Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 3
S
tellan Skarsgård er ekki
sá risi sem maður býst
við að hitta af lýsingum
að dæma. Þessi með-
almaður á hæð með
þétt handtak tekur á
móti mér brosandi með öllu andlit-
inu og talar sænsku. Það á ekki að
koma á óvart, maðurinn er jú sænsk-
ur, en yfirleitt heyrir maður hann
tala ensku á hvíta tjaldinu. Í Break-
ing the Waves, Good Will Hunting
eða Dogville. Stellan talar líka ensku
í íslensku myndinni Bjólfskviðu
(Beowulf & Grendel) í leikstjórn
Sturlu Gunnarssonar, og var við-
staddur Evrópufrumsýninguna þeg-
ar hún var opnunarmyndin á Kvik-
myndahátíðinni í Gautaborg 27.
janúar sl.
Stellan Skarsgård fæddist í
Gautaborg árið 1951. Hann kom
fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarps-
þáttunum Bombi Bitt och jag árið
1968, lék síðan mörg hlutverk á sviði
í Dramaten í Stokkhólmi til ársins
1988 þegar hann fékk hlutverk í
Óbærilegum léttleika tilverunnar.
Hann er kvæntur lækninum My og
þau eiga sex börn fædd á árunum
1976–1995 og fjölskyldan er oft með
leikaranum á tökustöðum.
Stellan segir að handritið hafi haft
mest að segja um þá ákvörðun sína
að taka þátt í Bjólfskviðu. Handritið
er skrifað af Andrew Rai Berzins. Í
Bjólfskviðu leikur Stellan danska
konunginn Hróðgeir, rauðhærðan
alkóhólista með fléttur, og stendur
sig vel að vanda. „Þetta er mjög vel
skrifað handrit með stórum sveiflum
og safaríkum persónum. Hróðgeir er
afar áhugaverð persóna sem smátt
og smátt fellur í sjálfsvorkunn.
Valdamikill maður sem ekki höndlar
aðstæðurnar sem hafa komið upp og
hrynur í drykkjusýki og sjálfs-
vorkunn. Fallegt,“ segir hann kald-
hæðinn.
Myndin var tekin upp á Íslandi
haustið 2004. Stellan fannst gaman
að koma til Íslands í fyrsta skipti.
„Það var stormasamt,“ segir hann
og hlær. „Náttúran var svo yf-
irþyrmandi. Ég gerði mér ekki grein
fyrir að hún myndi hafa svo mikil
áhrif á mig. Það var hrikalegt veður.
Stormurinn feykti öllu í burtu. En
það var líka skemmtilegra fyrir vik-
ið. Ég vil ekki að allar myndir séu
eins og þessi var mjög sérstök,“ seg-
ir hann brosandi.
„Ég hafði til dæmis aldrei lent í
því áður að yfirskegg mótleikarans
fyki í burtu. Eða að vindurinn lyfti
leikara … beint á mig. Tökum var
ekki hætt þótt veðrið væri ofsafeng-
ið. Það var ekki fyrr en vindhraðinn
var kominn upp í fimmtíu metra á
sekúndu að tökum var hætt, þá var
orðið hættulegt að halda áfram,“
segir hann og brosir að minningunni.
Stellan þekkti þegar til sögunnar
um stríðshetjuna Bjólf sem leggur
danska kónginum lið við að ráða nið-
urlögum ófreskjunnar Grendils, og
hafði lesið hana áður en hann frétti
af kvikmyndahandritinu. „Þetta er
frekar langdregin saga fyrir nútíma-
lesendur en samt heillandi. En hand-
ritið var svo snilldarlega skrifað.
