Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 14.10.2006, Síða 9
einkamál. Valgerður Sverrisdóttir myndi eflaust taka undir þau orð hans, en hún er rétt eins og Ill- ugi yfirlýstur umhverfisverndarsinni. Vandinn er bara sá að ef nota á náttúruverndarhugtakið á umhverfisbótasinna eins og Illuga, Sigríði og Val- gerði er búið að teygja svo mikið úr orðinu að það verður nánast merkingarlaust. Ég leyfi mér líka að fullyrða að hvergi í Vestur-Evrópu væri mál- flutningi slíkra umhverfiskandídata tekið jafn- gagnrýnislaust og á Íslandi. Vísindi og stjórnmálatrú Á flokksráðsfundi Vinstri grænna nú í september héldu Kolbrún Halldórsdóttir, alþingismaður, og Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi, því fram að einvörðungu vinstrimenn gætu verið nátt- úruverndarsinnar.8 Hjörleifur Guttormsson tekur undir það sjónarmið í skriflegu svari við spurn- ingu sem Gunnar Hrafn Jónsson lagði fyrir hann í greininni „Er hægt að vera hægri og grænn?“ Hjörleifur telur Sjálfstæðisflokkinn vera staddan á árinu 1970 þegar kemur að umhverfismálum og umhverfisvernd. Ég held að sá dómur Hjörleifs sé ekki fjarri lagi, en ég held að hann, Kolbrún og Svandís hafi rangt fyrir sér ef þau halda að ekki sé hægt að laga umhverfisvernd að hægri sjón- armiðum.9 Fyrir slíku má færa mörg rök. Í fyrsta lagi má benda á að hugmyndafræði vinstrimanna á 20. öld var lengst af ekkert sérstaklega náttúruvæn og að mörg alvarlegustu umhverfisspjöll sögunnar má rekja til ákvarðanna vinstristjórna.Vinstrimenn þurftu því að endurskoða rækilega hugmyndir sínar til náttúrunnar áður en þeir náðu að móta þá uppbyggilegu umhverfisstefnu sem Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð stendur núna fyrir. Sú þekking sem myndast hefur á síðustu fjórum ára- tugum hefur leitt til þess að nú hafa vinstrimenn frumkvæðið í umræðunni um málefni náttúrunn- ar. En ekkert er því til fyrirstöðu að hægrimenn geti ekki tileinkað sér þá afstöðu til náttúrunnar sem mótuð hefur verið af umhverfisverndarhreyf- ingum síðustu áratuga og látið gott af sér leiða í þeim efnum. Í öðru lagi ættu vinstrimenn að líta í eigin barm og greina þær breytingar sem orðið hafa á þeirra eigin samfélagsáherslum síðustu fjörutíu árin, frá fullkominni trú á ríkisrekstur yf- ir í viðurkenningu á gildi einkaframtaks. Þeir hafa horfið frá blindri höfnun á hinu kapítalíska fyr- irkomulagi yfir í samþykki sem mótað er af áherslunni um að standa áfram vörð um hin fé- lagslegu gildi. Þýðir þetta að íslenskir vinstri- menn hafi svikið einhvern málstað? Þeir aðhyllast jú ekki sömu skoðanir og sósíalistar þriðja og fjórða áratugarins. Ber íslenskum vinstrimönnum að halda fast í þær sósíalísku skoðanir sem gengn- ar kynslóðir höfðu í hávegum? Vitaskuld ekki og að sama skapi væri rangt af hægrimönnum að troða slíkum skoðunum upp á íslenskar vinstri- hreyfingar á 21. öldinni. Af hverju ætti þá að skylda Sjálfstæðisflokksmenn til að standa vörð um úreltar stóriðjuhugmyndir sjöunda og áttunda áratugarins og segja að þeim sé ekki mögulegt að snúa við blaðinu? Í þriðja lagi er ekkert sem bend- ir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn sé mótaður af hægri sinnuðum hugsjónum í stóriðjuáherslum sínum. Þetta kallar þó á frekari skýringar. Í grein minni frá því í júlí ræddi ég hættuna á því að færa stjórnmálin inn á umræðusvið vís- indanna en það gerðu kommúnistar svo gjarnan á fyrri helmingi liðinnar aldar. Jón Steinsson hag- fræðingur og Jón Ólafsson heimspekingur hafa báðir fært skynsamleg rök fyrir því hvers vegna hægri sinnuðum einstaklingum gæti hugsanlega verið í nöp við vísindalegar