Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 5 Svipað gildi um pantanir bóka frá útlöndum, nokkuð sé um að aðrir há- skólar biðji Lbs-Hbs að panta fyrir sig, þótt öll háskólabókasöfn hafi til þess leyfi. „Þetta er vinnusparnaður fyrir þá, auk þess sem það er tíma- frekt að koma sér upp kontöktum er- lendis. Þessi þjónusta er í raun rekin með tapi hjá okkur. Hins vegar verð ég að taka fram að Háskólinn á Ak- ureyri og KHÍ eru öflugir í að panta sjálfir, og fleiri, en það er tilhneiging ungu skólanna að nýta okkur.“ Af þessu má ráða að háskólasöfnin horfa til Lbs-Hbs sem forystusafns, jafnvel móðursafns. Áslaug segir hins vegar einsýnt, og undir það tekur Sig- rún Klara Hannesdóttir lands- bókavörður, að aðrir háskólar vilji ekki leggja peninga til bókakaupa Lbs-Hbs. „Ef þeir leggja pening í ritakaup vilja þeir hafa þau rit hjá sér,“ segir Áslaug. „Öðru máli gegnir hins vegar um rafræn gögn, þau nýt- ast öllum, hvar sem þeir eru. Þetta er þegar gert undir hattinum Lands- aðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum á hvar.is og þar taka há- skólar landsins þátt út frá reikni- reglu.“ Greiðslulíkanið miðast við fjölda nemenda, starfsmanna og tekjur. Á hvar.is er aðgangur að 12 gagnasöfnum og 8.700 tímaritum, verkefnið er á vegum mennta- málaráðuneytis en umsjónarmaður er í Þjóðarbókhlöðu. Nýtist þetta kannski sem módel fyrir sameiginlegt háskólasafn prentaðra bóka? „Þetta gengur reyndar ekki alveg nógu vel,“ segir þá Áslaug, „því efni tímaritanna er ekki tekið inn í dæmið. Þetta nýtist einna best á sviði raun- og heilbrigð- isvísinda en hefur minna gildi fyrir t.d. hugvísindi og listir. LHÍ hefur neitað að greiða, því þeir telja að þetta nýtist þeim ekki nægilega vel – það er semsé alltaf flókið mál þegar skipta á kostnaði.“ Rafrænn aðgangur fyrir alla Hvar.is hefur þó almennt þótt gefast vel. Kennaraháskóli Íslands er einn þeirra sem greiða sinn skerf til að- gangsins. Ólafur Proppé rektor segir að hæfileg blanda af prentuðum og rafrænum gögnum sé það sem gildi, mikilvægt sé að hafa margvíslegt framboð á efni og efnisformi. „Raf- rænn aðgangur að fjölbreyttu efni er mikilvægur liður í að jafna aðstöðu nemenda í staðbundnu námi og þeirra sem stunda fjarnám. Full ástæða er til að minna á þann fjölda nemenda sem er í fjarnámi við KHÍ – fjarnem- endur eru 55% af 2.400 nemendum skólans – og safnið leitast við að veita þeim sem búa fjarri Stakkahlíðinni sambærilega þjónustu og staðnem- um. Við sendum fjarnemum bækur og gögn, ljósritum greinar og bókakafla og sendum hvert á land sem er og til útlanda.“ Bókasafn KHÍ er hluti af Mennta- smiðju skólans, sem skiptist í „safn“ og „smiðju“, og í safninu við Stakka- hlíð og á Laugarvatni eru samtals um 90 þúsund gögn. „Kostnaður við að- föng er um sjö milljónir á yfirstand- andi ári, fyrir utan 2,7 milljóna hlut- deild skólans að Landsaðganginum,“ segir Ólafur og bendir á að margir ut- an KHÍ noti bókasafn skólans, t.d. nemendur og kennarar við aðra há- skóla, kennarar á öllum skólastigum, fjölmiðlar og almenningur. „Að- fangastefnu safnsins er ætlað að tryggja að safnkostur sé byggður skipulega upp. Kennarar og aðrir sér- fræðingar við skólann leggja fram til- lögur um hvað keypt skuli á þeirra sviðum en öllum er heimilt að koma með ábendingar um efni.