig það væri að fylgjast með landinu sínu hverfa. Síðan frétti ég af því að hann hafði sett í gang bloggsíðu þar sem hann skrifaði reglulega um upplifanir sínar og fram- gang stríðsins. Ég settist niður og las hverja færsluna á fætur annarri og fékk svör við ýmsum vangaveltum. Hann býr á frekar öruggum stað og fjölskylda hans var heil á húfi. Frá fyrstu hendi lýsir hann því hvernig er að búa við stríðsátök: „Það er ekki stöðugt óttaástand heldur undirliggjandi stress, spenna sem nær ekki að umbreytast í ótta. Maður reynir að lifa sínu daglega lífi, jafnvel þótt lífinu hafi verið seinkað um óráðinn tíma – eins og við segjum, allir dagar eru eins og sunnudagar.“ Eftir því sem lengra er lesið verður vonleysið og kaldhæðnin sterkari. Hann skrifar um uppbyggingu síðustu ára sem hefur verið sprengd í burtu. Þegar búið er að ferja alla erlenda ríkisborgara burt er enginn eftir sem ekki má drepa – að- eins arabar. Hann hefur enga trú á Sam- einuðu þjóðunum. Hann hefur enga trú á mannréttindum. Arabar eru ekki mann- eskjur í augum heimsins. Hann skrifar um hliðar sem heyrast ekki í fréttum Vesturlanda og veltir upp efasemd- arhugmyndum um notkun hugtaka á borð við hryðjuverk, lýðræði og mann- réttindi. Ég hef aldrei fyrr dvalið erlendis nógu lengi til að kynnast fólki líkt og í vetur og ég er þakklátur að hafa getað teygt vit- und mína til fleiri landa. Vissulega er fá- ránlegt að til þess þurfi að koma – ég þarf ekki að þekkja neinn persónulega til að finna til með þeim eða hafa skoðun á mál- efnum annarra heimshorna. Á tímum heimsþorpsins og veraldarvefjarins get- ur sjónrænt áreiti hins vegar valdið því að við sljóvgumst frammi fyrir frétta- myndum af stríði og ofbeldi. Þá getur hjálpað að upplifa persónulega tengingu við atburðinn. Ég mun alltaf reyna að hugsa aftur til þess þegar ég las fyrstu fréttirnar af eyðileggingunni í Beirút og muna eftir þeirri tilfinningu að þekkja einhvern sem býr þar í blokk, óviss um afdrif hans og fjölda annarra. Ég vil ekki gleyma því. Ég vil læra af þessari reynslu og halda tilfinningasambandi við um- heiminn eftir bestu getu. Á meðan ég sit í nýju íbúðinni og rita þennan pistil er hann enn að skrifa um ástandið í heimalandinu og hefur birt fjölda ljósmynda auk greina úr öðrum fjölmiðlum á síðunni sinni. Ég fylgist áfram með úr fjarska og reyni að halda umræðunni um Líbanon lifandi með því að birta vefslóð félaga míns hér: the- worldismyidea.blogspot.com. Höfundur er kvikmyndafræðingur. Bloggað í Líbanon Eftir Gunnar Theodór Eggertsson gunnaregg@gmail.com Eins og allir þeir sem fletta blöðum ogtímaritum vita verða frásagnir afsorgum og sigrum frægs fólks þarsífellt fyrirferðarmeiri. Í þeim efn- um þurfa atvik ekki að teljast stórtíðindi til að rata í heimsfréttirnar og þar af leiðandi virðist hægt að skrifa endalaust um þennan mála- flokk. Í Bandaríkjunum eru nú gefin út að minnsta kosti tólf tímarit á landsvísu sem fjalla um frægt fólk. Mörg þessara blaða hafa verið sett á fót nýlega í ljósi þess að sala á svoköll- uðum „celebrity magazines“ hefur aukist mik- ið á undanförnum misserum á meðan sala á öðrum tegundum tímarita hefur almennt dal- að. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs minnkaði lausasala á tímaritum í Bandaríkjunum um 4% á heildina litið miðað við sama tímabil í fyrra, en sala á tímaritum sem fjalla um frægt fólk jókst hins vegar talsvert. Til dæmis jókst sala á US magazine, einu vinsælasta blaði þessarar tegundar, um 7,2% á tímabilinu og hafði áður aukist um 12,7% á seinni hluta síðasta árs. Þegar litið er til þess að bæði framboð af og eftirspurn eftir fréttum af frægu fólki hefur aukist og fer enn vaxandi er ekki svo auðvelt að segja til um hvort kemur á undan, eggið eða hænan, en líklega er um að ræða einhvers kon- ar samspil beggja. Síðan má velta fyrir sér hinni hliðinni á peningnum, það er að segja stöðu þeirra sem prýða síður blaða af þessu tagi. Í tilveru