Karakterarnir og samtölin opnuðu
alltaf möguleika á mismunandi leik
og það sér maður ekki oft í hand-
ritum. Það fannst mér mest aðlað-
andi við þessa mynd. Það er gaman
þegar maður fær svolítið frjálsar
hendur með karakterana.“
Stellan segir að honum Sturlu hafi
komið vel saman. „Hann var gagn-
tekinn af þessari mynd og ákveðinn í
að gera hana. Ég hugsaði stundum
með mér hvort það væri alveg í lagi
með hann!“ segir hann og hlær. „Það
er til myndbútur frá tökutímanum
þar sem tekið hefur verið upp innan
úr bíl og á honum sést Sturla tala við
annan mann. Hárið á leikstjóranum
stendur út í allar áttir í vindinum og
hlutir fjúka um í kring. Sá sem situr
inni í bílnum segir að líklega þurfi að
fresta tökum vegna veðurs en Sturla
þvertekur fyrir það og finnst sjálf-
sagt að halda áfram. Síðan heyrist
hræðilegur hávaði og steinn kemur
fljúgandi og brýtur bílrúðuna! Síðan
er litið á Sturlu sem viðurkennir að
kannski þurfi að fresta tökum. En
hann vildi ekki gefa sig. Hann vann
undir mikilli pressu þar sem myndin
hafði ekki mikið fjármagn. Heillandi
maður,“ segir Stellan brosandi.
Stellan segist hafa kunnað vel við
sig á Íslandi og með Íslendingum.
„Íslendingar eru blátt áfram og
beinskeyttir. Þetta er þjóð þar sem
allir, óháð atvinnu, lesa bækur og
geta rökrætt leikhús og kvikmyndir.
Það er eins og allir séu inni í öllu. Ég
hitti til dæmis tónlistarmann á bar
og við fórum að ræða um leikrit
Strindbergs. Það er ekki á mörgum
stöðum í heiminum sem maður hittir
tónlistarfólk sem getur rætt leikrit
Strindbergs. Ekki einu sinni í Sví-
þjóð.“
Stellan vonast til þess að fá tæki-
færi til að vinna með Íslendingum
aftur en segist aldrei vita hvort hann
eigi eftir að vinna með sama leik-
stjóranum aftur. „Þetta er bara
happdrætti.“ Hingað til hefur Stell-
an unnið mikið með Lars von Trier
og vonast til þess að framhald verði
á. „Við vinnum mjög vel saman og ég
hef skemmt mér vel. En nú er Lars
að vinna í danskri mynd og danskan
mín er ekki mjög góð,“ segir hann og
hlær.
Nýjustu myndirnar með Stellan
Skarsgård eru Pirates of the
Caribbean 2 þar sem Stellan leikur
Bootstrap Bill Turner, og Goya’s
Ghosts í leikstjórn Milos Formans.
Um er að ræða mynd um ævi
spænska listamannsins Franciscos
Goya eftir handriti Formans og fer
Stellan með aðalhlutverkið. Natalie
Portman leikur einnig í myndinni
sem var tekin upp í Madrid og víðar
á Spáni í haust „og Javier Bardem
sem er frábær leikari“. Í vor hefjast
síðan tökur á óháðri kvikmynd á
Norður-Írlandi, svörtum þriller, eins
og Stellan lýsir myndinni. Tökur á
þriðju sjóræningjamyndinni hefjast
einnig innan skamms og meira veit
sænski leikarinn ekki um það sem
fyrir liggur.
Hann segir alls konar verkefni
vekja áhuga sinn. „Þegar ég er bú-
inn með stórar bandarískar myndir
eins og sjóræningjamyndirnar er
gott að gera eitthvað allt annað eins
og að leika í lítilli óháðri mynd sem
er allt öðruvísi. Ég er ánægður ef ég
hef fjölbreytt verkefni að fást við.“
Steingerður Ólafsdóttir tók hús á
einum kunnasta leikara Svía, Stell-
an Skarsgård, sem leikur Hróðgeir
konung í kvikmyndinni Bjólfskviðu.
Stellan segir Steingerði frá reynsl-
unni af að leika í íslenskri náttúru.