“ Kosturinn telur ekki aðeins fræði- rit, heldur allt frá leikföngum til kennsluforrita, enda geymir kennslu- gagnasafnið sýnishorn af öllu náms- efni Námsgagnastofnunar fyrir grunnskóla. Háskólabókasöfn lands- ins eru jafn ólík og þau eru mörg. Massíf uppbygging Einn hinna sérhæfðu skóla er Háskól- inn á Hólum, sem sinnir kennslu og rannsóknum á sviði fiskeldis, ferða- þjónustu og hestafræða. Þótt skólinn byggi á langri sögu eru aðeins þrjú ár síðan hann fékk leyfi til þess að út- skrifa nemendur með háskólagráðu, nemendur eru nú 160 og hefur fjölgað hratt. „Við erum í mjög massífri upp- byggingu gæðamála og góðrar að- stöðu fyrir nemendur og þar er bóka- safnið í lykilhlutverki,“ segir Skúli Skúlason rektor. „Sérstaðan er ekki síst sú að hér eru stundaðar mjög miklar rannsóknir, og þá á fremur þröngum fræðasviðum. Uppbygging safnsins einkennist því af talsverðri sérhæfingu, en við eigum líka í sam- starfi við önnur fræðasetur í Skaga- firði til þess að flýta breiðari upp- byggingu.“ Í tilefni 900 ára afmælis Hóla í sum- ar fékk Háskólinn á Hólum gefins frá ríkinu 300 eintök úr Hólaprenti, og í kringum þann dýrmæta kost segir Skúli hugmyndina að byggja upp öfl- ugt safn í kringum miðaldafræði og prentlist. „Okkar svið eru fiskar, ferðamál og hestar, en svo kemur menningarstefnan inn í þetta, bæði fornleifafræði, prentlist og sagn- fræði,“ segir Skúli og segir hugmynd- irnar háar, þrátt fyrir ungan aldur há- skólans. Bókasafn Háskólans á Hólum á í dag 3.200 bækur skráðar og um 30 tímarit eru keypt, en nem- endur og kennarar nota mikið milli- safnalán og hvar.is, sem Skúli segir virka feiknavel fyrir skóla sem stað- settur er í Skagafirði. Um 1,5 milljónir króna eru settar í kaup bóka og tímarita árlega. „Ég ber mig ekkert illa með þessar tölur, ef við miðum við nemendafjöldann,“ segir Skúli. „Aðfangastefnan er mjög einhliða; að gera allt sem hægt er til þess að byggja upp fræðiritakost og góða þjónustu við rannsóknir og kennslu.“ Við Háskólann í Reykjavík eru aft- ur á móti hátt í 2.800 nemendur, og þeim býðst að fá upplýsingar um nýtt efni á bókasafninu sendar í tölvupósti mánaðarlega. Annars vegar er lögð áhersla á hátt þjónustustig, hins veg- ar á rafræn gögn; bókasafn Háskól- ans í Reykjavík er að stórum hluta rafrænt og að sögn forsvarsmanna í fremstu röð slíkra safna hérlendis. Stefnt er að því að „stúdentar og starfsmenn HR hafi sambærilegan aðgang að efni á sínum fræðasviðum eins og best gerist í alþjóðlegu há- skóla- og rannsóknarsamfélagi“. Vill sjá söfnin sjálfstæðari Millisafnalán reynast vera kjarninn í hugmynd Jóns Ólafssonar um sam- eiginlegt háskólabókasafn landsins þegar hann er spurður nánar. „Nú er til eitt skráningarkerfi fyrir öll söfn í landinu, Gegnir,“ segir Jón. „Og við erum með þokkalegasta milli- safnalánakerfi. Ef unnið væri enn bet- ur í þessu kerfi og fé veitt í að efla millisafnaþjónustuna myndu söfnin virka í huga fólks sem eitt. Hugmynd mín gengur einfaldlega út á að há- marka möguleikana á að eiga til í landinu þær bækur sem þarf.“ En hvað með stjórnsýslu? „Nota mætti tækifærið og skilja milli fjármögnunar háskólanna og fjármögnunar safnanna,“ svarar Jón. „Söfnin yrðu sjálfstæðari og myndu sýna meira frumkvæði í að leita fjár, í stað þess að sitja og bíða.“ Sérhæfð ritakaup myndu ákvarðast af sérsviði Morgunblaðið/Kristinn » „Þetta gat deildin ekki þolað lengur og hefur nú lokað útibúinu fyrir öðrum en nemendum og kennurum HÍ. Þeim gremst að þeir séu að kaupa þessar bækur á meðan hinir skólarnir leggi ekkert til.