þeirra felst nefnilega ákveðin mótsögn því fæstir viðurkenna að hafa sóst sérstaklega eftir frægðinni og halda því gjarn- an fram að hún sé fylgifiskur starfsins sem þeir verði hreinlega að þola. Einstaka flippað frægðarmenni viðurkennir þó að því finnist frægðin ekki svo slæm, eiginlega bara frábær, og að þeir sem haldi öðru fram séu hræsnarar. Fólkið sem er síðan frægt fyrir að vera frægt viðurkennir fúslega að frægðin sé stórkostleg og staðfestir það viðhorf sitt gjarnan með æv- intýralegum metnaði þegar kemur að því að viðhalda henni. Sálfræðingurinn Orville Gilbert Brim gaf nýverið út bókina The Fame Motive þar sem hann tekur saman og skoðar rannsóknir fé- lags- og mannfræðinga sem snúa að löngun og eftirsókn fólks eftir frægð. Í umfjöllun dag- blaðsins New York Times um bók Brim er bent á að frægð hafi hingað til verið vanrækt á sviði sálfræðinnar líklega vegna þess að hún hafi þótt of grunnt fyrirbæri og of menning- arbundin. Þó liggi fyrir rannsóknir sem sýna að ákveðinn hópur fólks þráir frægð umfram allt annað – þar með talið ríkidæmi og völd – og að sú þrá tengist þörf fyrir samþykki um- heimsins og von um framlengingu á tilveru sinni eftir dauðann. Í bók sinni bendir Brim á að ásókn fólks í frægð sé ekki bundin við menningu Vest- urlanda og vitnar í mannfræðinga sem hafa rannsakað þessi efni bæði í Asíu og Afríku. Samkvæmt könnun sem vísað er í dreymir 30% fullorðinna í Kína og í Þýskalandi um að öðlast frægð og rúmlega 40% þessa fólks trúir því að það eigi eftir að upplifa þessar 15 mín- útur af frægð sem Andy Warhol gaf fyrirheit um að allir myndu einhvern tímann öðlast. Rannsóknir meðal fullorðinna Bandaríkja- manna leiða í ljós svipaðar niðurstöður en meðal bandarískra unglinga er hlutfallið síðan talsvert hærra. Þrátt fyrir þetta segjast ein- ungis 1–2% fólks þrá frægðina framar öllu öðru því sem lífið hefur upp á að bjóða. Brim dregur þá ályktun að margir telji frægð vera leið til að gæða líf sitt merkingu og að verða sér úti um framlengingu á tilveru sinni eftir dauðann. Þannig sé þrá og eftirsókn eftir frægð eðlilegt viðbragð í heimi þar sem trúin á Guð er löngu hætt að vera sjálfsögð. Hann bendir jafnframt á að líkurnar á því að öðlast raunverulega frægð séu almennt frekar litlar og því þjáist sá hópur fólks sem leitast eftir frægðinni umfram allt annað, yfirleitt af töluvert mikilli streitu. Í því samhengi vísar hann í kannanir sem sýna að þeir sem leitast sífellt eftir samþykki annarra, og þá frekar ókunnugra heldur en fjölskyldu sinnar og vina, þjáist mun frekar af streitu en þeir sem hafa mestan áhuga á að vera sáttir við sjálfa sig og sína nánustu. Þeir sem búi yfir mikilli frægð- arþörf losni hins vegar ekki svo glatt við þá til- hneigingu og þannig sé hún nánast eins og inn- byggð í sumt fólk rétt eins og hvert annað karaktereinkenni. Og þetta karaktereinkenni hefur líklega sjaldan fallið í eins frjóan jarðveg og einmitt nú. Þeir sem búa yfir því og ná takmarki sínu hafa að minnsta kosti aldrei fengið eins mikla og yfirgengilega athygli. Og hvort sem verður munað eftir öllum þessum ástarþríhyrningum, átröskunum, apabitum, börnum sem heita furðulegum nöfnum, brjóstastækkunum, nef- aðgerðum, fitusogi, varastækkunum, umferð- aróhöppum, kynlífsmyndböndum, gjafa- kaupum, megrunarkúrum eftir barnsburð, meðferðum við ofþreytu og verkjalyfjafíkn, tískusigrum og tískuslysum, að blessuðu fólk- inu gengnu, þá skemmti það allavega heims- byggðinni í 15 mínútur, minnst. Holdgerving frægðarinnar „Samkvæmt könnun sem vísað er í dreymir 30% fullorðinna í Kína og í Þýskalandi um að öðlast frægð og rúmlega 40% þessa fólks trúa því að það eigi eftir að upplifa þessar 15 mínútur af frægð sem Andy Warhol gaf fyrirheit um að allir myndu ein- hverntímann öðlast.“ Myndin er af frægu verki Andys Warhol af Marilyn Monroe. Frægðin umfram allt FJÖLMIÐLAR Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur bab@mbl.is ’Brim dregur þá ályktun aðmargir telji frægð vera leið til að gæða líf sitt merkingu og að verða sér úti um framlengingu á tilveru sinni eftir dauðann.