rannsóknir sem gefa til kynna hættu á gróðurhúsaáhrifum. Í pistlinum „Hægrimenn og gróðurhúsaáhrif“ segir Jón Steinsson: „Það er […] nokkuð undarlegt hversu sterk fylgni virðist vera milli afstöðu fólks til gróð- urhúsaáhrifanna og almennra stjórnmálaskoðana viðkomandi. Hægrimenn virðast einhverra hluta vegna vera mun vantrúaðri á gróðurhúsaáhrifin en vinstrimenn. Þetta er einkennilegt þar sem um hreina vísindaspurningu er að ræða. […] Ég hygg að ástæðan sé að hluta þessi: Hægrimenn jafnt sem vinstrimenn vita að ef gróðurhúsaáhrifin eru til staðar munu þau líklegast leiða til þess að hlut- verk ríkisins í samfélaginu mun vaxa. Þessi vitn- eskja litar afstöðu hægri- og vinstrimanna til vís- indanna sem þeir lesa. Hægrimenn gefa niðurstöðum þeirra sem efast um gróðurhúsa- áhrifin meira vægi en þau eiga skilið á meðan vinstrimenn gera hið gagnstæða. Þetta er vita- skuld afskaplega bagalegt fyrir vitræna umræðu um jafn mikilvæga spurningu.“10 Í fyrrnefndri grein Gunnars Hrafns Jónssonar tekur Jón Ólafs- son í sama streng og segir: „Umhverfispólitík fel- ur alltaf í sér einhvers konar afskipti ríkisins af at- höfnum einstaklinga og það samræmist ekki þessari hreinu eða klassísku frjálshyggju sem oft er talað um. Samruni vinstristjórnmála við um- hverfisstjórnmál er mun auðveldari þar sem flestir vinstrimenn hafa hreinlega meira þol fyrir ríkisafskiptum en þeir sem standa til hægri. Margir hægrimenn hafa haldið því fram að mark- aðurinn geti að miklu leyti séð um umhverf- isvernd, t.d. Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Frá mínum bæjardyrum séð er það þó augljóst að eitthvað þarf að gefa eftir í frelsissjónarmiðum hægrimanna ef þeir ætla að pakka umhverf- ismálum inn í sína pólitísku sýn. Það má segja að það sama gildi um femínisma en í báðum tilvikum er auðvitað hægt að gera málamiðlanir á milli hugsjóna og breytts raunveruleika.“ Í einhverjum skilningi orðsins snúa hin póli- tísku ágreiningsatriði því ekki aðeins að fram- kvæmdahliðinni, t.d. að umræðu um samspil stór- iðju og náttúruverndar. Pólitískar skoðanir lita einnig afstöðu einstaklinganna til vísindanna eins og sést glögglega þegar málflutningur Illuga Gunnarssonar og Sigríðar Ásthildar Andersen er skoðaður, en bæði geta illa sætt sig við þá hug- mynd að framtíð jarðarbúa standi ógn af óbreytt- um neysluvenjum iðnaðarsamfélaga. Máli sínu til stuðnings vísa Illugi og pennar Vef-Þjóðviljans til skrifa þeirra efasemdarmanna sem kenna sig við frjálshyggju en eru í raun fyrst og fremst lobbíis- tar fyrir bandarísk stórfyrirtæki eins og tóbaks- risana og ExxonMobil sem fjármagna starf þeirra. Nú er svo komið að breskir vísindamenn hafa fengið sig fullsadda af þeim gervivísindum sem lobbíistarnir halda á lofti,11 en Konunglega vísindaakademían skrifaði forstjórum Exx- onMobil harðort bréf þar sem þess var krafist að olíufyrirtækið láti af þeirri iðju sinni að greiða samtökum háar upphæðir fyrir að birta villandi upplýsingar um gróðurhúsavísindin. Í grein í breska blaðinu The Guardian, er the Int- ernational Policy Network sérstaklega tekið sem dæmi um eina af þeim varhugaverðu stofnunum sem ExxonMobil fjármagnar, en þar er góðvinur Íslendinga Roger Bate, áðurnefndur talsmaður umhverfisbótastefnu Davíðs Oddssonar, einn innsti koppur í búri.12 Og af hverju hefur Exx- onMobil sig meira frammi í þessum málum en t.d. BP og Shell? Það er vegna þess að hin tvö fyr- irtækin hafa fjárfest mun meira í öðrum orku- gjöfum en olíu. Fyrirtækið er því verr í stakk búið að laga sig að hugsanlegum breytingum á olíu- markaðnum en sambærileg fyrirtæki. Sam- keppnishæfni