“ hvers skóla fyrir sig, en hagræðing myndi nást í innkaupum til sameig- inlegra greina og grunnfræða. Hvergi marktæk innkaupastefna „Það þyrfti að gefa því sérstakan gaum hvaða áhrif sameining allra há- skólasafnanna hefði á þjónustuna í hverjum skóla áður en ákvörðun um slíkt yrði tekin,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Ak- ureyri, því þjónustu þurfi alltaf að þróa í nánum tengslum við við- skiptavini. „Það hefur oft verið talað um háskólabókasöfn sem hjarta hvers háskóla og er ekki best að ráða sjálfur yfir sínu hjarta?“ Ágúst Sigurðsson, rektor Landbún- aðarháskólans á Hvanneyri, telur góðra gjalda vert að samhæfa há- skólabókasöfnin meira með tilliti til innkaupa. Runólfur Ágústsson, rektor Háskólans á Bifröst, samsinnir og segir að háskólarnir þurfi að leggja saman krafta sína og búa til sameig- inlega innkaupastefnu sem myndi endurspegla þarfir allra háskólanna í landinu. „Þannig gætu háskólarnir líka sameinast um að afla fjár til þess að byggja upp frábært landsbókasafn sem næði til landsins alls. Slíkt lands- bókasafn væri hýst í háskólunum sjálfum en tengt saman með enn öfl- ugra millisafnalánakerfi og nútíma- tækni þannig að hægt sé að afgreiða bókapantanir mjög hratt innanlands. Við eigum frábært fagfólk á þessu sviði og samnýting þess gæti skilað skólunum miklu, ekki síður en sam- eiginlegur safnkostur.“ Ritaeign Háskólans á Bifröst var um 7.000 bindi í árslok 2005 og það ár voru keypt rit fyrir um fimm milljónir. Nemendur eru 7.004. Runólfur er spurður um gagnrýnina á rekstur bókasafns HÍ. „Ég hygg að margir geti tekið undir með Jóni [Ólafssyni] að hið svokallaða Landsbókasafn standi varla undir nafni undir núver- andi forræði HÍ. Svo virðist sem fjár- veitingar til þess séu látnar mæta af- gangi og að ekki sé þar, frekar en í flestum öðrum háskólabókasöfnum hérlendis, ríkjandi nein marktæk inn- kaupastefna.“ Ágúst á Hvanneyri telur hins vegar „ekkert hægt að vera með svona full- yrðingar út í bláinn“: „Ég efast ekki um að hjá HÍ sé verið að reyna eftir því sem fjármagn leyfir að auka bóka- og tímaritakost.“ Á Hvanneyri er kosturinn um 30 þúsund titlar og millisafnalán virka vel. „Mest af milli- safnalánum okkar er við bókasöfn er- lendis og gengur það yfirleitt með ágætum. Meginþorri efnis sem sótt er í hjá okkur, og í háskólum almennt, er í formi tímarita og þau eru öll að fær- ast yfir á rafrænt form. Það er því í dag hægt að nálgast flest sem hug- urinn girnist en kostar reyndar stund- um einhverja fjármuni.“ Aðalatriðið er þetta. Þú getur ekki tekið útúr safni nema þú hafir að sama skapi lagtfram til þess,“ segir Sigrún Klara Hann- esdóttir, landsbókavörður. Þetta gildi um Há- skóla Íslands, því safnið fái féð til ritakaupa fræðilega hlutans eingöngu frá honum, og þetta gildi líka um aðra háskóla landsins. Sigrún Klara segir að framlög deilda HÍ til ritakaupa hafi ekki staðið í stað síðustu ár, þau hafi beinlínis dregist saman og á sama tíma hafi bóka- og áskrift- arverð hækkað og gengið verið óhagstætt, þann- ig að ráðstöfunarféð hafi minnkað mjög. Nem- endum haldi hins vegar áfram að fjölga og kennslu sé ýtt úr vör í nýjum námsgreinum. Hún kallar eftir hugarfarsbreytingu, fólk verði að gera sér grein fyrir því að það kosti peninga í gagnakaupum að mennta hvern ein- asta framhaldsnemenda. Menntamálaráðuneytið gerir samninga við háskólana á grundvelli reiknilíkans um kostnað við menntun há- skólanema – Sigrún Klara segir að slíkt líkan þurfi að vera í sífelldri endurskoðun, þar virðist til dæmis ekki vera gert nægilegt ráð fyrir ritakaupum, þótt hún hafi reyndar ekki séð skiptinguna. „Ég hef lagt það fram að af framlagi til hvers doktorsnema fáum við, eða hvert það annað háskólasafn sem um ræðir, ákveðið brot, kannski bara 1,5% sem eyrnamerkist til ritakaupa. Þannig sé smám saman hægt að byggja upp betri fræðilegan ritakost.