‘ I Fljótt, öruggt og þægilegt!Gætu þessi orð ekki verið í nánast hvaða auglýsingu dagsins í dag? Er einhvers staðar auglýst að eitthvað taki langan tíma, að þú getir ekki verið viss um árangurinn, og að ef til vill munirðu hafa mikinn ama af? Einhvers staðar í glórulausri veröldinni hef- ur sú hugmynd orðið til, að best sé að gera allt á sem skemmstan hátt. Þú þarft ekki að eyða mörgum tímum í að elda mat, því nú fæst matur sem hægt er að reiða fram á jafnvel fjórum mín- útum eftir að hann er kominn í hús. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur þótt uppvaskið úldni í vaskinum, því þú notar einfaldlega upp- þvottalög með bakteríubana. Þú þarft heldur ekki að kvíða því að skipta um dekk, því nú er í boði að rúlla bílnum inn á verkstæði; þar sækir einhver vetrardekkin þín uppí hillu og svissar þeim undir, og setur sumardekkin upp í sömu hillu í staðinn. Áhyggjulaust líf, ekki satt? Það er eitthvað skrýtið á seyði. Hvað liggur svona reiðinnar býsn á? Og hvers vegna vilj- um við losna við hvert minnsta ómak, sem gæti – ef betur er að gáð, veitt okkur góða reynslu, og jafnvel gleði, ef við nenntum að gefa okkur að því? „Nútíminn, nútíminn, þetta er krafa hans,“ heyrir maður sagt, og finnst sjálfsagt að taka þátt í leiknum. II Breytingar á menningu okkar og lífs-háttum eru hraðar. Við getum svo margt með aðstoð tækninnar sem við sjálf fundum upp. Við viljum reyna allt, prófa allt, hafa vit á svo mörgu, fara svo víða, og síðast en ekki síst, hafa það svo gott. Öll okkar hegðunarmynstur virðast taka mið af þessu. Við eigum allt til alls, og viljum innbyrða sem mest af þessa heims gæðum á eins auðveldan máta og hugs- ast getur. Það situr enginn lengur við kúnst- stopp, þegar hægt er að kaupa ullarleista fyrir lítinn pening. Og vel á minnst – maður þarf víst ekki einu sinni lengur að eiga það á hættu að láta pirrast af hosum sem stinga; það er víst hægt að fá sokka sem eru alveg jafn hlýir og jafnvel enn betri úr einhverjum míkrófíber, og fara að auki betur í skónum. III Við komum heim úr vinnunni, kveikjumá sjónvarpinu, til að ná örugglega öllu því helsta sem gerst hefur þann daginn, heima og heiman. Og eins gott að það séu engar lang- lokur, enginn tími til að dvelja við óþarfa. Maður þarf að vera viðræðuhæfur um sem flest. Grín eða spenna er svo eins og deyfilyf til að maður geti látið sjatna í sér af upplýs- ingaátinu. IV Menningin hefur breyst, við erumbreytt og við breytum. Úti í heimi er spurt að því hver hafi drepið dagblöðin. Er ekki eðlilegt að spurt sé á tímum þegar fólk þykist ekki hafa tíma til neins? Lesbókin læt- ur að minnsta kosti spurninguna ekki þjóta hjá, án þess að bregðast við. Fimm sérfræð- ingar í fjölmiðlaheiminum velta henni fyrir sér hér í dag, eins og hún birtist lesendum The Economist á dögunum. V Það mætti allt eins spyrja hvaða hver hafidrepið tímann, eða öllu heldur ást mann- eskjunnar á honum. Það virkar nefnilega mót- sagnakennt allt þetta tal um tímasparnað og að því meiri tími sem sparast af einu verki gefi meiri tíma í annað. Það er nefnilega líka ákveðin nautn og talsverð lífsgæði að hafa nægan tíma til hvers þess verks sem maður tekur sér fyrir hendur. VI Það er auðvelt að kenna tækninni umallt sem miður fer, og allar verstu afleið- ingar breyttra lífshátta. Vissulega er margt til þæginda í nútímanum, og framfarir bæta lífs- kjör. En lífsgæði verða seint metin í lífskjör- unum einum saman. „Tíminn er dýrmætur“ og „tíminn kostar peninga“ eru klisjur sem við heyrum oft. En sennilega farnaðist okkur bet- ur við margt í lífinu ef við litum svo á að tími væri til að verja og njóta, en ekki til að eyða og drepa. Neðanmáls Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýs- ingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.