Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 7 Eftir Aðalstein Ingólfsson adalart@thjodminjasafn.is Íöllu því sem ritað hefur verið um íslenskamyndlist frá styrjaldarlokum og fram ásjöunda áratuginn er sjaldan ýjað að þvíað evrópskur súrrealismi hafi nokkurn tímann sett mark sitt á þá myndlist, nema hvað stöku sinnum hefur hann verið nefndur til sög- unnar í tengslum við teikningar Alfreðs Flóka. Sem satt best að segja hefur aldrei verið tekinn sérstaklega alvarlega á Íslandi. Stöku sinnum hefur þó verið sett samasemmerki milli eldri verka Errós og súrrealisma, en þó með þeim fyrirvara að þau verk og sú stefna séu hluti af franskri myndlist fremur en íslenskri. Það hefur sem sagt farið framhjá mörgum helstu álitsgjöfum okkar á vettvangi mynd- listar að í fjörutíu ár starfaði hér myndlist- armaður, Einar Þorláksson, sem rækti trúnað við helstu forsendur og markmið súrreal- ismans. Þessi trúnaður leysti úr læðingi sköp- unargáfu sem á sér enga hliðstæðu í heimi ís- lenskra listmálara. Áhrifamestu myndir Einars eru eins og iðandi, glóðheit kvika, sem stöðugt tekur á sig nýjar myndir og litróf, í heild sinni eru þær eins og samfelldur óður til einu lífs- og vinnureglunnar sem súrrealistum hugnaðist, umbreytingarinnar eða metafósunnar. Einar lauk stúdentsprófi frá MR 1953, þá tví- tugur að aldri, og afréð í kjölfarið að læra til myndlistar í Hollandi – fyrstur íslenskra mynd- listarmanna. Þar kom tvennt til, hann átti þar frænku sem gift var háttsettum hollenskum embættismanni og gat boðið honum vetrarvist, og svo auðvitað rykti hollenskrar myndlistar. Í Hollandi var Einar um sex mánaða skeið, frá 1954–55, og stundaði nám við skóla fyrir áhuga- listamenn í Laren, mitt á milli Amsterdam og Hilversum. Á þessum tíma áttu Hollendingar ekki sterka súrrealista, en í staðinn gætir súrrealískra áhrifa í verkum sumra COBRA-manna. Áhrif þeirrar stefnu síast inn í fyrstu olíumálverk sem Einar málaði í Laren, einkum og sér í lagi handbragð Karels Appels. En Einar uppgötvaði ekki súrrealismann í Hollandi. Til er fjöldi teikninga frá unglings- árum hans, þar sem gætir áhrifa frá krangaleg- um fígúrum Dalis. Árið 1947, þegar hann var fjórtán ára, sendi Einar nokkrar teikningar á alþjóðlega sýningu sem hafði að markmiði að auka á samkennd barna og unglinga um allan heim. Þegar þessi sýning var sett upp hér í Reykjavík í maí 1948 gerði Elías Mar, skáld og blaðamaður á Þjóðviljanum, að umtalsefni teikningar merktar ,,Einar“: ,,Ég er illa svik- inn, ef þar er ekki á ferðinni merkilegur súr- realisti, er sýna muni í framtíðinni ennþá betur hvað í honum býr.“ Á forsíðu skólablaðs MR frá 1952 er síðan að finna mynd eftir Einar sem sýnir svo ekki verð- ur um villst að hann hefur einhvers staðar séð myndir eftir þá Tanguy og Miró. Um svipað leyti hafði Einar raunar fengið súrrealískan innblástur úr annarri átt. Með hingaðkomu breskra og bandarískra hermanna fóru að berast til Íslands bækur og tímarit á ensku um nútímamyndlist. Í Bókabúð Braga uppgötvaði Einar breska listatímaritið Studio, þar sem var að finna fjölda mynda af verkum svokallaðra breskra nýrómantíkera, Grahams Sutherland, Paul Nash og Edwards Burra, sem orðið höfðu fyrir áhrifum frá frönskum súrreal- istum. Á árunum 1955–56 bjó Einar til eins konar sviðsmyndir sem eru mjög í anda þeirra, en þar er aðskiljanlegum fyrirbærum raðað saman, að því er virðist með óskipulegum hætti. Mótífin eru ýmist þekkjanleg eða óhlutbundin og staðsetning þeirra á fletinum er til þess fall- in að skapa óraunverulegt, draumkennt rými. Miðilsfundir úti í náttúrunni Rétt er að taka fram að súrrealisminn var Ein- ari langtum meira en einhvers konar hækja eða uppflettibók, hann var hin eiginlega hrygg- lengja í myndlist hans og viðhorfum til listsköp- unar, sama hvernig veröldin veltist. Þessi viðhorf eru nánast eftir bókinni, a.m.k. ef þau eru borin saman við útlistanir frum- kvöðla súrrealismans, Bretons og félaga hans. Samkvæmt þeim liggur leiðin til sjálfsþekk- ingar ekki gegnum hið vitsmunalega eða ,,súp- eregóið“ heldur gegnum undirvitundina. Því sem