fyrirtækja er í miklum mæli háð aðlögunarhæfni þeirra og auðvitað eiga forstjórar olíufyrirtækjanna að gera ráð fyrir þeim mögu- leika að útblásturskvótar verði settir á komandi árum og að þá muni því fyrirtæki vegna best sem lengst hefur náð í þróun nýrra orkugjafa. Íslend- ingar eiga því ekki að vera þau ginningarfífl að laga umhverfisstefnu sína að skýrslum og grein- argerðum sem kostaðar eru af ExxonMobil, a.m.k. eiga þeir ekki að gera það í nafni frjáls- hyggju. Aðrar spurningar vakna þegar ræða á íslensk umhverfismál og hægri sinnað óþol fyrir ríkisaf- skiptum. T.d. er forvitnilegt að skoða hvernig flokkarnir skiptast í tvær andstæðar fylkingar í stóriðjumálunum þvert á þá hugmyndafræði sem ætla mætti að stýrði áherslum þeirra. Enginn flokkur hefur gengið jafnfast fram í andófi gegn hinum ríkisstyrktu og ríkisreknu stóriðjufram- kvæmdum og Vinstrihreyfingin – grænt framboð, á meðan Sjálfstæðisflokkurinn ver þær með kjafti og klóm. Meira að segja „frjálshyggjumennirnir“ á Vef-Þjóðviljanum fá ekki af sér að hallmæla þessu 100 milljarða byggðaþróunarverkefni rík- isstjórnarinnar. Ég held því að nærtækara væri að leita skýringanna á stuðningi Sjálfstæðisflokk- ins við stóriðjustefnuna annars staðar en í hug- sjónalífinu. Önnur spurning sem t.a.m. væri hægt að varpa fram er þessi: Hefur það nokkru sinni gerst í sögu Sjálfstæðisflokksmanna að þeir vildu setja lög sem takmörkuðu frelsi einstaklinganna í samfélaginu, lög sem sneru t.d. að eins konar hugmyndalegum mengunarkvóta? Svarið er ein- falt. Það gerðist síðast þegar flokkurinn reyndi að koma fjölmiðlalögunum gegnum þingið eftir hörð mótmæli „vinstri“ flokkanna svokölluðu sem þá voru skyndilega til í að leggja allt í sölurnar til að tryggja fákeppni á fjölmiðlamarkaði. Þversagn- irnar í íslensku stjórnmálalífi til hægri og vinstri eru nógu stórar til að rúma marga rómana. Hvers vegna stendur Sjálfstæðisflokkurinn þá í þessu stóriðjubrambolti sínu? Ætli skýring- arnar sé að finna í fjármununum sem ríkisstyrkt stóriðja skilar þjóðarbúinu? Þriðjaheimslausnir fyrir fyrsta flokks land Hvað á Ísland sameiginlegt með Brasilíu, Ind- landi, Jamaíku, Venesúela, Víetnam, Mið- Austurlöndum, Suður-Afríku, Tadjikistan og Austur-Rússlandi? Einhvern veginn svona er hundrað milljarða rúblu spurningin. Svarið liggur í augum uppi. Þetta eru löndin þar sem rússneska álfyrirtækið Rusal hugleiðir að reisa nýtt álver.13 Við Íslendingar erum vanir því að sjá Ísland á listum með löndum eins og Noregi, Þýskalandi, Sviss, Luxemburg, Bandaríkjunum og Japan, en veruleiki stóriðjuuppbyggingarinnar er annar en sá veruleiki sem stýrir atvinnuþróun í þeim ríkj- um sem við miðum okkur annars við að öllu leyti. Af hverju leggur Sjálfstæðisflokkurinn svo mikla áherslu á þriðjaheimslausnir í atvinnuuppbygg- ingu þjóðar sem stendur í fremstu röð hvað alla aðra hluti snertir? Því hefur verið haldið fram að fátt sé flóknara en að reikna út arðsemi virkjana (sér í lagi þegar raforkuverðinu er haldið leyndu), en stundum er hægt að komast framhjá flækjunum að hjarta málsins á einfaldan hátt. Listinn fyrir álvers- löndin getur nefnilega sagt okkur ýmislegt um gróða og tap sem 100 misvísandi efnahagsreikn- ingar geta ekki. Þumalputtareglan er þessi. Þær atvinnuuppbyggingarleiðir sem eru vel fram- kvæmanlegar og skila miklum gróða eru vinsæl- ar. Ef slíkar leiðir kalla á einhvern fórnarkostnað er sá kostnaður metinn í ljósi hagnaðarsjón- armiða. Risavaxinn gróði sættir íbúana betur við þær fórnir sem færa þarf enda eru velmeg- unarviðmiðin á Vesturlöndum há og íbúar þeirra gera strangar kröfur