Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 5 dálítið hissa og spurðu hvort ég væri at- vinnumaður. Ég þurfti að útskýra fyrir þeim að það væri mér mikils virði að prófa eitthvað nýtt og reyna mig í námi. Maður getur alltaf lært eitthvað nýtt. Það var líka atriði að komast út og upplifa eitthvað ann- að. Ég veit þannig séð ekki alveg hvað ég er að fara út í … en kannski er ég bara að rugla af því að þetta er allt að bresta á núna. En hver veit hvaða tækifæri bjóðast þarna úti? Og „af hverju ekki“ að fara út?“ Ragnheiður viðurkennir að hún sé pínu „lítil“ vegna væntanlegs ferðalags. „Ég er yngst, á tvo eldri bræður og vön því að allir passi voðalega mikið upp á mig. En ég veit að þetta verður allt í lagi þegar fram í sækir. Þegar ég frétti að ég hefði komist inn þá varð ekki aftur snúið, svo einfalt er það. Ég verð að viðurkenna að á tímabili var ég að vona að þetta myndi ekki ganga upp (hlær dátt).“ Búlgaría Í haust kemur fjórða sólóplata Ragnheiðar á jafn mörgum árum út. Hún reið á vaðið með samnefndri plötu haustið 2003, árið eftir komu Vetrarljóð út og í fyrra var það After the Rain, sem inniheldur eingöngu frumsamin lög Ragnheiðar. Á plötunni nýju er Ragnheiður hins vegar að rannsaka ís- lenskan þjóðlagaarf, sem hún segir hafa verið gæluverkefni til langs tíma. „Haukur bróðir hefur smitað mig af þjóð- lagaáhuga,“ segir hún en Haukur spilar m.a. í klezmersveitinni Schpilkas og einnig í Narodna Musika þar sem á efnisskránni er búlgörsk, grísk og tyrknesk tónlist. Ragn- heiður tiltekur einnig Eivöru Pálsdóttur í þessu sambandi en þær sungu saman í apríl síðastliðnum, fluttu þá gömul íslensk dæg- urlög ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, og eru nú orðnar ágætar vinkonur. „Ég var mikið búin að vera í djassinum en skyndilega fór ég að heillast af þjóðlaga- tónlist og fór að finnast hún alveg æðisleg. Það er einhver frumorka í henni, svona hreinn andi ef ég má orða það þannig. Við hófumst því handa við að setja saman efnis- skrá úr íslenskum þjóðlögum. Þetta er dá- lítið sérstakt; lögin eru mörg hver myrk og tregafull en um leið alveg ofboðslega fal- leg.“ Hún og Haukur eru að snurfusa plötuna um þessar mundir, en svo mun Haukur fylgja plötunni úr hlaði í fjarveru systur sinnar, sem verður þá komin út. Ragnheið- ur segir að það hafi verið dálítið ævintýri að koma plötunni á rekspöl og hafi þau far- ið hálfgerða fjallabaksleið að henni. „Haukur er á kafi í búlgörsku tónlistinni um þessar mundir,“ útskýrir hún. „Í fyrra- sumar spiluðum við saman í Noregi og vor- um þá að flytja íslenska þjóðlagatónlist. Í flugvélinni á leiðinni heim fengum við þá hugmynd að taka upp plötu með slíkri tón- list, í Búlgaríu! Við sannfærðumst um það að þetta væri algerlega málið. Sumir spurðu okkur hins vegar, réttilega, „bíddu … hver er nú tengingin á milli Búlg- aríu og Íslands?“. Og við komumst reyndar að því að tónlistarleg tenging er engin, utan að þetta eru í báðum tilfellum þjóðlaga- tónlist. Við fórum þangað í síðasta mánuði og planið var að taka upp strengjakvartett, slagverk og búlgarska kvennakóra en ég er mjög heilluð af þessum ágenga hljóm í kvennakórunum þar.“ Ragnheiður verður hikandi þegar hún er spurð hvort ætlunin hafi þá verið að bræða saman þessi tvö tónlistarform. „Ekki beint,“ svarar hún. „En samt … eitthvað. Við vorum að leita að ein- hverjum hljómi. En svo fór þetta ekki betur en svo að tengiliður okkar þarna í Búlgaríu var óhæfur. Þó hann hafi allur verið af vilja gerður til að uppfylla okkar óskir þá virkaði þetta ekki. Við vildum fá toppfólk í þetta, atvinnumenn. Þegar út var komið voru þetta allt saman einhverjir áhugamenn og hann var búinn að blanda konunni sinni inn í þetta og ég veit ekki hvað og hvað. Kórinn var einhver kirkjukór, ekki þessi þjóðlaga- kór sem við vorum að leita eftir. Algjört húmbúkk semsagt! Æ ég veit það ekki … þetta er dálítið fyndið en þetta var líka frekar leiðinlegt. Mikil vonbrigði en svona hlutir leiða mann þá einfaldlega eitt- hvað annað.