undirvitundin veltir upp tekur ímyndunar- aflið við og umbreytir með ýmsum hætti. Til að „stímúlera“ undirvitund sína gerist myndlist- armaðurinn eins konar miðill, hleypir í gegnum sig hughrifum og áhrifum af ýmsu tagi; í raun- inni öllu því sem hann sér, skynjar eða les. Í boðskiptum við undirvitundina reynast súrreal- istum sérstaklega notadrjúgar tilviljanir og árekstrar ólíkustu þátta; hvorttveggja brýtur upp rökhugsun og leysir úr læðingi hið ófyr- irséða, það er, nýja þekkingu og tilfinninga- legan sannleik. Það er síðan í náttúrunni sem margir súr- realistar finna það mótvægi sem helst dugar þeim til birtingar þessa nýja sannleika, ekki síst vegna þess að hún er bæði hluti af mann- inum og hlutlaus, getur endurspeglað hið innra sjálf hans og verið eins og táknmynd fyrir allt ytra umhverfi hans. Rétt – og nauðsynlegt – er að taka fram að inngrip súrrealista í náttúruna er með nokkuð öðrum hætti en meðhöndlun formhyggjumanna á henni sem skýrir m.a. sérstöðu Einars Þor- lákssonar í íslenskri myndlist. Íslenskir form- hyggjumenn, allt frá Jóni Stefánssyni til Krist- jáns Davíðssonar, hafa tilhneigingu til að líta á náttúruna sem hlutlægt fyrirbæri með inn- byggðan forgrunn, miðbik og bakgrunn. Hvernig sem þessir listamenn sökkva sér ofan í náttúruna eða telja sig umbreyta henni, ganga þeir nánast aldrei í berhögg við þessar grund- vallar-,,eigindir“ hennar og innbyggða – nánast arftekna – formgerð. Þótt Kristján Davíðsson afbyggi æskuminningar sínar um hafið og ströndina við Patreksfjörð og dreifi um striga sinn, fer ekki á milli mála hvert myndefni hans er, hvar haf og fjara mætast og hvar himinninn er á myndinni. Náttúrustemmur Einars spretta ekki endi- lega upp úr náttúrunni hrárri, kveikjan að þeim getur verið skáldskapur um náttúruna eða frétt sem tengist henni. Hvaðan sem upprunalegar hugmyndir hans komu gengu þær í gegnum hratt og ósjálfrátt umbreytingarferli þar sem listamaðurinn opnaði fyrir undirvitund sína og ímyndunarafl. Gengju myndirnar ekki upp í fyrstu atlögu var þeim umsvifalaust snúið til veggjar, sem er líka ákaflega súrrealískt við- horf. Til að koma hugmyndum sínum frá sér tafarlaust notaði Einar oftast akrýllit sem ekki þarfnast sömu yfirvegunar og olíuliturinn. Einar gerir því myndir ,,um“ náttúruna fremur en ,,af“ henni, myndir sem ekki eru í samræmi við viðteknar hugmyndir okkar flestra um það hvernig slíkar myndir eigi að líta út. Enginn greinarmunur er gerður á ytra útliti og innviðum upprunalegs viðfangsefnis, for- grunni og bakgrunni, heldur er eins og okkur opnist ,,heildræn“ sýn af sjálfum eðlisþáttum náttúrunnar, ómenguðum af íhlutun mann- anna. Óstýrilæti litanna Óhefðbundið litróf einkennir þessar myndir Einars. Bleikt, fjólublátt, purpurarautt, skær- grænt; allt eru þetta litir sem flestir sómakærir listmálarar forðast eins og heitan eldinn. Enda eru þetta ,,erfiðir“ litir, hafa allt að því ótilhlýði- legar vísanir og rekast illa með öðrum litum. Fyrir Einari höfðu litir „fýsíska“ nærveru og merkingu, þeir voru ,,raunverulegir“ eins og sólin, grasið og hafið. Segja má að Einar noti ,,óþægilega“ liti í sama augnamiði og óvenjuleg fyrirbæri, frá- sagnir og hugdettur, nefnilega til að brjóta upp hið hefðbundna og viðtekna í verkum sínum; framkalla óvenjulega ,,effekta“ og öðruvísi hug- hrif með áhorfendum sínum. Hér hefur verið einblínt á súrrealísk viðhorf Einars eins og þau birtast í náttúrutengdum myndum. En súrrealista er að sjálfsögðu ekk- ert mannlegt óviðkomandi og því rötuðu ýmis minni tengd manninum og mannlegri breytni inn í málverk hans, þar sem þau fengu sömu meðferð og önnur viðfangsefni. Í mörgum myndum af þessu tagi birtist ísmeygileg kímni- gáfa listamannsins, lýsandi fyrir írónísk viðhorf hans til manneskjunnar. Í langflestum málverkum Einars með „fí- gúratífu“ ívafi á sér stað samruni náttúru, manns, manngerðs umhverfis og ýmissa tilfall- andi hugmynda listamannsins, þannig að nær ógerlegt er að greina á milli. Og í rauninni eng- in ástæða til að gera það. Þessi verk hafa að geyma myndræna verund, myndheima sem hverfast um