til stjórnmálamanna og at- vinnulífsins um að slaka hvergi á í þeim efnum. Þetta er grundvallaratriði sem síðan stýrir allri annarri ákvarðanatöku. Þá er komið að hundrað milljarða rúpía spurningunni. Í ljósi hinnar miklu arðsemi sem íslensk stjórnvöld segja að tengist vatnsfallsvirkjunum og ásættanlegs fórnarkostn- aðar verður að teljast undarlegt að almenn and- staða við stíflur hafi verið orðin svo mikil á sjö- unda og áttunda áratug liðinnar aldar að vestræn stóriðjufyrirtæki í löndum eins og Bandaríkj- unum, Noregi, Svíþjóð, Kanada, Ástralíu, Frakk- landi og Austurríki fóru að leita eftir nýjum mörkuðum. Eins og Ann Danaiya Usher bendir á í bók sinni Dams as Aid: A Political Anatomy of Nordic development thinking varð stíflugerð í þriðjaheimsríkjum miklu algengari upp úr þessu og tengdist þá gjarnan þróunarhjálp. Hugmyndin var sú að hægt væri að gefa þriðja heiminum stífl- ur og með því uppræta fátækt, en auka framfarir og uppbyggingu. Þetta var handhæg leið til að miðstýra fjármagni og laða að erlend stóriðjufyr- irtæki í löndum þar sem almenn atvinnustarfsemi var í molum.14 En nú er svo komið að jafnvel í þró- unarríkjunum er stíflugerð ekki lengur séð sem sú töfralausn sem hún var talin fyrir aðeins þrjá- tíu árum og hafa margar bækur verið skrifaðar um þau félagslegu vandamál sem fylgja slíkum framkvæmdum, svo ekki sé minnst á umhverf- issjónarmiðin.15 Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir úreltum þriðjaheimslausnum í áherslu sinni á íslenska stóriðjuuppbyggingu þar sem markaðs- sjónarmiðin ráða ekki ferðinni eins og sést best á því að stórar vatnsaflsvirkjanir eru ekki lengur reistar nema fyrir atbeina hins opinbera. Ef ábat- inn af virkjanaframkvæmdum væri sá sem verj- endur framkvæmdanna hafa lengi haldið fram væru menn enn að reisa stíflur á Vesturlöndum. Skýringanna á íslenskum virkjanafram- kvæmdum verður að leita annars staðar og er þá einfaldast að horfa til þess hversu handhægt mið- stýringartæki þær eru. Með þeim getur stjórn- málamaðurinn bent á risavaxið stóriðjuverkefni og sagt við örvæntingarfulla kjósendur: „Allt þetta færi ég yður ef þið vegsamið mig.“ Virkj- anastefna íslenskra stjórnvalda er einfaldlega nýtt form fyrirgreiðslupólitíkur. Gerska ævintýrið Í fyrrum Sovétlýðveldinu Tadsjikistan geisaði borgarastríð frá 1992 til 1997. Efnahagurinn var ekki beisinn fyrir, eftir marga áratugi innan Ráð- stjórnarríkjanna, en eftirköstin voru slík að Rauði krossinn lýsti því yfir að hungursneyð væri yfirvofandi í landinu. Síðan þá hafa framfarir í ríkinu verið miklar og þær má ekki síst þakka mikilli baðmullarframleiðslu og álvinnslu. Ég efast ekki um að Tadsjikar telji stóriðjuuppbygg- ingu landsins réttlæta þann fórnarkostnað að reisa enn eitt álverið í landinu og að færa megi rök fyrir réttmæti slíkra skoðana. Þetta eru þó gamalkunnar Ráðstjórnarlausnir og sýna að Tadsjikistar eru enn ekki lausir undan þeim þankagangi sem mótaði líf þeirra og viðhorf svo lengi. En standa Íslendingar frammi fyrir of- urkostum Tadsjikista? Er veruleiki Íslendinga slíkur að þeir þurfi að fara leið þriðjaheimslanda og gamalla Ráðstjórnarríkja í atvinnuuppbygg- ingu? Við erum ekki nýskriðin undan Sovétinu sökkva Morgunblaið/RAX tröllssvefni sínum. Án Sjálfstæðisflokksins verður ekki hægt að snúa þróuninni við og af þeim mdir munu hafa í för með sér um ókomna framtíð.“ Eru hugsjónir íslenskra stjórnmála- manna í sama verðflokki og raforkuverðið eða hvílir kannski leynd yfir þeim líka? MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 9 

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.