“ Einsýnt sé að framlög deilda HÍ hrökkvi varla til stuðnings námskeiðum í kennslu, afgangur til annarra fræðiritakaupa sé því enginn. Spurt er um aðfangastefnu HÍ, sem sumir hafa auglýst eftir, og Sigrún Klara segir hana að finna í þessari spennitreyju fjár. „Ef deild með 2000 nemendur getur ekki séð af meira en hálfri annarri milljón til ritakaupa, þá er varla hægt að fara eftir aðfangastefnu sem kveður á um jafnræði til ritakaupa í latínu og öðrum málum, eða annað.“ En þrátt fyrir allt telur hún ekki ástæðu til fullkominnar svart- sýni. „Háskóli Íslands hefur sett sér markmið um að komast í hóp 100 bestu, og ég tel enga ástæðu til þess að vera svartsýn á það. Mér finnst skilningur vera að vakna á þörfum safnsins. Og ef okkur tekst að halda Landsaðgangi að rafrænum gögnum og tímaritum áfram, og efla, mun það skipta rannsóknarsamfélagið í þessu landi miklu máli.“ Vildum geta gert meira Um sameiningarhugmyndina segir Sigrún Klara: „Sameiginlegt bókasafn allra háskóla getur aldrei orðið, því hver skóli verður að hafa sitt. En hvort sum skuli njóta stuðnings umfram önnur til að vera bakhjarl til rannsókna, er önnur spurning, og þar held ég að Íslendingar hafi eingöngu ráð á einu.“ Sem stendur er Lbs-Hbs ekki slíkt safn, einfaldlega vegna þess að fjárframlög miðast einungis við skilgreinda starfsemi, að vera annars vegar þjóðbókasafn og hins vegar safn Háskóla Íslands. „Hins vegar vildum við mjög gjarnan geta verið Rannsóknabókasafn Íslands sem þjónaði nemendum og kennurum allra háskóla, fjarnemum, fræðisetrum og háskólasetr- um um allt land. Ég tel að við höfum til þess húsnæði og starfsfólk.“ Verði tekin um þetta ákvörðun, þurfi að skilgreina fjárþörfina vandlega. Nú sé hins vegar töluverð ósanngirni í því hvernig aðrir skólar nýta sér Lbs-Hbs án þess að leggja fram fé. „Sumir háskólar hafa til dæmis maldað í móinn yfir að þurfa að greiða sinn skerf til Landsaðgangs að rafrænum gögnum og tímaritum,“ segir Sigrún Klara. Lbs-Hbs fer með stjórn verkefnisins, en greiðslurnar skiptast hlutfallslega. „Þeir halda kannski að allt fáist ókeypis á Netinu. En við erum að borga 100 milljónir á ári, já, það kostar þetta mikinn pening að tryggja öllum landsmönnum rafrænan aðgang að 8700 tímaritum,“ segir Sigrún Klara og ítrekar að hún sé ekki að skamma neinn. Þetta sé eins og með Gleðibankann, það sé ekki hægt að leggja ekkert inn, taka bara út. Rektor Háskóla Íslands sá sér ekki fært að svara spurningum Lesbókar um Háskólabókasafn með svo stuttum fyrirvara, en ítrek- aði að málið væri henni að sjálfsögðu mjög hugleikið. Reiknilíkanið er skakkt Sigrún Klara Hannesdóttir ANGELA HEWITT Í SALNUM Hinn heimskunni píanóleikari Angela Hewitt leikur verk eftir Bach, Beethoven, Rameau og Chabrier á tvennum tónleikum í Salnum á Kanadískri menningarhátíð í Kópavogi. mánudaginn 16. október kl. 20 þriðjudaginn 17. október kl. 20 Miðasala og nánari upplýsingar á www.salurinn.is og í síma 5 700 400

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.