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@gmail.com
Toby Jacobs
Hróðgeir Stellan Skarsgård er í hlutverki drykkfellda Danakonungsins. „Hróðgeir er afar áhugaverð persóna…“
Yfirþyrmandi náttúra og hrikalegt veður
Guðni Elísson skrifar grein í LesbókMorgunblaðsins á laugardaginnsíðast liðinn og gerir að umtalsefniumhverfismat og lögmæti fram-
kvæmda við álver Alcoa Fjarðaáls á Reyð-
arfirði. Þar sem Guðni hefur staðreyndir
málsins ekki á hreinu er rétt að upplýsa hann
og lesendur um hið rétta varðandi umhverf-
ismat bæði Norsk Hydro og Alcoa Fjarðaáls.
Það er rangt sem Guðni heldur fram að
eingöngu hafi verið notast við „gamalt um-
hverfismat“ Norsk Hydro þegar Alcoa
Fjarðaáli var veitt starfsleyfi. Hið rétta er að
samanburður var gerður á mati á umhverfis-
áhrifum álversins sem Norsk Hydro ætlaði að
reisa á Reyðarfirði og á umhverfisáhrifum ál-
vers Alcoa Fjarðaáls. Álverið sem Norsk
Hydro hugðist reisa var vissulega með vot-
hreinsun, en það var mun stærra en álver Al-
coa Fjarðaáls og auk þess ætlaði Norsk
Hydro að reisa á Reyðarfirði rafskautaverk-
smiðju. Álver Alcoa Fjarðaáls er sum sé
minna en það sem átti að reisa og rafskautin í
álverið verða keypt frá verksmiðju í Noregi
en ekki framleidd á Reyðarfirði. Fram-
kvæmdaleyfi og starfsleyfi voru veitt á
grundvelli samanburðar á mati á umhverfis-
áhrifum þessara tveggja framkvæmda. Þetta
var talið fullnægjandi á þeim tíma og hófu
menn framkvæmdir í þeirri trú að svo væri.
Hæstiréttur komst síðan að þeirri nið-
urstöðu að sérstakt umhverfismat þyrfti að
fara fram vegna álvers Alcoa Fjarðaáls.
Vinna við það mat hófst þá strax og var matið
auglýst í apríl síðast liðnum. Færustu sér-
fræðingar sem fyrirtækið leitaði til, telja að
sú leið að nota eingöngu þurrhreinsun við
hreinsun útblásturs frá álverinu á Reyð-
arfirði sé besta lausnin miðað við aðstæður
þar og þannig verði umhverfisáhrifin frá því
minnst. Það samræmist einnig þeirri stefnu
íslenskra stjórnvalda að draga úr mengun í
sjó. Ýmsir hafa lýst þeirri skoðun sinni að það
sé betra að nota vothreinsun að auki og sums
staðar í heiminum er það gert, einkum í Nor-
egi eins og fram hefur komið. Um þetta eru
því skiptar skoðanir en skilgreiningin á bestu
fáanlegu tækni sem notuð er í álverum í
heiminum í dag, gerir ekki ráð fyrir vot-
hreinsun. Þegar þetta er ritað styttist í að
Skipulagsstofnun skili áliti sínu á skýrslu Al-
coa Fjarðaáls um mat á umhverfisáhrifum.
Samkvæmt íslenskum lögum falla starfs-
leyfi og framkvæmdaleyfi ekki úr gildi nema
um það falli sérstakur dómur, eða þá að þeir
sem veittu leyfin afturkalli þau. Hvorugt var
gert í þessu tilviki og þess vegna eru bæði
framkvæmdaleyfi og starfsleyfi fyrir álver
Alcoa Fjarðaáls í fullu gildi, að mati þeirra
lögfræðinga sem fyrirtækið hefur leitað til.
Gamalt og nýtt mat á umhverfis-
áhrifum álvers Alcoa Fjarðaáls
Athugasemd við
fjölmiðlapistil
Guðna Elíssonar
Eftir Ernu Indriðadóttur
erna.indridadottir@alcoa.com
Höfundur er upplýsingafulltrúi
Alcoa Fjarðaáls.