“ Ragnheiður segir að hún hafi þá munað eftir dönskum kór, söngkvartett sem hafði verið með bróður hennar í námi í Dan- mörku. „Þessi kvartett hefur verið að syngja hina og þessa stíla, m.a. búlgarska tónlist. Við fórum því þangað og útkoman úr því varð eiginlega betri en ef við hefðum notað búlgarskan kór. Búlgarski hljómurinn hefði eftir á að hyggja orðið of harður fyrir plöt- una en danski kórinn léði búlgörskunni skandinavískan blæ og það féll einhvern veginn betur að.“ Ragnheiður spilar sjálf á píanó á plöt- unni, Haukur spilar á klarinett og svo sér Hugi Guðmundsson, ungt tónskáld úr Garðabænum, um raftónlist. Íslenskur strengjakvartett kemur þá einnig við sögu. Inn í sviðsljósið Ég og Ragnheiður furðum okkur bæði á því að hún hefur ekki verið í sviðsljósinu nema í um þrjú ár. „Mér finnst þetta vera orðinn svo langur tími,“ segir hún með undrun í röddinni. Ragnheiður sigraði í söngvakeppni Sam- fés þegar hún var fimmtán ára gömul og sautján ára var hún var farinn að reka eigin djasssveit. Hún vakti þó fyrst almenna at- hygli er hún gekk til liðs við tilraunapopp- sveitina Ske í desember 2002. Ragnheiður átti eftir að starfa með Ske allt fram á árið 2005, en hún tók þátt í gerð annarrar plötu sveitarinnar, Feelings Are Great, sem kom út árinu á undan. Það var Ágústa Eva Erlendsdóttir, betur þekkt sem Silvía Nótt, sem leysti hana svo af hólmi. „Það má segja að það hafi orðið ljóst að tími minn væri búinn í Ske þegar sveitin var á leiðinni á South by South West hátíð- ina í Austin,“ segir Ragnheiður og er sposk á svip. „Ég var þá búin að bóka mig á há- degistónleika í Norræna húsinu á sama tíma og hugnaðist það einhvern veginn bet- ur. Við þetta rann upp ljós, bæði fyrir mér og strákunum. Þannig að það varð úr að ég gengi úr sveitinni og við skildum afar sátt. Þetta var mjög skemmtilegur tími, gaman að ferðast og svona með tilheyrandi djammi og stuði.“ Ragnheiður segist hafa verið fimmtán ára þegar hún ákvað að helga líf sitt tónlistinni. „Ég ákvað einfaldlega að ég myndi lifa á því að vera tónlistarmaður. En stóra „breikið“ ef svo má kalla varð þegar lagið „Ást“ varð vinsælt haustið 2003 [af plötunni Íslensk ástarljóð sem Steinsnar gaf út]. En ég hafði líka sungið í forkeppni Eurovision sama ár [lag hins tónelskandi læknis, Páls Torfa Önundarsonar, „Ferrari“] og ein- hverjir tóku vísast eftir mér þar.“ Ragnheiður hefur þannig sungið alls kyns tónlist, og ástæða þess er einföld. „Þetta er bara það sem ég vil. Ég vil syngja eins mikið og ég get. Ég syng meira að segja klassík þegar þannig liggur á mér, „feika“ mig einhvern veginn í gegnum það. Það er bara svo mikið til af fallegri tónlist og mann langar til að hafa sem mest af henni á valdi sínu.“ Fyrsta plata Ragnheiðar kom út um jólin 2003, plata sem hún gaf út sjálf en innihald- ið eru uppáhalds djassslagarar Ragnheiðar. Um undirleik sáu Jón Páll Bjarnason gít- arleikari, Morten Lundsby kontrabassaleik- ari og Haukur bróðir hennar sá um altó- saxafón og bassetthorn. „Ég vildi endilega gera þetta en hafði kannski ekkert vald á þessu þannig. Ég var að syngja þetta í einhverjum barnslegum fíling.“ Ragnheiður stoppar aðeins og hlær síðan. „Ég get ekki hlustað á þetta í dag … ég bara get það ekki.“ En þetta var eitthvað sem varð að gerast að áliti Ragnheiðar. „Bara það að koma Jóni Páli á band gerði þetta þess virði. Þeg- ar ég var yngri var Emilíana Torrini átrún- aðargoðið mitt og ég ætlaði mér að verða eins og hún. Emilíana var búin að gefa út plötu þegar hún var sextán en ég var nú samt orðin átján (hlær). En ég ætlaði að koma út plötu sama hvað það kostaði.“ Það sem mér sýnist Ragnheiður segist hafa verið orðin nokkuð tætt um þetta leyti. „Hlutirnir gerðust nokkuð hratt. „Ást“ sló í gegn og verðandi brúðkaupshjón lágu á línunni og vildu fá mig til að syngja. Ég var í togstreitu, nýbúin að gefa út djass- plötu sem enginn virtist taka eftir en fólk var með þetta lag „Ást“ á heilanum í stað- inn.