sjálfa sig, formrænt sem merking- arlega. Verður sérhver áhorfandi að gera upp við sig hvort hann vill svara kalli þeirra. Ljósmynd/Aðalsteinn Ingólfsson Einar Þorláksson Listamaðurinn á vinnustofu sinni, djúpt niðursokkinn í sinn innri heim. Þetta er ein af síðustu myndunum sem teknar voru af listamanninum. Ógnarjafnvægi í undirvitundinni Höfundur er listfræðingur. Hinn 29. september sl. lést í Reykjavík Einar Þorláksson myndlistarmaður, 73 ára að aldri. Hann rækti trúnað við helstu forsendur og markmið súrrealismans í verkum sínum. reddaði sér. Smáskammtur af frjálshyggju hefði örugglega ekki skaðað hyskið. En af hverju eru afskipti án geðþótta betri en hið gagnstæða? Ein af ástæðunum fyrir því er sú að sá sem verður fyrir geðþóttabundnum af- skiptum býr við mikið óöryggi. Öryggisleysið er aukabaggi sem aðrir þurfa ekki að axla. Önnur ástæðan er sú að afskipti án geðþótta draga úr þörf fólks fyrir að liggja hundflatt fyrir atvinnu- rekendum og karlpungum. Ímyndum okkur ástand þar sem auðherrar hafa mikið vald yfir verkamönnum og karlmenn drottna yfir konum. Berum það saman við ástand þar sem ríkið dreg- ur úr þessu valdi. Í fyrra tilvikinu kann afskipta- leysi að vera mjög mikið, ekki í því síðarnefnda. Þrátt fyrir það er minna forræði í því ástandi þar sem ríkið skerðir vald auðherra og karlrembu- svína. Spurningin er hvort ekki sé kominn tími til þess að beita íslenska ríkinu til þess að temja auðvaldið, t.d. með því að takmarka rétt auð- herranna til að dæla peningum í kosningasjóði. Það nær engri átt að peningamenn geti gert stjórnmálaflokka að bankaútibúum. Hvað sem því líður þá má segja að Pettit bragðbæti lýðveldishyggjuna með drjúgum skammti af frjálslyndri jafnaðarstefnu. Kalla má stefnu hans (og Hönnuh Arendt) “frjálslynda lýðveldishyggju“. En hann talar gjarnan eins og lýðveldið sé einungis tæki til að efla hag einstak- linga og þykir mér það skrítin lýðveldishyggja. Vilji hann vera sannur lýðveldissinni er honum einboðið að segja lýðveldið líka takmark í sjálfu sér. Hann þyrfti að bæta ýmsu öðru í pottinn, t.d. smáskammti af dyggðahyggju. Satt best að segja ofreynir hann sig ekki á umfjöllun um dyggðahugtakið og er í góðum félagsskap með Arendt hinni fjölvísu. Að minni hyggju fær ekk- ert lýðveldi staðist nema nokkur fjöldi borgara öðlist pólitískt hugrekki, réttsýni (fairness), hóf- semi og pólitíska skynsemi (eða dómgreind). Þessar eru hinar klassísku dyggðir fornaldar. En lýðveldið stenst vart ef skynsemin ein ræður ferðinni. Þyki mönnum ekki vænt um lýðveldið er lítil von til að þeir vilji stuðla að vexti og við- gangi þess. Samt má þessi ást ekki blinda þá, heldur opna augu þeirra fyrir annmörkum lýð- veldisins. Eru menn ekki einatt hvað gagnrýn- astir á það sem þeir elska mest, t.d. sjálfan sig og afkvæmi sín? Ekki þarf mikið hugarflug til að sjá að kenn- ingar Pettits (og Arendts) um lýðveldið eru ná- skyldar hugmyndum Samfylkingarinnar um samræðulýðræði. Samfylkingarmenn ættu að sperra eyrun er Pettit segir að lýðræðið eigi að vera hnekkjunarræði virkra, vakandi borgara. Lýðveldi Philip Pettits gæti orðið huggulegri staður en furstadæmið Mónakó við Miðjarð- arhafið bláa.  Heimildir: Hannah Arendt (1990): On Revolution. Harmondsworth: Penguin. Margret Canovan (1992): Hannah Arendt. A Reinterpretation of Her Political Thought. Cambridge: Cambridge UP. Barbara Ehrenreich (2001): Nickled and Dimed. On (not) Getting by in America. New York: Metropolitan Books. Philipp Pettit (1997): Republicanism. A Theory of Freedom and Government. Oxford: Oxford University Press.  Aftanmálsgreinar: 1 Meginrit Pettits er Republicanism frá 1997 og styðst ég mest við hana. Einnig hefur hann skrifað stutta en læsilega saman- tekt á bókinni í Stanford Encyclopedia of Philosophy. Greinina má finna á Netinu, http://plato.stanford.edu/entries/ republicanism/ 2 Fyrri partur þáttarins Orð skulu standa á RÚV. Birtur í Morgunblaðinu 3. desember 2005. Morgunblaðið/ÞÖK Höfundur er prófessor í heimspeki við Háskólann í Lillehammer í Noregi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.