“ Það sem bjargaði Ragnheiði á þessum tíma, og gaf henni tímabæra hvíld, var að hún fór í skiptinám til Stokkhólms í janúar 2004 og dvaldi þar í þrjá mánuði. „Maður var pínu blúsaður yfir því að vera að fara fyrst en núna sé ég að þetta hefði ekki getað gerst á betri tíma. Þetta var söngnám og þar fann ég fyrir því að ég hafði verið að syngja án þess að vera að velta tækninni mikið fyrir mér. Ég var hálf- partinn búinn að rústa röddinni og það var kominn hálfgerður bjúgur á raddböndin. Ég var einfaldlega búin að keyra mig út haust- ið á undan, var m.a. að klára stúdentspróf meðfram þessu öllu.“ Um sumarið 2004 tók Ragnheiður svo upp plötuna Vetrarljóð sem Steinar Berg gaf út á merki sínu Steinsnar. „Þetta var hugmynd frá Steinari. En ég þrýsti á um að fá að semja inn á plötuna líka og á þar fjögur lög. Ég er bara svo frek að það hefði ekki gengið ef ég hefði ekki fengið að koma með mitt innslag líka. Það var auðvitað reynt að draga úr manni, og manni sagt að hlusta á þá eldri og reyndari. Og það á maður auðvitað að gera … að einhverju leyti (hlær).“ Tilbúin með eigin tónlist Platan gekk mjög vel í landann, seldist í um fjórtán þúsund eintökum og nafn Ragnheið- ar var nú komið á hvers manns varir. „Platan gekk ofsalega vel og ég hef heyrt frá fólki að það sé með þessa plötu ítrekað undir geislanum. Sem er auðvitað æðislegt.“ Eftir þetta varð Ragnheiður svo stað- ráðin í að gefa út plötu eingöngu með frum- sömdu efni. Hún leit dagsins ljós um síð- ustu jól, og heitir After the Rain. „Ég átti fullt af efni sem ég hef verið að semja síðan ég var fjórtán ára. Á þessum tímapunkti var ég loksins tilbúin til að koma því í form. Það voru 12 Tónar sem gáfu plötuna út eins og þá næstu. Ég er mjög ánægð með samstarfið við þá, maður gert nákvæmlega það sem maður vill.“ After the Rain var unnin hratt og vel, en Ragnheiður var búinn að móta efnið og út- setja áður en í hljóðver var komið. Þannig flutti hún það á burtfarartónleikum sínum úr F.Í.H um vorið. „Þannig að það tók enga stund að rúlla þessu inn á band. Annað en með nýju plöt- una, sem er búin að veltast um í tvö ár … en þannig er þetta bara stundum.“ Ragnheiður segist nú vera orðin öruggari með sig en áður og viti hvað það er sem hún vilji ná fram. „Stundum er verið að hnýta í mann fyrir að syngja þetta eða hitt, t.d. inn á þessa nýju ástarlagaplötu [Íslensk ástarlög, sem út kom í vor á vegum Senu og Steinsnars]. En aðalatriðið er að standa með sér, og ég ákvað fyrir margt löngu að gera það sem mér sýnist. Ef ég vil syngja einhver ástarlög inn á plötu þá bara geri ég það, og legg mig fram um að gera það af heilindum og fag- mennsku. Sindri Eldon rústaði plötunni í Grapevine og mér fannst ógeðslega fyndið að lesa það...“ Ragnheiður er fyrir löngu búin að hugsa næstu skref, þ.e. þegar þessi fjórða plata er komin í höfn. „Ég er búin að kokka upp c.a. tvær plöt- ur í hausnum ... (hlær) … ég má eiginlega ekki gera þetta, hausinn er alltaf farinn á einhvern allt annan stað. En þegar einu verkefni er lokið er um að gera að vinda sér í næsta. Eða næstu.“ Nokkur lög Áður en Flíshljóðverið er kvatt kíki ég með Ragnheiði inn í stjórnherbergi, en þar er bróðir hennar að fiffa lögin til með fagtól- um eða „pro-tools“. Við hlustum saman á nokkur lög, og skröfum aðeins og skegg- ræðum. Ragnheiður er tiltölulega víruð; það er allt að gerast, utanferðin vofir yfir, platan að klárast og í mörg horn að líta. En hún þarf ekkert að hafa of miklar áhyggjur. Mér heyrist þetta steinliggja. Ske  Ragnheiður söng um tíma með hljóm- sveitinni Ske en þau gerðu meðal ann- ars lagið „Julietta 2“ vinsælt og var það tilnefnt til Íslensku tónlistarverð- launanna í flokknum besta lagið. Upphafið á ferlinum  Ragnheiður sigraði í söngvakeppni Samfés þegar hún var fimmtán ára gömul en sautján ára var hún farin að reka eigin djasssveit. Söngkona ársins  Ragnheiður hefur hlotið ýmis verð- laun, hlaut meðal annars vegtylluna söngkona ársins á Íslensku tónlist- arverðlaununum árið 2004. Á sömu verðlaunahátíð var plata hennar Vetr- arljóð valin plata ársins. Ragnheiður og Haukur  Systkinin voru að leggja lokahönd á nýja plötu Ragnheiðar þegar viðtalið var tekið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.